Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Page 9
Helgarblað 9. júní 2017 fréttir 9 Fjárlaganefnd tók til starfa þann 7. desember 2016 enda var bráðnauðsynlegt að klára fjárlög fyrir áramót. Í janúarbyrjun var ný nefnd skipuð enda tóku nokkrir nefndarmenn við ráðherraembættum í janúar. Alls voru fundir fjárlaganefndar 51 talsins, 21 fyrir áramót og 30 eftir áramót, og var Haraldur Benediktsson formaður nefndarinnar allt tímabilið. Óhætt er að segja að hann hafi sinnt starfi sínu af alúð enda mætti hann á hvern einasta fund, 100 prósent mæting. Sá samviskusami: Haraldur Benediktsson, formaður – 51 af 51; 100 prósenta mæting. Þess verður að geta að Þorsteinn Víglundsson var einnig með 100 prósenta mætingu; 21 af 21, þar til hann tók við ráðherraembætti. Skussinn: Páll Magnússon, 20 af 30; 67 prósenta mæting - þar af níu óútskýrðar fjarvistir. Nefndin tók til starfa þann 8. desember og fundaði stíft fram að áramótum eða í sextán skipti. Benedikt Jóhannesson var formaður fyrir áramót og mætti í 15 skipti; 94 prósent. Í eina skiptið sem hann forfall- aðist var kallaður til varamaður. Eftir ára- mót tók Óli Björn Kárason við formennsku og hann mætti framúrskarandi vel. Mætingarverðlaun fyrir áramót: Brynjar Níelsson (Sjálfstæðisflokkur), 1. varaformaður, og Elsa Lára Arnardóttir (Framsókn). 16 fundir af 16 – 100% mæting. Mætingarverðlaun eftir áramót: Ólafur Björn Kárason – formaðurinn mætti í 37 skipti af 38 sem gerir 97 prósenta mætingu. Í eina skiptið sem hann mætti ekki var kallaður til varamaður. Skussi fyrir áramót: Vilhjálmur Bjarnason (Sjálfstæðisflokki) – Mætti í 12 skipti af 16. Ekki var kallaður til varamaður í þau skipti sem hann skrópaði. Skussi eftir áramót: Smári McCarthy (Pírötum) – Smári mætti aðeins í 24 skipti af 38. Hann kallaði þó til varamann í níu skipti en í fimm skipti var sæti hans autt án útskýringa. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Nefndin tók til starfa þann 26. janúar og var Brynjar Níelsson kosinn formað- ur hennar. Miðað við formenn nefnda þá mætti Sjálfstæðismaðurinn frekar illa eða á 26 fundi af 30. Það gerir 87 prósenta mætingu. Í þrjú skipti var kallaður til varamaður en í eitt skipti mætti Brynjar ekki án útskýringa. Sú samviskusama: Svandís Svavarsdóttir - þingkona Vinstri grænna mætti á 27 fundi af 30; 90 pró- senta mæting eins og hjá Sjálfstæðis- manninum Njáli Trausta Friðbertssyni, sem var 2. varaformaður nefndarinnar. Munurinn var þó sá að Svandís kallaði til varamann í öll skiptin sem hún forfallaðist en Njáll Trausti forfallaðist án útskýringa í eitt skipti. Skussinn: Birgitta Jónsdóttir - óopinber leiðtogi Pírata var með aðeins 60 prósenta mætingu á fundi nefndarinnar, mætti á alls 18 fundi af 30. Í sex skipti var varamaður kallaður til en í önnur sex skipti mætti enginn fyrir hennar hönd. Nichole Leigh Mosty, þingkona Bjartrar framtíðar, er formaður nefndarinnar sem tók til starfa þann 25. janúar 2017. Hún sinnti mætingarskyldunni vel en alls mætti hún á 29 fundi af 30, sem gerir 97 prósenta mætingu. Í eitt skipti var hún að sinna öðrum þing- störfum erlendis en boðaði þá ekki varamann. Sá samviskusami: Guðjón S. Brjánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, var ekki með neitt hálfkák og mætti á alla fundi nefndarinnar. 100 prósent maður. Skussinn: Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mætti aðeins á 19 fundi af 30, sem gerir 63 prósenta mætingu. Það er afar slæm mæting, sérstaklega í ljósi þess að Vilhjálmur var 1. varaformaður nefndarinnar. Hann kallaði þó til varamann í hvert einasta skipti. Annar Sjálfstæðismaður, Birgir Ármannsson, bar ábyrgð á flestum óútskýrðu fjarvistunum, fjórum alls. Utanríkis- málanefnd Nefndin tók til starfa þann 26. janúar og veitti þingkona Viðreisnar, Jóna Sólveig Elínardóttir, henni for- mennsku. Jóna Sólveig mætti á 22 fundi af 24 fundum; 92 prósenta mæting, en ekki kemur á óvart, í ljósi þess hvaða nefnd er um að ræða að tvisvar var hún upptekin við að sinna þingstörfum erlendis. Í hvorugt skiptið var kallaður til varamaður. Sú samviskusama: Rósa Björk Brynjólfs- dóttir, þingkona Vinstri grænna, mætti á 23 fundi af 24, sem gerir 96 prósenta mætingu. Í eina skiptið sem hún forfallaðist þá kallaði hún til varamann. Skussinn: Fyrrver- andi forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, þingmaður Framsóknarflokksins, virtist ekki hafa mikinn áhuga á starfi nefndar- innar. Hann mætti aðeins í 8 skipti af 24, sem gerir 33 prósenta mætingu. Varamaður var ekki kallaður til í þau skipti sem hann var fjarverandi. Vinstri græn bera af Þingflokkur Vinstri grænna ber af varð- andi mætingu í fastanefndir Alþingis. Þingmenn VG áttu að mæta 390 sinnum á fundi nefndanna og mættu á 383 fundi eða sem samsvarar 98 prósentum. Framsóknarflokkurinn mætti verst eða aðeins í 83 prósentum skipta. Vinstri græn: 390 fundarsæti - 98% mæting - 7 óútskýrðar fjarvistir. Sjálfstæðisflokkur: 1.011 fundarsæti - 91% mæting - 70 óútskýrðar fjarvistir. Viðreisn: 293 fundarsæti - 94% mæting - 9 óútskýrðar fjarvistir. Björt framtíð: 172 fundarsæti - 89% mæting - 17 óútskýrðar fjarvistir. Píratar: 370 fundarsæti - 91% mæting - 30 óútskýrðar fjarvistir. Framsókn: 296 fundarsæti - 83% mæting - 42 óútskýrðar fjarvistir. Samfylking: 132 fundarsæti - 92% mæting - 9 óútskýrðar fjarvistir. Að auki geta fjarvistir verið vegna þing- starfa erlendis og veikinda. Almennt séð virðast þingmenn afar heilsuhraustir því aðeins var tilkynnt 14 sinnum um veikindi varðandi 2.664 mætingar. Framsóknar- menn urðu oftast veikir eða sjö sinnum en engar pestir virðast hafa herjað á þingmenn Vinstri grænna, að minnsta kosti ekki á fundartímum fastanefnda. Vilhjálmur Árnason Þingmaður Sjálf- stæðisflokksins var tvöfaldur mætingarsku- ssi í allsherjar- og menntamálanefnd sem og velferðarnefnd. Í báðum tilvikum var hann annar af varaformönnum nefndanna. Efnahags- og viðskiptanefnd Fjárlaganefnd Velferðarnefnd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.