Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Blaðsíða 14
14 Helgarblað 9. júní 2017fréttir - erlent
„Spyrjið ekki hvað þjóðin geti gert fyrir ykkur heldur hvað þið getið gert fyrir þjóðina“
E
itt hundrað ár eru liðin á
þessu ári frá fæðingu Johns
F. „Jack“ Kennedy, eins ást-
sælasta forseta Bandaríkj-
anna. Kennedy fæddist
29. maí árið 1917 í Brookline í
Massachusetts, af írskum ættum
pólitíkusa. Afi hans í móðurætt, John
Francis Fitzgerald, var borgarstjóri í
Boston og afi hans í föðurætt, Pat-
rick Joseph Kennedy, sat á ríkisþingi
Massachusetts. Faðir Johns, Josep
Patrick Kennedy, var einnig áhrifa-
mikill í stjórnmálum vestanhafs og
gegndi meðal annars stöðu sendi-
herra gagnvart Bretlandi undir for-
setatíð Franklins D. Roosevelt.
Það má því segja að braut Kenn-
edys hafi verið vörðuð þegar í upp-
hafi og raunar ekki bara hans því
tveir yngri bræður hans helltu sér
einnig af afli út í pólitíkina, þeir
Robert „Bobby“ og Edward „Ted“
Kennedy. En af þeim bræðrum
klifraði Kennedy stigann hæst og
náði mestum frama.
Kennedy var fyrst kjörinn á
Bandaríkjaþing, í fulltrúadeildina,
árið 1947 og sat þar til ársins 1953,
þegar hann náði kjöri í öldunga-
deildina. Árið 1960 fór Kennedy fram
sem fulltrúi demókrata í forseta-
kosningunum og hafði nauman sig-
ur gegn Richard Nixon. Forsetatíð
hans var þrungin spennu en í hans
tíð margfölduðust hernaðarum-
svif Bandaríkjanna í Víetnam. Kalda
stríðið stóð sem hæst og árið 1961
gerðu Bandaríkjamenn misheppn-
aða innrás á Kúbu, í Svínaflóa. Kúbu-
deilan náði að segja má hámarki sínu
árið eftir, í október, þegar njósnir bár-
ust af því að Sovétmenn hefðu sett
upp eldflaugaskotpalla á Kúbu, nán-
ast í bakgarði Bandaríkjanna. Kenn-
edy brást við með því að setja hafn-
bann á eyjuna og hóta árás ef sovésk
skip ryfu hafnbannið. Flutningaskip
sovéska hersins hurfu frá hafnbanns-
línunni á síðustu stundu. Kennedy
náði samkomulagi við leiðtoga Sov-
étríkjanna, Nikita Krússjeff, um lausn
á deilunni og var hampað sem þjóð-
hetju heima fyrir fyrir að hafa staðið í
lappirnar gegn óvininum.
„Hvað verður um Jackie og
börnin?“
Kennedy kvæntist árið 1953 Jacquline
„Jackie“ Bovier og áttu þau fjögur
börn. Fjölskyldan þótti hafa yfir sér
glæsibjarma enda þau hjón geislandi
og alúðleg. Dauði Kennedys 22. nóv-
ember árið 1963 varð því mörgum
harmdauði, bæði innanlands sem
og á alþjóðavísu. Kennedy var ráð-
inn af dögum með skoti úr launsátri
þegar hann var opinberri heimsókn í
Dallas. Lee Harvey Oswald var hand-
tekinn, sakaður um að hafa skot-
ið Kennedy en neitaði hins vegar
sök. Oswald var aldrei dæmdur sök-
um þess að tveimur dögum síð-
ar var hann myrtur af Jack Ruby, að
sögn í hefndarskyni vegna morðsins
á Kennedy. Árum saman hefur sam-
særiskenningum verið haldið á lofti
um dauða Kennedys og því meðal
annars verið haldið fram að banda-
ríska leyniþjónustan CIA hafi staðið
að baki morðinu á honum.
