Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Page 20
20 umræða
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri: Kolbrún
Bergþórsdóttir ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur Guðjónsson Fréttastjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Sigurvin Ólafsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
aðalnúmer: 512 7000
auglýsingar: 512 7050
ritstjórn: 512 7010
fréttaskot
512 70 70
Heimilisfang
Kringlan 4-12, 4. hæð
103 Reykjavík
Sandkorn
Helgarblað 9. júní 2017
Ofboðslega þröng túlkun á
þessum lögum og reglum
Þórarinn Ævarsson um úrskurð Persónuverndar sem segir rafræna vöktun IKEA óheimila. – visir.is
Krafa um nýjan oddvita
Samkvæmt nýrri könnun Gallup,
sem gerð var fyrir Viðskiptablað-
ið, situr meirihlutinn í Reykjavík í
makindum og myndi fá ríflega 60
prósent atkvæða ef gengið yrði til
kosninga nú. Á sama tíma tapar
Framsókn og flugvallarvinir fylgi
en Sjálfstæðisflokkurinn heldur
sjó. Afar hörð gagnrýni minni-
hlutans hefur því ekki skilað sér
en borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknar hafa hrein-
lega farið hamförum undanfarn-
ar vikur í gagnrýni. Hefur þar
farið mest fyrir gagnrýni þeirra
á skipulagsmál, húsnæðis- og
samgöngustefnu meirihlutans.
Þær munu því væntanlega ekki
hljóðna, raddirnar innan Sjálf-
stæðisflokksins sem kalla ákaft
á að fundinn verði nýr oddviti í
stað Halldórs Halldórssonar.
Dagur í ruggustól
Þrátt fyrir að meirihlutinn héldi
velli, og raunar vel það, er hlut-
skipti flokkanna sem skipa hann
misjafnt. Þannig hríðfellur fylgi
Bjartrar framtíðar og nær ekki
þriðjungi þess sem flokkurinn
fékk í kosningum. Þá mælist
stuðningur við Samfylkinguna
um tíu prósentum minni en í
kosningunum 2014, ríflega 22
prósent nú. Það er þó nokkuð
betri staða en flokkurinn hef-
ur á landsvísu og má leiða get-
um að því að persónufylgi Dags
B. Eggertssonar hafi þar mest að
segja. Dagur hlýtur þó engu að
síður að hafa nokkrar áhyggjur af
stöðunni því yrðu þetta niður-
stöður kosninganna er alls ekki
sjálfgefið að hann geti gert tilkall
til að halda borgarstjórastólnum.
Raunar er staðan sú að þeim stól
er einna helst hægt að líkja við
ruggustól.
Sá hlær best
Það hefur hins vegar verið til-
efni til að opna einn kaldan á
heimili Lífar Magneudóttur, odd-
vita Vinstri
grænna, eftir
að könnunin
birtist. Vinstri
græn taka
risastökk og
mælast með
ríflega 20 pró-
senta fylgi,
meira en tvö-
falda kjörfylgi sitt. Líf hefur setið
undir hörðum árásum víðs vegar
frá, einkum raunar frá eigin sam-
herjum og sem hafa tengsl við
fyrri oddvita, Sóley Tómasdóttur.
Þeir hafa verið ósparir á að segja
blaðamönnum að Líf sé ekki
nógu sterkur kandídat til að leiða
listann næsta vor, án þess þó að
koma fram opinberlega. Miðað
við þetta á Líf sér líf í borginni, og
gott betur, enda hlyti hún að gera
tilkall til borgarstjórastólsins yrðu
þetta úrslit kosninganna.
