Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Side 37
Skúrkurinn Upphaflega
var hlutverk glæpamannsins
skrifað fyrir karlmann, en
það var umskrifað eftir að
hin gullfallega og hæfileika-
ríka Priyanka Chopra (fædd
18. júlí 1982) fékk hlutverkið.
Chopra er þekktasta og
hæstlaunaða leikkona
Indlands og hlutverk hennar
í Bollywood-kvikmyndum
fjölmörg. Hún var valin
Ungfrú Heimur árið 2000,
er mikill mannúðarsinni og
hefur starfað fyrir UNICEF í
fjölda ára. Hún hefur gefið
út þrjú lög og árið 2015 var
hún fyrsti Asíubúinn til að
leika aðalhlutverk í banda-
rískri þáttaröð, en hún leikur
njósnara FBI í þáttunum
Quantico, en nýlega var
afráðið að taka upp þriðju
þáttaröð þeirra.
Var ekki Valinn Einn af þeim sem þreytti áheyrnar-
prufur fyrir þættina var Leonardo DiCaprio, en Hasselhoff
þótti DiCaprio, sem þá var 15 ára gamall, of gamall til að
leika son hans og láta Hasselhoff líta út fyrir að vera eldri.
Það var því hinn 11 ára gamli Jeremy Jackson sem landaði
hlutverkinu. Það er þó óhætt að segja að þessi höfnun hafi
ekki haft áhrif á glæstan feril Óskarsverðlaunahafans sem lék
í misgóðum hlutverkum í bæði sjónvarpsþáttum og kvikmynd-
um, þar til hann átti fyrsta stórleikinn í mynd Lasse Hallstrom,
What's Eating Gilbert Grape 1993.
The hoff Þekktasti leikari þáttanna
er sjálfur David Hasselhoff (fæddur
17. júlí, 1952), sem gengur undir
gælunafninu The Hoff, en hann leikur
Mitch Buchannon. The Hoff er skráður
í Heimsmetabók Guinness sem sá karl-
maður sem fengið hefur mest áhorf í
sjónvarpi. Hasselhoff hefur reynt fyrir
sér í fjölda kvikmynda og sjónvarps-
þátta, bæði fyrir og eftir Baywatch-
ævintýrið, og þá margoft komið fram
sem hann sjálfur, enda best þekktur
sem slíkur. Hann hefur reynt fyrir sér
á tónlistarsviðinu, með frekar slökum
árangri, með raunveruleikaþáttaröð,
The Hasselhoffs, ásamt dætrum sínum
tveimur sem hætt var með í sýningu
eftir aðeins tvo þætti, og
ævisaga hans, Making Waves
(nema hvað!), kom út árið
2006.
Sú floTTaSTa Pamela Anderson (fædd 1. júlí, 1967) er þekktust þeirra
kvenna sem léku í Baywatch, en hún lék í þeim frá 1992–1997, í alls 110
þáttum. Anderson á einnig metið sem forsíðufyrirsæta tímaritsins Playboy,
alls 14 skipti. Einkalífið var löngum stormasamt og sem dæmi má nefna
að hún giftist Tommy Lee, trymbli þungarokkhljómsveitarinnar Mötley Crue
eftir aðeins fjögurra daga kynni. Ferill hennar hefur ekki verið mikill eftir
Baywatch, en Anderson kemur þó reglulega fram bæði í kvikmyndum
og sjónvarpsþáttum, þá oftast í gestahlutverki. Anderson er mikill dýra-
verndunarsinni og virkur meðlimur PETA-samtakanna.
SamningSákVæði um kjör-
þyngd Eitt aðaleinkenni þáttanna
eru hlaup aðalleikara um ströndina í
sundfatnaði í „slow motion.“ Það kemur
því kannski ekki á óvart að í samning-
um þeirra var ákvæði um að
þau mættu ekki þyngjast
á meðan þau léku í
þáttunum.