Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Side 49

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Side 49
25Helgarblað 26. maí 2017 það að minnsta kosti ekki.“ Tekur það ekki á að leita að týndu fólki? „Jú, það getur vissulega gert það sérstaklega þegar niðurstaðan er sorgleg, sem hún er því miður alltof oft. Síðast tók ég þátt í leitinni að Birnu Brjánsdóttur, það tók á alla sem að leitinni komu. Veðrið var vont fyrstu dagana og við Skutull tókum erfið leitarsvæði í byrjun svo þetta reyndi á okkur bæði andlega og líkamlega.“ Slítandi pólitík Þú hefur fengist við alls konar störf á ferlinum, starfað í fjölmiðlum, fengist við kennslu, verið alþingismaður og skrifað bækur. Er eitthvað af þessu sem er skemmtilegra en annað? „Hæfileikum mínum hefur verið fleygt niður á öll þessi svið og í öllum þessum störfum hef ég hugsað: Ó, hvað ég er heppin, að fá að vinna við það sem ég hef virkilega ánægju af. Ég gæti ekki hugsað mér að vera í starfi þar sem ég væri farin að finna fyrir leiða, enda held ég að starfs­ ánægja skipti öllu varðandi það að ná árangri í starfi. Kennslustörf eiga mjög vel við mig og sem skólameistari fannst mér mjög skemmtilegt að byggja upp og þróa skólastarf í framhaldsskóla. Samskipti við unglinga geta verið mjög gefandi og lærdómsrík. Maður er aldrei eingöngu kennari heldur lærir maður líka af sínum nemend­ um. Ritstörf og fræðimennska eiga líka vel við mig. Það er kannski helst að pólitíkin sé slítandi starf. Ég var aðeins farin að finna að ég var til­ búin að skipta. Það er svo merkilegt að um leið og maður fer að hleypa þeirri hugsun að þá kemur forsjónin og svarar því á sinn hátt. Það gerðist hjá mér. Ég veit ekki hvað ég hefði enst lengi í starfi þingmannsins, því þing­ seta er mikið annríkisstarf. Maður fær alltof lítinn tíma til að vinna vel og það á ekki við mig. Ég verð að fá að rannsaka mál og skoða gögn. Ég er svo mikill grúskari í mér og ég verð að fá tíma til að yfirvega afstöðu mína til einstakra mála. Því fylgir mikil ábyrgð að vera þingmaður og taka þátt í löggjafarstörfum og það þreytti mig stundum að vera kastað á milli verkefna. Síðan var ætlast til að maður væri tilbúinn með ræður eða svör fyrir fjölmiðla hér og nú varðandi mál sem höfðu ekki einu sinni verið kynnt fyrir manni. Þessi hraði er líka einkenni fréttamennsk­ unnar og kannski það sem mér lík­ aði síst við hana. Það var svo oft verið að fleyta kerlingar í stað þess að fara ofan í mál. Það er hvorki gefandi né gæfulegt til lengri tíma litið.“ Ríkisstjórn Jóhönnu lyfti grettistaki Ertu jafnaðarmaður í eðli þínu? „Ég er félagshyggjukona, kannski aðeins meira til vinstri en megin­ straumurinn. Samt hef ég aldrei litið á mig sem sósíal ista. Ég er sósíal­ demókrati. Meðan við greiðum til samfé­ lagsins af okkar eigin tekjum þá á að nýta það fjármagn í þágu samfélags­ ins. Mér hefur sviðið að fylgjast með því undanfarna áratugi hversu hags­ munaöfl á Íslandi ráða miklu, þau hafa tekið stjórnun landsins í sínar hendur. Það er skuggalegt að horfa upp á það.“ Hvaða hagsmunaöfl? „Sterkar atvinnugreinar til dæmis, eins og fjármálakerfið og út­ gerðarauðvaldið. Ferðaþjónustan er að komast í þessa stöðu, er orðin mjög sterk atvinnugrein og sýnir til­ burði í þá átt að taka til sinna ráða. Stjórnmálamenn verða að hafa sterk bein gagnvart þessu og minna sig á það dag hvern að þeir eru í þjón­ ustu almennings. Annars vegar eru almannahagsmunir, hins vegar sér­ hagsmunir. Það eru almannahags­ munirnir sem eiga alltaf að vega þyngst.