Þið ástundið bara
ömurlega pólitík
Líf Magneudóttir um minnihlutann í borgarstjórn. – eyjan.is
Við Íslendingar erum heppin
þjóð á flestum sviðum
Skúli Mogensen. – dv.is
Beðið eftir strætó
A
lmenningssamgöngur á
höfuðborgarsvæðinu hafa
verið í ólestri á sama tíma
og almenningur er stöðugt
hvattur til að leggja einka-
bílnum. Það er ekki hægt að álasa
fólki fyrir að sjá engan sérstakan
ávinning í því. Mikill fjöldi er með
börn sem mun auðveldara er að
setja upp í einkabíl en strætó og svo
eru aðrir sem vilja einfaldlega keyra
sjálfir á þá staði sem þeir þurfa að
komast til. Þeir sem kjósa hins vegar
að nýta sér almenningssamgöngur,
og gleymum ekki að þetta er álitleg-
ur hópur, þarf bæði að sýna þolin-
mæði og útsjónarsemi því það er bið
eftir strætó. Og ekki skánar ástandið
á árstíma eins og þessum þegar sum-
aráætlun hefur tekið gildi. Þá er enn
lengra en áður á milli ferða á flestum
strætisvagnaleiðum með tilheyrandi
óþægindum fyrir farþega. Það er
beinlínis gert ráð fyrir að þeir dragi
úr notkun sinni á almenningssam-
göngum á sumrin. Sennilega er ætl-
ast til að þeir hjóli.
Gott almenningssamgöngukerfi
er meðmæli með þeim borgum og
bæjum sem leggja metnað í að hafa
það í lagi. Það felst ákveðin uppgjöf
í því að halda þar ekki úti góðri og
hraðri þjónustu. Fólk verður að finna
að það sé hagkvæmt og þægilegt að
nýta sér almenningssamgöngur en
því miður hefur ekki verið svo. Þess
vegna er þotið inn í einkabílinn.
Nú er hins vegar eins og menn séu
að ranka úr rotinu og tilbúnir að gefa
í, því nýlega var tilkynnt um stofn-
un Borgarlínu sem ætlað er að bæta
verulega almennings samgöngur á
höfuðborgarsvæðinu. Borgarlínan á
að styðja við strætisvagnakerfið og
ganga á 5–7 mínútna fresti á anna-
tímum. Ekki er annað hægt að segja
en að þetta sé hið allra besta mál.
Sömuleiðis lýsir það metnaði að
stefna að því að árið 2040 muni 12
prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins
velja að nýta sér almenningssam-
göngur. Nú eru um fjögur prósent
sem velja þann kost en ef fjölga á í
þeim hópi þarf ýmislegt að breytast.
Það er ekki hægt að sitja með
hendur í skauti og bíða eftir að far-
þegar láti sjá sig. Það þarf að veita
þeim góða þjónustu. Borgarlínan
er sannarlega þjónusta við íbúa en
um leið þarf að efla sjálft strætis-
vagnakerfið. Farþegar sem bíða í
vondu veðri í strætóskýli sem rúmar
einungis fáeina einstaklinga og held-
ur auk þess stundum hvorki vatni
né vindum eiga vissulega oft í erfið-
leikum með að halda í góða skap-
ið og brosið. Hugur þeirra hlýtur þá
að leita til þæginda einkabílsins. Lái
þeim hver sem vill.
Ljóst er að með tilkomu Borgar-
línunnar fá almenningssamgöngur
forgang á kostnað einkabílsins, eins
og eðlilegt hlýtur að teljast. Borgar-
samfélög víða um heim eru einmitt
að þróast í þessa átt, þar hafa menn
fengið nóg af umferðarteppu og
mengun. Við þeirri þróun verður
ekki spornað. En til að íbúarnir verð-
ir sáttir þarf þjónusta almennings-
samgangna ekki bara að vera í góðu
lagi heldur í allra besta lagi. n
Hjólað á fjöll Vinsældir fjallahjóla aukast sífellt og á sama tíma fleygir tækjabúnaðinum fram. Þessi vaski hópur hjólaði upp á topp Úlfarsfells á dögunum og sést
hér uppi á fjallinu. MynD SigTryggur ariMyndin
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Gott almennings-
samgöngukerfi
er meðmæli með þeim
borgum og bæjum sem
leggja metnað í að hafa
það í lagi.