Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Page 60
36 menning Helgarblað 26. maí 2017
T
uttugu nýjar myndir verða
frumsýndar á heimilda-
myndahátíðinni Skjaldborg
sem fer fram í ellefta sinn á
Patreksfirði um hvítasunnu-
helgina í byrjun júní. Viðfangsefnin
eru jafn fjölbreytt og myndirnar eru
margar: þjóðbúningar og flótta-
menn, afreksfólk og venjulegir Ís-
lendingar, sjálfbærni og smábæjarlíf.
„Það var algjör metaðsókn í að fá
að sýna á hátíðinni í ár – við höfum
aldrei þurft að hafna svona mörg-
um myndum. Það er magnað að sjá
gróskuna, bæði í nálgun og efnistök-
um,“ segir Helga Rakel Rafnsdóttir,
kvikmyndagerðarkona og einn
skipuleggjenda hátíðarinnar sem
verður sérstaklega vegleg í ár og upp-
full af nýjungum.
Einstök stemning
Skjaldborg var fyrst haldin árið 2007
þegar hópur áhuga- og kvikmynda-
gerðarfólks úr Reykjavík hafði frum-
kvæði að því að halda heimilda-
myndahátíð í Skjaldborgarbíóinu á
Patreksfirði. Heimamenn tóku vel í
framtakið og hafa alla tíð tekið virk-
an þátt, meðal annars hefur kvenfé-
lagið alltaf boðið í plokkfiskveislu og
Lionsklúbburinn í bænum tók sig til
og safnaði fyrir fullkomnu stafrænu
sýningakerfi fyrir Skjaldborg.
„Þetta er mjög falleg hátíð. Það
er svo góð stemning og mikil sam-
vinna milli heimamanna og að-
komumanna úr 101 Reykjavík,“ segir
Helga Rakel sem hefur sjálf mætt ár-
lega frá árinu 2008 þegar hún frum-
sýndi heimildamynd sína Kjötborg á
hátíðinni.
„Þetta er eins og ættarmót eða
uppskeruhátíð heimildamynda-
gerðarmanna. Fólk miðar við að
frumsýna myndina sína á Skjaldborg
áður en það reynir að koma henni
lengra. Fólk úr öðrum kimum kvik-
myndagerðar kemur svo líka til að fá
innblástur.“
Þó að heimildamyndirnar séu
aðal atriðið þá er það þó ekki síst náin
og persónuleg stemningin með öllum
sínum föstu liðum og sérkennilegu
hefðum sem gerir það að verkum að
fólk kemur aftur og aftur á Skjald-
borg: fiskveisla, sundlaugarferðir,
skrúðganga, limbókeppni og lokaball
– en í ár verður það hljómsveitin FM
Belfast sem leikur þar fyrir dansi.
Blinda, þjóðbúningar og smábær
Meðal lengri mynda sem verða
frumsýndar á hátíðinni í ár má
nefna mynd Kristjáns Loðmfjörðs
Blindrahundur, sem fjallar um vin
hans og kollega Birgi Andrésson
myndlistarmann. Báðir foreldrar
Birgis voru blindir og ólst hann því
upp við ansi sérstakar aðstæður og
átti þessi bakgrunnur eftir að hafa
mikil áhrif á myndlistarsköpun hans
síðar á lífsleiðinni. Önnur mynd sem
margir hafa beðið eftir er Vopna-
fjörður eftir Körnu Sigurðardóttur, en
undanfarin ár hafa hún og samstarfs-
maður hennar, Sebastian Ziegler,
fylgst náið með daglegu lífi og sam-
félagi fólks á Vopnafirði. Þá frumsýn-
ir Ásdís Thoroddsen nýja mynd um
íslensku þjóðbúningana, en myndin
nefnist Skjól og skart - handverk og
saga íslensku búninganna.
Í ár verða í fyrsta skipti veitt sérstök
dómnefndarverðlaun á hátíðinni
en hingað til hafa aðeins verið veitt
áhorfendaverðlaunin Einarinn þar
sem gestir hátíðarinnar hafa valið sig-
urvegarann í lýðræðislegri
kosningu. „Við viljum að
þetta sé bæði hátíð fyrir al-
menning og hátíð fyrir fag-
fólk. Þetta á að endurspegl-
ast í þessum tveimur ólíku
verðlaunum,“ segir Helga
Rakel.
Auk hinna tuttugu full-
búnu heimildamynda
verða níu verk í vinnslu
sýnd en þann lið segir
Helga vera sérstaklega
mikilvægan. „Þarna fær fólk viðbrögð
við því sem það er að gera. Það eru
engir fjárfestar þarna, þetta er bara
samtal við kollega og fyrst og fremst
hvatning. Það er líka þannig fólk sem
mætir, að það hafa allir áhuga á því
sem hinir eru að gera.“
Heiðra frumkvöðla í vídeólist
Heiðursgestir hátíðarinnar í ár eru
Vasulka-hjónin, Steina og Woody,
en í um hálfa öld hafa þau unnið
brautryðjandastarf í myndbanda-
og margmiðlunarlist. Áhrif þeirra og
mikilvægi í myndlistarheiminum eru
óumdeild, en af hverju er heimilda-
myndahátíð að heiðra þetta fólk sem
kemur úr heimi myndlistarinnar?
