Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Síða 72
Helgarblað 9. júní 2017
39. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Þetta eru sko
gallagripir!
Ö
ll v
er
ð
er
u
bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r o
g/
e
ða
m
yn
da
br
en
gl.
Til
bo
ð
gil
da
ti
l 1
2.
jú
ní
e
ða
á
m
eð
an
b
irg
ði
r e
nd
as
t.
DAGSKRÁ BREIDD
SIRKUS ÍSLANDS:
Andlitsmálun, blöðrugerðarmaður
og önnur skemmtun kl. 13-15
EMMSJÉ GAUTI kl. 15
Sonax - Harley Davidson mótorhjól á staðnum
Bosch - sérfræðingur á staðnum kl. 12-16
Royal Canin - kynning, sérfræðingur í gæludýravörum veitir ráðg jöf
Hundaþjálfari gefur góð ráð milli 12 - 16
Snickers vinnuföt - sértilboð
Emmsjé Gauti kl. 15
BLÓMAPOTTAR - 30% GARÐHÚSGÖGN -20% SUMARLEIKFÖNG - 30%
GRILLFYLGIHLUTIR -25% REIÐHJÓLAFYLGIHLUTIR -30% TJÖLD -30%
REIÐHJÓL -20% FERÐATÖSKUR -30% ÖLL VIÐARVÖRN -25%
JÁRNHILLUR -30% SONAX -20% TRÖPPUR OG STIGAR -30%
SNICKERS VINNUFÖT -20% PLASTBOX -30% VINNUVETTLINGAR -20%
GÆLUDÝRAVÖRUR -20% BARNABÍLSTÓLAR - 25%
FJÖLDI ANNARRA TILBOÐA
GLÆSILEGIR AFSLÆTTIR!
Skoðaðu
tilboðin á
byko.is
Í verslunum BYKO
Laugardaginn 10. júní frá 12-15
Boðið er upp á grillaðar pylsur, gos og safa í
öllum verslunum. Sundpokar, buff og nammi
fyrir ungu kynslóðina.
AUÐVELT AÐ VERSLA Á BYKO.IS
SENDUM ÚT UM ALLT LAND
PALLA-
LEIKUR
BYKO
1. ÞÚ KAUPIR GAGNVARIÐ PALLAEFNI
FYRIR 50.000 KR. EÐA MEIRA
Á TÍMABILINU 1. MAÍ - 17. ÁGÚST 2017.
2. ÞÚ SKRÁIR NÓTUNÚMER OG AÐRAR
NAUÐSYNLEGAR UPPLÝSINGAR Á
www.byko.is/pallaleikur
3. ÞÚ ERT KOMINN Í POTTINN OG
GÆTIR UNNIÐ VEGLEGA VINNINGA!
Vinningshafar eru kynntir á Facebooksíðu BYKO á hverjum föstudegi frá 14. júlí.
Vertu með!
Nýr galli Lands-
bjargar
n Á nýafstöðnu landsþingi
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
á Akureyri voru lagðar fram til-
lögur að nýju útliti á fatnaði fyrir
félagsmenn. Um er að ræða fram-
tíðargalla sem uppfyllir kröfur um
sýnileika björgunarsveitarfólks
við erfið og hættuleg störf sem
þeir sinna víða um landið. Stjórn
félagsins samþykkti útlit hans á
fyrsta stjórnarfundi sínum síðast-
liðinn þriðjudag.
Á meðfylgjandi mynd má
sjá útlit á jakka, en Landsbjörg
reiknar með að fyrsti
fatnaðurinn með
nýju útliti verði
kominn í notkun á
haustdögum. Eins
og sjá má er þetta
litrík og áber-
andi flík.
Næsti bær við
himnaríki
n Eiríkur Jónsson greinir frá því
á síðu sinni að Jónas Kristjáns-
son hafi farið í Costco. Jónas
gat greinilega ekki orða bundist
eftir heimsóknina. „Þetta var
alveg frábært. Næsti bær við
himnaríki. Þarna voru alls konar
ber og ekkert skemmt. Tómatar
sem bragð var af og og epli sem
lyktuðu. Það var eins og maður
væri kominn aftur til 1950 þegar
epli voru aðeins flutt til lands-
ins fyrir jól og lyktuðu svo vel.
Ég át eitt strax og ég kom heim
og það var epla-
bragð af því.
Íslendingar
hafa allt of
lengi þurft að
borða bragð-
laus epli,”
sagði Jónas
sem er annál-
aður matgæð-
ingur.
I
nga Auðbjörg Straumland náði
þeim áfanga á dögunum að stýra
hundruðustu athöfn sinni á veg-
um Siðmenntar frá því að hún
varð athafnastjóri þar haustið 2013.
Mjög hefur aukist að fólk leiti til Sið-
menntar og fái athafnastjóra félags-
ins til að stýra athöfnum af ýmsu tagi,
svo sem giftingum og nafngiftum.
Þannig létu ríflega 170 pör pússa sig
saman hjá félaginu í fyrra, og tals-
verður hluti þeirra útlendingar.
Þegar blaðamaður heyrði í Ingu
var hún einmitt að koma frá því að
gifta erlent par í Fjaðrárgljúfri. „Sið-
mennt var nýlega búið að fá leyfi til að
standa fyrir hjónavígslum árið 2013.
Það var sendur póstur á póstlista fé-
lagsins og óskað eftir fólki til að verða
athafnastjórar, sérstaklega konum. Ég
hugsaði: Þetta er eitthvað sem ég get
gert, talað fyrir framan fólk og haldið
upp á ástina. Ég sló þess vegna til, fór
á námskeið og er núna einn virkasti
athafnastjóri Siðmenntar.“
Þeir sem kjósa að nýta sér þjón-
ustu Siðmenntar geta ýmist beðið
um ákveðna athafnastjóra eða ósk-
að eftir þjónustu óháð því hver
veitir hana. Inga segir að flestar
athafnir sem hún kemur að komi
í gegnum ferðaþjónustufyrirtækið
Pink Iceland, sem sérhæfir sig í
ferðaþjónustu við hinsegin fólk en
er einnig eitt stærsta brúðkaups-
skipulagsfyrirtæki landsins, fyrir
bæði hinsegin pör og gagnkyn-
hneigð.
Inga hefur fyrst og fremst gefið
fólk saman en einnig hefur hún gef-
ið börnum nöfn og leitt eina ferm-
ingarathöfn. Hún hefur enn ekki fylgt
fólki til grafar. „Mín sérstaða sem
athafnastjóra er að vera fyndin og
skemmtileg og það eru kannski ekki
alveg sterkustu hæfileikarnir við þær
aðstæður. Það er samt þannig að það
eru fjölskyldur þar sem ég hef gefið
saman fólk og nefnt börn og ég mun
að sjálfsögðu sjá um útfarir í slíkum
tilvikum, ef til kemur.“ n
Hefur stýrt 100 athöfnum
Inga Auðbjörg gefur fólk saman með húmor og skemmtilegheitum
Heldur upp á ástina Inga Auðbjörg hefur gefið saman hátt í hundrað pör með gleðina og
glettnina að vopni. mynd sIgtryggur ArI