“ Hvað varð Samfylkingunni að falli? „Ég vil ekki meina að Samfylk­ ingin sé fallin en hún missti fótanna. Ég held að hún hafi ekki þolað kjör­ tímabilið eftir hrun. Hún færðist of mikið í fang og gat ekki staðið við öll þau kosningaloforð sem gefin höfðu verið. Þrjú þungavigtarmál runnu út í sandinn á því kjörtímabili: Evrópu­ sambandsmálið, sjávarútvegsmálin og stjórnar skrármálið. Ég held að það hafi ráðið úrslitum um hrun Samfylkingarinnar. Það skapaðist vantrú sem flokkurinn er ekki búinn að bíta úr nálinni með ennþá. Eftir að Jóhanna steig til hliðar tók við forystukreppa. Það var greinilegt að það var ekki eining innan flokks­ ins um hvert skyldi stefna og flokk­ urinn fylkti sér ekki einhuga á bak við þann formann sem kjörinn hafði verið. Við bættist svo stjórnmála­ þreyta og reiði almennings. Við skulum samt ekki gleyma því að ríkisstjórn Jóhönnu lyfti grettistaki. Reisti landið úr rjúkandi rúst og kom efnahagslífinu aftur á réttan kjöl. Sú ríkisstjórn sem nú situr og sú sem sat á síðasta kjörtímabili hafa í rauninni verið að njóta ávaxt­ anna af þeim ákvörðunum sem tekn­ ar voru í ríkis stjórn Jóhönnu.“ Heldurðu að Samfylkingin geti risið upp úr rústunum? „Já, en ég held að þetta sé lang­ hlaup en ekki spretthlaup. Stjórn­ málaflokkar geta ekki krafist trausts, eins og manneskjur í lífinu verða þeir að ávinna sér traust. Það er ekki hægt að laga allt með auglýsinga­ pésum og góðri kynningarstarfsemi. Heilindi verða að vera til staðar. Ef menn eru sjálfum sér samkvæmir þá verður málflutningur þeirra trúverð­ ugur og traustið vex.“ Heldurðu að núverandi ríkis- stjórn sitji út kjörtímabilið? „Ég efast um það. Ég held að það sé ekki næg samstaða þar innan borðs. Mér líst auðvitað ekkert á þá hægri stefnu sem verið er að reka í þessari ríkisstjórn. Hún er með einkavæð­ ingaráform í heilbrigðismálum og gerir endalausa sparnaðar kröfu á rekstur hins opin bera. Nú eru nógir peningar til og það svigrúm á að nota til að byggja upp, bæta og næra innviði sam félagsins eins og heilbrigðis­, mennta­ og samgöngu­ kerfi. Þessar meginstoðir verða að vera í lagi en eru eiginlega í molum eftir lang varandi fjársvelti og niður­ skurð. Núna væri lag, í stað þess að lækka skatta og ívilna sterkum at­ vinnugreinum, að taka tekjur inn í ríkissjóð og nýta þær til að byggja upp samfélagsstoðir.“ Þingmannsstarfið er samfélagsþjónusta Það hefur stundum verið sagt að eftir fimmtugt sé erfitt fyrir konur að fá vinnu. Er það þín reynsla? „Já. Það er mjög lítið rými fyrir konur sem eru eldri en fimmtugar á vinnumarkaði. Ég sé þær ekki mikið nýráðnar í góðum stöðum.“ Það er líka sagt að það sé erfitt f yrir alþingismenn að fá vinnu? Stundum er eins og þeir mæti andúð þegar tilkynnt er um að þeir séu komnir í nýtt starf. „Já, og það er alltaf gert að fréttum ef þeir sækja um störf, sem vinnur gegn þeim og hefur áhrif á atvinnumöguleikana. Það er svo mikill tvískinnungur uppi í þessum efnum. Annars vegar er uppi krafa um að starf alþingismannsins sé ekki ævistarf, það verði að eiga sér stað endurnýjun og útskipting. Gott og vel, en þá verða menn líka að eiga afturkvæmt inn í samfélagið eftir að hafa þjónað á Alþingi. Þingmanns­ starfið er samfélagsþjónusta og menn eiga ekki að gjalda fyrir það, þótt þeir eigi ekki að njóta neinna forréttinda heldur. Fólk á að fá að njóta hæfileika sinna, menntunar og þekkingar, en það er misbrestur á því þegar stjórnmálamenn eru annars vegar. Kannski eimir líka eftir af því viðhorfi að ef stjórnmálamaður sem er hættur fær starf þá sé það ein­ hvers konar fyrirgreiðsla, en það er ekki þannig.