Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Side 30
Guð
hvað
mér
líður
illa
Óður Ragnars til listarinnar
Safnsýning Ragnars Kjartanssonar var nýlega opnuð í Listasafni Reykja
víkur. Sýningin ber heitið
Guð hvað mér líður illa og
endurspeglar óð Ragnars
til listarinnar í allri sinni
dýrð, til tónlistar, leikhúss,
kvikmynda, bókmennta
og myndlistar. Það er því af
nægu að taka fyrir áhorfend
ur að njóta.
Ragnar Kjartansson fæddist
í Reykjavík árið 1976, býr hér og
starfar. Hann útskrifaðist úr Lista
háskóla Íslands árið 2001 og nam við
Konunglegu listaakademíuna í Stokk
hólmi árið 2000. Hann hefur haldið
ótalmargar einkasýningar. Ragnar
fæddist inn í leikhúsfjölskyldu og notar
gjarnan leikræn tilþrif og sviðsetningu
í verkum sínum. Rauði þráðurinn í
verkum hans er alltaf gaumgæfileg
athugun á mannlegu eðli, marglaga
tilfinningar, félagslegar víddir og hinir
mótsagnakenndu þættir sem hvers
dagslíf okkar allra samanstendur af.
Hylling listamannsins birtist í völd
um verkum, frá árinu 2004 til dagsins
í dag; lifandi gjörningum, stórum
myndbandsinnsetningum, ljósmyndum,
höggmyndum, málverkum og teikn
ingum. Hafnarhúsið verður undirlagt
verkum Ragnars og innsýn
veitt í hinn marglaga heim
sem hann hefur skapað
í áranna rás. Mörg verk
anna hafa aldrei áður verið
sýnd á Íslandi, sérstaklega
sum nýlegri verkin sem hafa
leikið lykilhlutverk í að tryggja
listamanninum sess í alþjóðlega
listaheiminum. Enn fremur
verða sýnd athyglisverð eldri
verk sem sjaldan eru til sýnis.
Sýningin er eitt viðamesta ver
kefni sem Listasafn Reykjavík
ur hefur ráðist í frá upphafi.
LífsgLaðaR
og ListRænaR
Arna Dögg
Einarsdóttir læknir
og listakonan Ingi-
björg Sigurjóns-
dóttir, eiginkona
Ragnars.
fLottuR með hatt
Ármann Reynisson sem þekkt-
ur er fyrir Vinjettu-bækurnar
er mikill áhugamaður um list.
Sumar-
tíminn
og lífið er
auðvelt
Sumarið er tíminn segir í lagi eins af ástsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar, Bubba
Morthens, sem er einmitt nýbúinn
að fagna afmæli sínu í byrjun sum
ars. Og það er svo sannarlega rétt
hjá honum, sumarið er tíminn.
Tíminn þegar fréttaveitan manns
á Facebook fyllist af myndum af
brosandi fallegum börnum sem eru
að klára skólaveturinn og hlakka
til að komast á leikjanámskeið eða
í önnur verkefni sumarsins og iðu
lega fylgja myndunum orð foreldra
sem eru að springa af monti yfir
afkvæminu.
Tíminn þegar maður dustar ryk
ið af garðhúsgögnunum og grillinu,
ekki sófaborðinu og stofuhillunum.
Tíminn þegar grilllykt og lykt af
nýslegnu grasi fyllir vitin alla daga.
Tíminn þegar maður vaknar
eldsnemma og fer seint að sofa,
enda ekki svefnfriður þegar er orðið
bjart inni hjá manni um miðja nótt
(muna að kaupa gluggatjöld).
Tíminn þegar þvottavélin er full
á mánudegi af útilegufatnaði helgar
innar, grasgrænum fótboltagöllum
og sundfatnaði.
Tíminn þegar dagatalið hjá
manni fyllist af boðum í útskriftar
veislur, afmæli og garðpartí,
tónleikum, bæjarhátíðum og fleiri
skemmtilegum viðburðum. (Því
miður bara einni utanlandsferð enn
sem komið er).
Tíminn þegar engum finnst
athugavert að kona fái sér jarðarber
og hvítvín sem hádegismat, svona
allavega um helgar.
Tíminn þegar hjörtun vakna upp
af doða vetrarins og fiðrildin fara
á flug.
Tíminn þegar lundin verður
betri, dagurinn verður bjartari og
betri.
Í haust þegar sumri lýkur sam
kvæmt dagatalinu er gott að muna
að halda sumrinu í hjarta og huga,
þá er allt miklu bjartara, einfaldara
og skemmtilegra.
Sumarkveðja, Ragna
ragna@dv.is