Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Síða 58
34 lífsstíll Helgarblað 26. maí 2017
Litlu skrefin í átt að
minni sykurneyslu
n Of mikil sykurneysla gerir engum gott n Svona geturðu minnkað hana
Þ
að er ekkert launungarmál
að margir neyta of mikils
magns sykurs. Sykurneysla
eykur líkur á þyngdaraukn-
ingu og tannskemmdum
og getur auk þess aukið líkur á lífs-
stílstengdum sjúkdómum á borð við
sykursýki, tegund 2. Það er því ýmis-
legt í húfi varðandi sykurneyslu, eink-
um og sér í lagi neyslu á viðbættum
sykri sem bætt er í matvælin við fram-
leiðslu þeirra. Næringarfræðingurinn
Lisa Young gaf lesendum Business
Insider á dögunum nokkrar ráð-
leggingar um það sem við getum gert
til að takmarka sykurneysluna. n
Sykur Ávinningurinn
af því að minnka sykur-
neyslu er ótvíræður.
Lestu innihalds-
lýsinguna
Mörgum, sérstaklega börnum, finnst
gott að byrja daginn á því að fá sér
morgunkorn. Til er ógrynni tegunda af
morgunkorni og sumt inniheldur meiri
sykur en góðu hófi gegnir. Young hvetur
fólk til að kynna sér innihald morgun-
kornsins og lesa sér til um sykurmagnið.
Ágætt er að nota þá þumalputtareglu
að sykurmagnið í hverjum hundrað
grömmum sé ekki meira en trefjainni-
haldið í hverjum hundrað grömmum.
Forðastu sælgæti
Öruggasta leiðin til að forðast sykur
og minnka neysluna er að borða ekki
sælgæti. Sælgæti inniheldur mikinn
sykur og margar hitaeiningar en er
snautt af góðum næringarefnum. Í
raun er engin ástæða til að leggja sér
sælgæti til munns.
Borðaðu ávexti
og grænmeti
Ávextir innihalda vissulega sykur en þeir
eru þeim kostum gæddir að innihalda
trefjar sem hægja á upptöku sykurs
úr smáþörmum í blóðrásina og auka
á seddutilfinningu. Þá gefa ávextirnir
okkur góð næringarefni og vítamín.
Drekktu
kolsýrt vatn
Eins og sælgæti, er sykrað
gos ekkert annað en inni-
haldslausar hita einingar.
Samkvæmt nýlegum
rannsóknum er sykurlaust
gos, gos sem inniheldur
sætuefni, ekki endilega betra
en sykraða gosið. Góð leið til
að minnka sykurneysluna er
að forðast sykraða gosdrykki
og leggja heldur áherslu á
að drekka kolsýrt vatn með
bragðefnum. Íslenskum neyt-
endum stendur mikið úrval
kolsýrðra vatnsdrykkja til
boða en engu að síður er gott
að skoða innihaldslýsinguna.
Sumir þeirra innihalda sykur.
Gerðu hristinginn
heima
Besta leiðin til að
vita hversu mikill
sykur er í vörunni
sem þú neytir er að
búa hana til sjálfur.
Þetta á til dæmis við
um ávaxtaþeytinga eða
hristinga (e. smoothie). Þegar við
kaupum slíka drykki innihalda þeir oft
talsverðan sykur til að gera þá meira
aðlaðandi fyrir þá sem þeirra neyta.
Góð leið til að komast hjá þessu er að
blanda þessa drykki sjálfur. Hugmynd:
Skerðu niður rauðrófur, avókadó, engi-
fer, epli og banana og settu í blandara
ásamt slatta af vatni og klaka. Þá ertu
kominn með bragðgóðan, svalandi og
hollan drykk.
Borðaðu prótín
Young mælir með að fólk leggi það í vana
sinn að innbyrða prótín með hverri máltíð.
Eins og trefjar gera prótínin það að verk-
um að maður finnur lengur fyrir seddut-
ilfinningu. Það veldur síðan því að maður
er síður líklegur til að úða í sig óhollustu
þegar hungrið sækir að. Mikilvægt er að
borða prótínin jafnt yfir daginn.
Borðaðu reglu-
lega yfir daginn
Þegar við verðum mjög
svöng eigum við það
til að missa okkur
hreinlega í óholl-
ustunni. Það getur
verið freistandi að
ná sér í sælgætis-
stykki þegar hungrið
sverfur að. Góð leið til að forðast þetta
er að borða reglulega yfir daginn til að
halda blóðsykrinum í jafnvægi. Ef það er
gert verða freistingarnar viðráðanlegri.
Borðaðu hreina
jógúrt
Það eru ekki allar mjólkurvörur
hollar þótt margar séu þær fitu-
snauðar. Jógúrt inniheldur oft talsvert
magn af viðbættum sykri en það á þó
ekki alltaf við. Hrein jógúrt er hollur
kostur og talin góð fyrir meltinguna.
Hún inniheldur tiltölulega lítinn
sykur og það er hægt að nota hana í
ýmislegt. Borða hana eina og sér, bæta
ávöxtum eða múslí út í eða gera úr
henni hollar sósur.
Slepptu ávaxtasafanum
Ávaxtasafi inniheldur oft mikinn sykur og
þar af leiðandi er betra að borða hreina
ávexti, meðal annars vegna trefjanna
eins og fjallað er um hér að framan.
Trefjar eru góðar fyrir meltinguna, auka
á seddutilfinningu og minnka þannig lík-
urnar á að við borðum of mikið. Engin slík
handbremsa er fyrir hendi þegar við drekkum
ávaxtasafann þar sem aðeins er um vökva að ræða.
Svart og sykurlaust
Kaffi er ómissandi þáttur í daglegu lífi margra. Til eru óteljandi útgáfur af kaffidrykkj-
um og á meðan uppáhellingin heima er skotheld og sykurlaus innihalda aðrar tegundir
mikinn sykur. Sumum finnst gott að fá sér bragðbætandi efni í kaffið, svokallað kaffi-
síróp, sem gerir kaffið um leið sætara. Þá er hægt að fá alls kyns útfærslu á kaffihúsum
sem sum hver inniheldur meiri sykur en sykruðustu gosdrykkirnir. Hafðu þetta í huga
næst þegar þú pantar þér kaffi á kaffihúsi.