DV fékk tvo íslenska stjórnmála-
fræðinga til að leggja mat á forseta-
tíð og arfleifð Kennedys, þá Ólaf Þ.
Harðarson og Hannes Hólmstein
Gissurarson. n
100 ár frá fæðingu
Johns f. KEnnEdy
Ráðinn af dögum Kennedy var veginn
úr launsátri þegar hann var í opinberri
heimsókn í Texas.
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
Í rauninni er furðulegt, að margir vinstri
menn hafi dýrkað Kennedy, en hatað
Nixon. Kennedy var auðmannssonur, sem
fékk allt upp í hendurnar, en Nixon bjó í
æsku við kröpp kjör og varð að hafa fyrir
öllu sínu. Þegar eldri bróðir Kennedys
féll í stríðinu, ákvað hinn metnaðarfulli
faðir hans að gera hann að forseta, en þá
stöðu hafði hann áður ætlað bróðurnum.
Ritfærir menn voru fengnir til að skrifa
fyrir hann ræður og bækur, sem hann fékk
síðan verðlaun fyrir, og auðvitað kvæntist
hann glæsimey, Jacqueline Bouvier, en
var henni ótrúr. Nixon skrifaði hins vegar
bækur sínar sjálfur og var konu sinni trúr
alla ævi.
Þess má raunar geta, að Kennedy átti,
á meðan hann var ungur og ólofaður, ein-
hver stefnumót við Margréti Thors, dóttur
Thors Thors sendiherra, en hún var mjög
fögur stúlka og lést um aldur fram.
Kennedy var jafnmikill kommúnista-
andstæðingur og Nixon og sagði eins
og frægt er í innsetningarræðu sinni, að
Bandaríkin myndu greiða hvaða gjald,
sem þyrfti, til að berjast gegn kommún-
ismanum. Það var hann, en ekki Nixon,
sem herti Víetnamstríðið. Það voru
hrapalleg mistök, þegar hann leyfði
samsærismönnum í Víetnam að myrða
Diem forseta, sem hafði þrátt fyrir allt
verulegan stuðning í Víetnam.
Þegar Kennedy sagði í innsetningar-
ræðunni, að menn ættu ekki að spyrja,
hvað ríki þeirra gæti gert fyrir þá, heldur
hvað þeir gætu gert fyrir ríkið, var hann
óbeint að boða þá skoðun, að menn ættu
ekki sjálfa sig. Þeim væri skylt að fórna sér
fyrir fjöldann. Í stað þess að spyrja, hvað
ríkið geti gert fyrir okkur, ættum við að
spyrja, hvað ríkið sé að gera okkur. Annars
má Kennedy eiga það, að hann beitti
sér fyrir skattalækkunum til að örva at-
vinnulífið, og heppnuðust þær ágætlega.
Ég tel hins vegar, að hann sé ofmetinn
sem forseti, og eru til þess tvær augljósar
ástæður. Hann var vörpulegur á velli og
kom vel fyrir, og hann hlaut sviplegan
dauðdaga, áður en reynt hafði að fullu
á hann og hendur hans flekkast um of.
Sagan elskar þá, sem deyja ungir.
Minn gamli lærimeistari, Friedrich von
Hayek, hitti bæði Kennedy og Reagan í
Hvíta húsinu, og hann hafði orð á því við
mig, að sér hefði fundist Kennedy miklu
meiri leikari en Reagan í þeim skilningi,
að hann hefði gert sér upp áhuga á
hugmyndum, en Reagan hefði haft raun-
verulegan áhuga á þeim.
Jack Kennedy – næstyngsti forseti
Bandaríkjanna – var kaþólikki af írskum
ættum. Á 19. öld voru írskir innflytjendur
hæddir, smáðir og ofsóttir, líkt og múslim-
ar í dag. En Írar náðu vopnum sínum
– sumir urðu auðkýfingar – og toppur
viðurkenningar írskra kaþólikka var
kjör Kennedys.