“ Kannski kemur skáldsaga Víkjum aðeins að skáldskap. Þú hefur skrifað bækur, þar á meðal er ljóðabók. „Ég hef alltaf verið yrkjandi. Ljóðin verða til þannig að eitthvað kemur til mín. Svo fer það eftir stemningunni hvort ljóðið er rímað eða órímað og hvort í því er tregi eða kæti. Mér finnst gaman að búa til vísur og nota hefðbundna formið. Sem betur fer eru skáld farin að vinna aftur með bundna málið sem var bannorð þegar ég var í háskóla. Þá gaf ekkert ljóðskáld með sjálfs­ virðingu út ljóðabók í hefðbundnu formi. Mér finnst vera þroskamerki þegar menn þora að blanda því nýja saman við það gamla.“ Ég veit að þú lest mikið, hvaða skáld eru í uppáhaldi? „Ég er bókaormur og hef alltaf verið alæta á bækur en ég er svolítið hefðbundin. Mín eftirlæti eru Þór­ bergur, Laxness, Einar Ben, Davíð og Steinn. Svo elska ég Theódóru Thoroddsen, Ólínu Andrésdóttur, Guðrúnu frá Lundi og Ólöfu frá Hlöðum. En ég hef líka unun af því að lesa mörg yngri skáld. Kristín Marja Baldursdóttir er til dæmis í miklu uppáhaldi. Ég hef verið að skrifa bókagagnrýni af og til síðustu ár og hef átt þess kost að kynna mér það sem er að koma frá íslenskum höfundum. Þar er mikil gróska.“ Við hvað ertu að vinna þessa stundina? „Núna er ég að vinna í sjálfstæðu rannsóknarverkefni sem er mjög spennandi. Það er of snemmt að upplýsa umfjöllunarefnið en þetta er menningarsögulegt og þjóðfræði­ legt verkefni sem ég vona að verði að bók innan tíðar.“ Gætirðu hugsað þér að skrifa skáldsögu? „Það er ekkert útilokað að ég skrifi skáldsögu. Ég er með ákveðna hugmynd sem mig langar til að út­ færa ef lífið leyfir.“ Undir lokin er rétt að víkja að einkalífinu. Þú hefur verið gift ansi lengi. Hver er galdurinn við farsælt hjónaband? „Ég bara veit það ekki“ segir Ólína og hlær. „Ég kynntist manninum mínum, Sigurði Péturssyni, nítján ár gömul. Við höfum alltaf verið eins og tvær perlur í einni skel. Okk­ ur hefur gengið vel að vinna saman úr því sem lífið hefur fært okkur. Við höfum sömu áhugamál, erum póli­ tískt, sagnfræðilega og fræðilega þenkjandi. Við höfum gaman af úti­ vist. Við erum mjög lík að mörgu leyti þótt skaphöfnin sé ekki alveg sú sama. Hjónaband byggist á sam­ ábyrgð tveggja og gagnkvæmri til­ litsemi. Hingað til hefur okkur lán­ ast að dansa í takt og ég vona að guð gefi að okkur lánist það áfram.“ n fólk - viðtal Ólína og Sigurður eiginmaður hennar „Við höfum alltaf verið eins og tvær perlur í einni skel.“ Á förum frá Ísafirði „Ég get lagt þessa bók, sögu um mannlíf, náttúru og líf við Djúp í gegnum aldirnar, á borð með mér í kveðjuskyni.“ Mynd SigtRygguR ARi Ólína og Skutull Myndin var tekin við leitina að Birnu Brjánsdóttur. „Þegar ég fór vestur ákvað ég að ég myndi vera þar meðan ég hefði erindi og gæti gert sam­ félaginu gagn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.