Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Qupperneq 54
30 fólk Helgarblað 26. maí 2017
Aðalskona í
eyðimörkinni
n Hneykslunarhellan Jane Digby n Lifði óvenjulegu og skrautlegu lífi
Kjarnakonur fyrri tíma:
H
in breska Jane Digby, sem
fæddist árið 1807, var af
aðals ættum, undrafögur,
mjög listræn, þótti góður
málari og lék á píanó, gítar
og lútu og hafði fallega söngrödd.
Hún var sautján ára gömul þegar for
eldrar hennar ákváðu að gifta hana
Ellenborough lávarði. Hann var
þrjátíu og fjögurra ára gamall ekkill,
laglegur, auðugur og metnaðar gjarn
stjórnmálamaður. Um leið var hann
illa þokkaður af þeim sem þekktu
hann.
Ellenborough gerðist snemma
afhuga konu sinni og frístundum
eyddi hann með hjákonum sínum
og eignaðist barn utan hjónabands.
Jane fór að horfa í kringum sig og
eignaðist son með frænda sínum,
en eiginmaðurinn taldi barnið vera
sitt. Jane fann nýjan ástmann, Felix
Schwarzenberg, prins frá Austur ríki.
Samband þeirra var á allra vörum.
Austurríski sendiherrann í London
varð svo áhyggjufullur vegna stöðu
mála að hann sá sér ekki ann
að fært en að vara Felix við því að
sambandið gæti skaðað hann veru
lega. Til að draga athyglina frá ástar
sambandi sínu við Jane fór Felix að
sjást með öðrum konum. Jane gekk
niðurbrotin um veislusali Lundúna
borgar og sagði hverjum sem hlusta
vildi að elskhugi sinn hefði yfir
gefið sig. Þegar hún komst að því
að hún væri barnshafandi eftir Felix
hugðist hún yfirgefa eigin mann sinn
og fylgja Felix. Hann kærði sig hins
vegar ekki lengur um hana.
Fjölskrúðugt ástarlíf
Jane fæddi dóttur
og skömmu eftir
fæðinguna lést sonur
hennar, tæplega
tveggja ára. Eigin
maður hennar
sótti um skilnað en
Jane var enn á ný
barnshafandi eftir
Felix. Hún fæddi
son sem lést tíu
daga gamall. Jane
hélt til München
þar sem hún komst
í kynni við Lúðvík,
konung Bæjara
lands, og milli þeirra
tókst innileg vinátta
sem fór ekki fram
hjá fólki og almennt var talið að hún
væri ástkona konungsins.
Karl Venningen barón var einn
af mörgum aðdáendum Jane. Hann
bað hennar og hún tók bónorðinu
þótt hún léti sig enn dreyma um að
Felix snerist hugur og myndi senda
eftir henni. Þau Karl áttu saman
dreng og síðar stúlku sem seinna
var vistuð á geðveikrahæli. Umskipti
urðu enn í lífi Jane þegar hún kynnt
ist Theotokis greifa, sem kallaður var
Spiro. Hann var glæsilegur maður, af
aðalsættum frá grísku eyjunni Korfú.
Jane yfirgaf eiginmann sinn og börn
þeirra til að fylgja Spiro. Þau eignuð
ust son, sjötta barn Jane. Jane hafði
ekki verið umhyggjusöm móðir en
fékk samstundis mikla ást á þessum
nýfædda syni sínum.
Sumarið 1846 var Jane í sumar
fríi á Ítalíu ásamt hinum fimm ára
gamla syni sínum. Drengurinn var
staddur á þriðju hæð húss þeirra
þegar hann heyrði rödd móður
sinnar þar sem hún stóð utan dyra.
Hann hallaði sér yfir svalahandriðið,
missti jafnvægið og féll fyrir fætur
móður sinnar á marmaragólf. Hann
lést samstundis. Jane og Spiro
skildu skömmu síðar.
Ást í eyðimörkinni
Hin ævintýragjarna
Jane var í stöð
ugri leit að hinni
einu sönnu ást.
Ottó Grikklands
konungur varð
elskhugi hennar,
en hann var
sonur Lúðvíks
Bæjarakonungs,
sem Jane hafði
átt í ástarsambandi
við. Svo kynnt
ist Jane grískri
andspyrnuhetju,
Christodoulos
Chatzipetros, sem
var á sjötugsaldri, og þegar hann var
gerður að héraðsstjóra í Lamíu fylgdi
hún honum. Hún tók upp nýjan lífs
stíl, gekk í ullarfötum, svaf oft undir
berum himni, stundaði veiðar og eld
aði mat við eld. En ævintýrið í fjöllun
um stóð einungis í nokkra mánuði.
Þegar hún komst að því að elskhuginn
átti í ástar ævintýri með þjónustu
stúlku hennar yfirgaf hún hann.
Jane var orðin 46 ára og lét hvergi
deigan síga í leit sinni að ástinni.
Hún fór í gott frí til MiðAusturlanda
og í Sýrlandi hitti hún bedúína
höfðingjann Saleh, sem var tuttugu
árum yngri en hún. Hún gerði sér
miklar væntingar til hjónabands
en þær vonir brugðust þegar hún
kom að honum í tjaldi með tán
ingsstúlku. Næst lá leið hennar til
Damaskus. Þar var leiðsögumaður
hennar hinn ungi sjeik, Medjuel el
Mezrab. Hann var að nálgast þrítugt,
var tuttugu árum yngri en hún. Með
þeim tókust miklar og hamslausar
ástir og hann kvæntist henni í trássi
við vilja fjölskyldu sinnar. Helming
ársins bjuggu þau í glæsilegri höll í
Damaskus, en hinn helming ársins
bjuggu þau í tjöldum í eyðimörk
inni. Jane gekk í arabískum fötum
og lærði arabísku sem var eitt af níu
tungumálum sem hún talaði.
Hjónaband Jane og Medjuel var
afar hamingjuríkt og þar fann Jane
hamingjuna sem hún leitaði alltaf
svo staðfastlega að. Jane lést árið
1881, 74 ára gömul, eftir tæplega
þrjátíu ára hjónaband. Eiginmaður
hennar var harmi sleginn og hélt út
í eyðimörkina þar sem hann fórnaði
besta kameldýri sínu í minningu ást
kærrar eiginkonu sinnar. n
Málverk af Jane Carl Haag málaði þessa
mynd árið 1859.
Jane Digby Enski aðallinn stóð á öndinni af hneykslan vegna skrautlegs einkalífs hennar.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Hún tók upp nýjan lífsstíl,
gekk í ullarfötum, svaf
oft undir berum himni, stundaði
veiðar og eldaði mat við eld.
Hin unga Jane Óhætt er að segja
að hún hafi lifað óhefðbundnu lífi.