Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Page 20
20 umræða
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurvin Ólafsson ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur Guðjónsson
aðstoðarritstjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
aðalnúmer: 512 7000
auglýsingar: 512 7050
ritstjórn: 512 7010
fréttaskot
512 70 70
Heimilisfang
Kringlan 4-12, 4. hæð
103 Reykjavík
Sandkorn
Helgarblað 4. ágúst 2017
Þórólfur og Costco
Þórólfur Gíslason, kaupfélags-
stjóri á Sauðárkróki, er ekki að-
eins stórtækur á fjölmiðlamark-
aði gegnum eignarhlut sinn í
Morgunblaðinu, heldur verður
kaupfélagið undir hans forystu
einn stærsti hluthafi Haga með
því að stór hluti kaupverðsins
á Olís fólst í útgáfu hlutabréfa
til Kaupfélags Skagfirðinga og
Samherja. Þórólfur er því orðinn
stór keppinautur kaupfélags-
ins Costco sem slegið hefur í
gegn hjá íslenskum neytendum
að undanförnu og hefur valdið
gífur legu verðfalli á bréfum í
Högum.
Óánægja hjá Icelandair
Icelandair er klárlega í vanda.
Hlutabréf félagsins lækka enn og
markaðurinn virðist ekki lengur
hafa trú á æðstu stjórnendum.
Sagt er að heitt sé orðið undir for-
stjóranum Björgólfi Jóhannssyni,
sem segir þó þeim sem heyra
vilja að staða félagsins til lengri
tíma sé björt.
Litla-Kaupþing
Ármann Þorvaldsson hefur heldur
betur tekið til óspilltra málanna
sem nýr forstjóri Kviku. Á stutt-
um tíma hefur bankinn samein-
ast Virðingu og á miðvikudag
var tilkynnt um yfirtöku á Öldu-
sjóðum. Gárungar kalla Kviku
nú Litla-Kaupþing, því margir af
lykilstjórnendum bankans voru
áður starfsmenn stærsta banka
þjóðarinnar og ætla sér stóra
hluti á komandi misserum og
árum.
Að flokka börn
Í
kosningabaráttunni fyrir síð-
ustu borgarstjórnarkosningar
voru oddvitar Framsóknar-
flokksins sakaðir um andúð
í garð múslima. Ekki vildu þeir
kannast við að svo væri og þá-
verandi formanni flokksins, Sig-
mundi Davíð Gunnlaugssyni, var
jafn misboðið og þeim. Ef þessar
ásakanir voru tilefnislausar með
öllu hefði mátt búast við að borg-
arfulltrúarnir myndu gæta sín
á því að haga orðum sínum um
múslima og flóttamenn eftirleið-
is á þann hátt að þau yrðu ekki
misskilin. Nýlega talaði Svein-
björg Birna Sveinbjörnsdóttir,
oddviti Framsóknarflokksins, í
útvarpsviðtali um sokkinn kostn-
að vegna flóttabarna. Hún gældi
síðan við hugmynd um að stofna
sérskóla fyrir börn flóttafólks. Af
samhengi orða hennar varð ekki
ráðið að umhyggja fyrir þess-
um börnum væri henni ofarlega
í huga.
Illu heilli þagði áhrifafólk í
Framsóknarflokknum þunnu
hljóði í síðustu borgarstjórnar-
kosningum þegar frambjóðendur
flokksins voru sakaðir um andúð
á múslimum og virtist þannig vera
að leggja blessun sína yfir orð sem
aldrei hefðu átt að falla. Vegna
þessa hefur vondur stimpill loðað
við Framsóknarflokkinn, sem er
ekki sanngjarnt því þar er innan-
borðs gnægð af vel meinandi og
upplýstu fólki. Þarna eiga sömu
lögmál við og í skólastofunni, það
þarf ekki nema örfáa villinga til að
koma óorði á allan bekkinn.
Guðfinna Jóhanna Guðmunds-
dóttir, borgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, virðist hafa hlustað á þá
gagnrýni sem hún og stallsystir
hennar fengu á sínum tíma. Hún
hefur stigið fram og sagst vera
ósammála Sveinbjörgu Birnu.
Hið sama hefur hinn öflugi stjórn-
málamaður Lilja Alfreðsdóttir
gert, auk margra annarra áhrifa-
manna í Framsóknarflokknum.
Vitaskuld mislíkar þessu fólki að
flokkssystir þeirra tali andvarp-
andi um kostnað vegna barna
flóttafólks.
Það ætti að vera erfitt fyrir
alla þá sem varðveita mennsku
að horfa upp á börn í neyð. Það
á ekki að vera til flokkun á börn-
um þar sem útlendu börnin eru
talin ómerkilegri en þau íslensku
og afgreidd sem íþyngjandi baggi
í þjóðfélaginu. Vill fólk virkilega
fara í þann gír að reikna útlagðan
kostnað vegna barna flóttafólks
og kvarta svo og kveina undan
honum? Og góla síðan að það
væri hægt að hjálpa svo og svo
mörgum íslenskum börnum sem
búa við fátækt með því að sleppa
því að sinna útlendu börnunum.
Í málflutningi eins og þessum eru
flóttamennirnir og börn þeirra
nánast afgreidd eins og séu þau
sníkjudýr á íslensku samfélagi.
Með öllum ráðum þarf að
berjast gegn þessum viðhorfum.
Okkur ber skylda til að rétta
þeim hjálparhönd sem búa við
neyð, bæði Íslendingum og þeim
útlendingum sem hingað leita
í von um betra líf. Stjórnmála-
flokkar sem viðurkenna ekki
þessa sjálfsögðu skyldu eiga von-
andi ekki eftir að ná áhrifum hér
á landi. n
Björt Ólafsdóttir – eyjan.is Páll Óskar Hjálmtýsson – mbl.is Eva María Jónsdóttir – Fréttablaðið
Ég sýndi
dómgreindarleysi
Rétt inda bar átta hinseg in fólks hætt ir ekki
þótt ég geti ekki tekið þátt í einni göngu
Ætlum við að taka afstöðu
með tungunni?
Myndin Grótta Skemmtilegt útivistarsvæði á Seltjarnarnesi og kemur fjöldi fólks þangað til að njóta sín. Hér leikur ung snót sér í fjörunni á meðan endurnar hvíla sig á grasbala.
Mynd BrynJa
„Það á ekki að vera
til flokkun á börn-
um þar sem útlendu
börnin eru talin ómerki-
legri en þau íslensku og
afgreidd sem íþyngjandi
baggi í þjóðfélaginu.
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is