Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Qupperneq 60

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Qupperneq 60
36 menning Helgarblað 9. júní 2017 Óbeizlaðar hugsanir handa raunsæisfólki Jón Baldvin Hannibalsson og Bryndís Schram skrifa um Óratorrek eftir Eirík Örn Norðdahl M eð Óratorreki gerist Eiríkur Örn ókrýndur meistari hinnar óbeizluðu hugsunar í íslenskum ljóðaskáldskap. Að vísu hefur samkeppnin daprast, eftir að þá Steinar Sigurjónsson og Dag Sig- urðarson leið. Óbeizluð hugsun? Hugsun sem fer á flug – hugarflug. Engum nema meistara hugarflugs og ímyndunarafls dytti í hug að fjalla um fjörbrot kapítalismans og kebab í sömu setningunni. Það gerir Eiríkur Örn og vekur upp löngun í kebab. Engin takmörk Honum er auðvitað ekkert mann- legt óviðkomandi. Það eru bara nán- ast engin takmörk fyrir því, sem hon- um finnst mannkyninu viðkomandi. Þar er auðvitað efst á blaði viðkom- an. Með öðrum orðum offjölgunar- vandamálið. Það er bara ekki pláss fyrir allt þetta fólk. Og hnötturinn ber bara ekki fleiri konur á barneigna- aldri, fremur en fleiri offitusjúklinga á sjálflýsandi íþróttaskóm. Ekki held- ur fleiri stráka með risvandamál, sem fjölgar þó eins og dagfarsprúðum ungum mönnum á útihátíð. Það er bara ekki meira pláss. Þetta lið étur okkur út á gaddinn. Það klárar allan fiskinn í sjónum – og þarann líka. Eftir stendur svo stóra spurningin: með hverju eigum við þá að vefja súshíið? Eða fátæktin. Fyrst hin kvenlega skilgreining: Þú ert fátæk, ef þú nennir ekki að horfa á fátækt í sjón- varpinu á kvöldin. Það er nóg að vera fátæk allan daginn. Fátæklingar eru nefnilega alltaf heima hjá sér, meira að segja þeir, sem eiga hvergi heima. Gluggaumslögin halda samt áfram að rata þangað. En ef þú opnar þau ekki, þá ertu fátæk. Fyrir karlpen- inginn er skilgreiningin þessi: Fátækt er að munstra sig á skip, svo maður fái eitthvað að éta og komist ekki áfengi í nokkrar vikur. Niðurstaða þessarar sálfræðifélagspólitísku- greiningar er: Fátæklingar mæta ekki í kröfugöngur, birta ekki ljóð og hafa rangar skoðanir á eigin stöðu, kyssa á vöndinn og kjósa hægri menn. Ekki bara í Trumplandi. Líka á Engey. Þetta með ábyrgðina Svo er það þetta með ábyrgðina. Ber einhver ábyrgð á þessum ósköpum? Jú – þegar beitt er skáldlegu innsæi, er hægt að nálgast sannleikann smátt og smátt. Til dæmis bera karlarnir ábyrgð á kapítalismanum. Þeir bera líka ábyrgð á getnaðarvörnunum, eins og konurnar bera ábyrgð á fóst- ureyðingunum. Og múslimarnir bera ábyrgð á strætisvagnasprengj- unum. Alveg eins og gamlingjarn- ir bera ábyrgð á seinni heimsstyrj- öldinni, og unglingarnir bera ábyrgð á vinnuþrælkuninni í NIKE-verk- smiðjunum. Þar með er svo sem ekki öll sagan sögð: Gyðingarnir bera ábyrgð á fjár- málakerfinu, eins og konurnar bera ábyrgð á pillunni. En karlarnir eiga að ábyrgjast smokkana. Það þýðir ekkert að skorast undan ábyrgð. Konurnar bera víst ábyrgð á stuttu pilsunum, eins og karlarnir bera ábyrgð á leðurjökkunum, og múslim- arnir bera ábyrgð á höfuðbúnaðin- um. Svertingjarnir bera svo ábyrgð á rappinu. En gyðingarnir bera einir ábyrgð á Gaza. En hver ber ábyrgð á fósturjörðinni? Eiginlega enginn, síð- an Einar Ben leið. Umburðarlyndi skáldsins Og það er margt að varast, sér- staklega þar sem langt er orðið á milli ljósastaura. Svo ber auðvit- að að gæta sín á fljúgandi golfkúl- um og afgangsjarðsprengjum á hrísgrjónaekrunum. Já, það er margt að varast – ekki síst hugvíkkandi fíknilyf, þar sem langt er í sjúkrahús. En „þá kemur kannski læknir í sveitina með flugi frá Reykjavík aðra hverja viku, og hann getur tekið með sér póstinn, þegar hann fer til baka og kennt börnunum stafrófið“ – meðan hann er. Þetta segir skáldið vera „huggun harmi gegn og óþarfi að gera lítið úr því“. Í þessum punkti sýnir skáldið meira umburðarlyndi gagnvart bæklun heilbrigðiskerfisins en mannvinurinn mikli, Ofur-Kári. En þrátt fyrir allt og allt er skáldið ekki á því að gefast upp. Hann telur í okkur kjark og við tökum undir og mótmælum öll í mini-pilsum og strá-pilsum (Druslugangan) og setj- um fram skýrar kröfur byltingarinn- ar. Við mótmælum meira að segja fyrir utan Klörubar seint að nóttu, „ælandi bjór og sangríu, áður en sólin rís á frátekna bekki við sund- laugarbarinn, þar sem við rísum á ný til nýrra mótmæla“. Þótt jörðin sé að vísu „tifandi tímasprengja“, hafið orðið að fljótandi sorphaug, og vél- arnar taki brátt við af mönnunum, svo að jörðin geti að lokum losað sig við þetta hyski – þá gefumst við samt ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Bjartsýni í bölmóðnum Eins og forfaðir skáldsins, höfund- ur Völuspár, sér skáldið fyrir sér jörð rísa úr Ægi iðagræna – og Líf- ið haslar sér völl á ný. Skáldið er með öðrum orðum lausnamiðað og leyfir sér vott af bjartsýni mitt í bölmóðnum. Eða hvað eigum við að kalla þetta? „Svona ímynda ég mér betri heim. Hann brestur í söng. Samsöng byggðan á sannri sögu ótrúlegrar 18 ára einfættrar stríðs- hrjáðrar afrískrar móður sex fyrrum grimmustu barnahermanna Kongó, sem urðu síðar demantasmyglar- ar, og það hvernig draumur hennar um að sjá Velvet Revolver live á baki tvíhyrndum snípnegldum einhyrn- ingi varð að veruleika fyrir sakir töfra hópfjármagnaðra smálána. Og þú trúir því aldrei, hvað gerðist næst …“ Viðvörun: Það er óráðlegt af heilsufarsástæðum að lesa meira en eitt ljóð í einu. Það getur haft ófyrir­ séðar aukaverkanir, eins og jafn­ vægisleysi eða vott af svima – eða vantrú á framtíð mannkynsins. n Eiríkur Örn MyNd SigtryggUr Ari „Engum nema meistara hugar- flugs og ímyndunarafls dytti í hug að fjalla um fjörbrot kapítalismans og kebab í sömu setningunni. Jón Baldvin Hannibalsson Bryndís Schram M y N d S ig tr y g g U r A r i
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.