Kennedy þótti ljóma af
æskuþrótti – og víða um
heim varð hann tákn vonar
um betri veröld. Hann
var baráttumaður fyrir
mannréttindum svertingja
og annarra sem minna
máttu sín, talsmaður umbóta
í skattamálum, alríkisstuðnings
við menntun, geðheilbrigðisáætl-
unar og heilbrigðisstuðnings við aldraða.
Í efnahagsmálum fylgdi hann keynesískri
hagstjórn.
Í innsetningarræðu sinni 1961 útlistaði
Kennedy hugmyndina um „the New Fronti-
er“. Hann vildi halda inn á lendur vísinda
og geimferða, leysa vandamál stríðs og
friðar, berjast gegn fáfræði og hleypidóm-
um, takast á við fátækt. Honum tókst að
koma á laggirnar geimferðaáætlun – sem
skilaði manni til tunglsins. Í félagslegum
efnum átti hann hins vegar á brattann að
sækja gagnvart íhaldssömu þingi. Það beið
eftirmannsins Johnson, að koma í gegn
réttindamálum svertingja og vísi að vel-
ferðarkerfi, oft kennt við „Great Society“.
Kennedy stofnaði Friðarsveitirnar 1961.
Þær voru sveitir ungs fólks, sem átti að
sinna þróunaraðstoð, einkum í menntun
og landbúnað. Eftir Kúbudeiluna 1962 –
þegar heimurinn stóð á barmi kjarnorku-
styrjaldar – vann Kennedy að fyrstu
samningum um takmörkun kjarnorkuvíg-
búnaðar, sem bönnuðu kjarnorkutilraunir
ofanjarðar 1963.
Allt framangreint er talið Kennedy
til tekna í dómi sögunnar. Bandarískir
sagn- og stjórnmálafræðingar raða
gjarnan forsetum sínum eftir
gæðum: Kennedy er venju-
lega í hópi þeirra tíu bestu.
Helstu mistök Kennedys
eru oft talin hin misheppn-
aða Svínaflóainnrás á
Kúbu 1961 og aukin afskipti
í Víetnam – þótt stríðið færi
fyrst á fullt í tíð Johnson.
Kennedy var gáfaður
mannvinur – frábær ræðumaður og
orðhagur með afbrigðum. „Spurðu ekki
hvað land þitt getur gert fyrir þig; spurðu
hvað þú getur gert fyrir land þitt“ sagði
hann í innsetningrræðunni. „Ich bin ein
Berliner,“ sagði hann við Berlínarmúrinn.
Í ávarpi til þingsins 1963 sagði hann: „Ég
tala þess vegna um frið sem nauðsynlegt
og skynsamlegt markmið rökvísra manna
… friður í veröldinni … krefst þess ekki að
allir menn elski nágranna sinn – hann
krefst þess bara að þeir lifi saman við
gagnkvæmt umburðarlyndi … vandamál
okkar eru mannaverk – þess vegna getur
maðurinn leyst þau. Og maðurinn getur
verið eins mikill og hann vill.“
Kennedys er líka minnst fyrir fyrstu
sjónvarpskappræðurnar við Nixon 1960.
Og fyrir hinn hörmulega dauða sinn.
Kennedy var elskaður og dáður á Ís-
landi. Tíminn sagði að hann væri eiginlega
Framsóknarmaður.
Ólafur Þ. Harðarson:
Elskaður og dáður á Íslandi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson:
ofmetinn sem forseti
Ástsælasti forseti Bandaríkjanna
John F. Kennedy hefur í gegnum árin mælst
langvinsælasti forseti Bandaríkjanna í
könnunum Gallup.
Ljómandi fjölskylda
John F. Kennedy ásamt
Jackie, John og Caroline.