„Í fyrsta lagi gerði Woody nokkrar
heimildamyndir á Íslandi, en þessar
myndir munum við sýna á hátíðinni,
til dæmis eina um Hvalstöðina. Ef
þær hafa einhvern tímann verið
sýndar opinberlega á Íslandi þá er að
minnsta kosti orðið mjög langt síðan!
Í öðru lagi þá nærast ólík listform
hvert á öðru og það mætti svo sannar-
lega vera meira samtal, til dæmis milli
myndlistar og kvikmyndagerðar. Ég
held að ein ástæðan fyrir of litlu sam-
tali þarna á milli sé að þetta er ekki
kennt við sama skóla, ef við værum
með litla kvikmyndadeild við Lista-
háskólann myndi þetta vafalaust
smitast á milli. Margir íslenskir kvik-
myndagerðarmenn hafa hins vegar
ekki hugmynd um hver Steina og
Woody eru, hafa ekki haft vit á því
eða hreinlega yfirsést að opna augun
fyrir þeim og gera þau að okkar arf-
leifð líka. Því það sem þau hafa ver-
ið að gera er nefnilega alveg jafn
mikil grasrótarkvikmyndagerð og
grasrótar myndlist.“
Auk sýninga á myndum eftir
Vasulka-hjónin í Skjaldborgarbíói
og masterclass í kjölfarið verða fleiri
myndbandsverk þeirra sýnd í nýju
listamannarými sem tilheyrir húsinu
Merkisteini – en rýmið nefnist ein-
faldlega Húsið og er í eigu Arons Inga
Guðmundssonar og Julie Gasiglia. n
Aldrei fleiri viljað
sýna á Skjaldborg
20 nýjar heimildamyndir frumsýndar á Patreksfirði í júní
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Frumsýningar á
Skjaldborg 2017
n Goðsögnin FC Kareoke
eftir Herbert Sveinbjörnsson
n Þar sem þú hefur alltaf verið
eftir Atla Sigurjónsson
n Sveinn á Múla, Íslendingurinn
sem varð bensínlaus
eftir Marine Ottogalli
n Blóð, sviti og derby
eftir Ingu Óskarsdóttur
n Blindrahundur
eftir Kristján Loðmfjörð
n Stökktu
eftir Önnu Sæunni Ólafsdóttur
n Skjól og skart - handverk og
saga íslensku búninganna
eftir Ásdísi Thoroddsen
n Borða, vaxa, elska
eftir Þórð Jónsson og Heather Millard
n Í kjölfar feðranna
eftir Ingvar Ágúst Þórisson og Margréti
Jónasdóttur
n Ormurinn eða minningarmynd
um veröld sem var og áróðurs-
mynd fyrir betri framtíð
eftir Garðar Þór Þorkelsson
n Lesbos
eftir Lúðvík Pál Lúðvíksson
n Ég fer bráðum að koma
eftir Örvar Hafþórsson
n Vopnafjörður
eftir Körnu Sigurðardóttur
n Jói eftir
Höllu B. Randversdóttur og Bergþóru
Snæbjörnsdóttur
n Rósa
eftir Maríu Worms
n Jörð og himinn
eftir Rúnar Reynisson
n A Portrait of Reykjavik
eftir Juan Albarran
n Siggi's Gallery
eftir Mahesh Raghavan
n Bonjour Mammon
eftir Elfar Þór
n Raise the Bar
eftir Guðjón Ragnarsson
Heiðursgestirnir Woody og Steina Vasulka eru sannkallaðir frumkvöðlar í myndbands-
og margmiðlunarlist og verða þau heiðruð sérstaklega á Skjaldborg í ár.
Vopnafjörður Kvikmynd Körnu Sigurðar-
dóttur um Vopnafjörð verður frumsýnd á
Skjaldborgarhátíðinni í ár. Mynd KARnA SiGuRðARdóttiR
Helga Rakel Rafnsdóttir
Metsölulisti
Eymundsson
18.–24. maí 2017
Allar bækur
1 Litla bakaríið við Strandgötu
Jenny Colgan
2 Ljótur leikurAngela Marsons
3 Stofuhiti Bergur Ebbi Benediktsson
4 Sagan af barninu sem hvarf
Elena Ferrante
5 Íslensk öndvegisljóð
Páll Valsson tók saman
6 Iceland flying highÝmsir höfundar
7 LögganJo Nesbø
8 Sagas Of The Icelanders
Ýmsir höfundar
9 Ég man þigYrsa Sigurðardóttir
10 Gæfuspor - Gildin í lífinu Gunnar Hersveinn
Ljóðabækur
1 Íslensk öndvegis-ljóð Ýmsir höfundar
2 Perlur úr ljóðum íslenskra kvenna
Silja Aðalsteinsdóttir valdi
3 Dvalið við dauða-lindir Valdimar Tómasson
4 Ljóð muna röddSigurður Pálsson
5 Marrið í sandinumSvandís Ívarsdóttir
6 Ástarljóð Davíðs Stefánssonar
Davíð Stefánsson
7 Birtan yfir ánniÝmsir höfundar
8 Snorri Hjartarson Kvæðasafn
Snorri Hjartarson
9 Íslensk kvæðiFrú Vigdís Finnbogadótt-
ir valdi
10 Davíð Stefánsson Ljóðaúrval
Davíð Stefánsson