Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Page 26
2 Þjóðhátíð Helgarblað 4. ágúst 2017KYNNINGARBLAÐ
Það er Þjóðhátíð og þú ert komin/nn á tjald-stæðið með tjaldið,
farangurinn, vinina og góða
skapið. En svo kemur á
daginn að það er alls ekki
allt í töskunni sem átti að
vera þar. Tjaldhælarnir urðu
eftir á borðstofuborðinu,
flíspeysan varð eftir í
þvottakörfunni á Framnes-
veginum, vasaljósið var víst
í hinni töskunni, gúmmí-
tútturnar leka og svo fram-
vegis. Þá er nú eins gott að í
Eyjum er að finna útivistar-
verslunina Eyjavík sem selur
allan helsta útivistarfatn-
að; bakpokana, brúsana,
gönguskóna, sandalana
og stuttbuxurnar, sem
nauðsynlegur er fyrir þægi-
lega útilegu og útiveru. Þar
fást líka hlý ullarnærföt og
annar funheitur fatnaður
sem gott er að smokra sér
í þegar sönglað er með
Brekkusöngnum.
Þjóðhátíð eins og jólin
Eyjavík ehf. er lítið fjöl-
skyldufyrirtæki sem rekið
er af Grétu og fjölskyldu
hennar. Síðan 2002 hefur
fyrirtækið flutt inn alls kyns
vinnufatnað, vinnuvettlinga,
sjófatnað o.fl. Í versluninni
Eyjavík á Vesturvegi 5 í
Vestmannaeyjum fæst,
ásamt innflutta varningn-
um, ýmis fatnaður á börn
og fullorðna á mjög hag-
stæðu verði. „Ég þá þrjú
börn og sá yngsti er 12 ára.
Á Þjóðhátíð vinna allir í
búðinni enda er brjálað að
gera. Þetta er eiginlega eins
og jólin,“ segir Gréta. Opið
er alla helgina til 18.00 en
lokað er á mánudeginum,
frídegi verslunarmanna.
Veðrið lætur ekki segja sér
hvernig það á að vera
Þess má geta að ólíkt
því sem margir halda um
verslunarmenn í Eyjum á
Þjóðhátíð, þá hækkar verðið
ekki í Eyjavík yfir hátíðina.
Þvert á móti er 30–70%
afsláttur í búðinni á ýmsum
nauðsynjavörum. „Það spáir
líka blíðskaparveðri í ár, en
það er alltaf hætta á rign-
ingu eða smá skúrum. Við
sem búum á Íslandi þekkj-
um okkar veðurfar. Það er
nefnilega sjaldan sem veðr-
ið lætur Veðurstofu segja
sér hvernig það á að vera,“
segir Gréta.
Glingrið gleður
Hvað er þó Þjóðhátíð án
skransins? Í Eyjavík fæst allt
hið helsta skran og skraut til
að skreyta sig með í daln-
um. „Þá er um að gera að
gera sér smá
ferð inn í bæ
og fjárfesta
í glingri. Það
er svo gam-
an að vera
skrautlegur
innan um
allt þetta
skemmtilega
fólk. Það
má allt á
Þjóðhátíð, svo lengi
sem það skaðar ekki aðra.
Glingrið gleður bara,“ segir
Gréta.
Eyjavík er staðsett í
Baldurshaga að Vesturvegi
5 í Vestmannaeyjum. Opið
yfir verslunar-
mannahelgina 3.–6. ágúst.
Föstudag 10–18. Laugardag
og sunnudag 13–18. Nánari
upplýsingar má nálgast á
vefverslun Eyjavíkur eyjavik.
is og á Facebook-síðunni.
Þau Sævar Hallgrímsson og Anný Aðalsteins-dóttir renndu hálfblint
út í sjóinn þegar þau tóku við
keflinu hjá Pizza 67 í Eyjum í
júlí í fyrra, rétt fyrir Þjóðhátíð
í Vestmannaeyjum. „Það var
alveg sturlað að gera enda
eru pítsur og hamborgarar hin
fullkomna máltíð fyrir svanga
þjóðhátíðargesti. Við vorum líka
með trúbadora og plötusnúða
í fyrra og virkilega skemmtilega
stemningu, bæði inni og úti í
tjaldi sem við erum með á bak
við. Núna erum við á fullu að
undirbúa aðra eins törn, ef ekki
stærri, því það virðast bara
allir vera á leiðinni til Eyja til
að taka þátt í Þjóðhátíð,“ segir
Sævar spenntur fyrir helginni.
„Veður spáin lofar aldeilis góðu
og svo er nú búið að bæta við
ferðum úr Landeyjahöfn sem
okkur skilst að rjúki út, svo það
má búast við talsverðri traffík,“
bætir Anný við.
Anný og Sævar búast við
þéttsetnum stað alla helgina,
stanslausu fjöri og fjölmörgum
sendingum út til þjóðhátíðar-
gesta. Veitingastaðurinn tekur
45 í sæti og um verslunar-
mannahelgina verður einnig
opið út í garðinn sem verður
yfirbyggður með tjaldi, en
þar eru um eða yfir 50 sæti
til viðbótar. Það verður því
sætapláss fyrir um og yfir
100 manns á Þjóðhátíð –
og veitir ekki af! „Í hvíta
tjaldinu okkar verður nóg
um að vera alla helgina.
Við verðum aftur með með
trúbadora og plötusnúð í
ár sem halda uppi stans-
lausu fjöri yfir daginn áður
en dagskráin byrjar inni í
Dal,“ segir Sævar. Það má
því búast við góðri stemningu
á Pizza 67 á Þjóðhátíð.
Mikið lof fyrir pítsurnar
„Það er annars alla jafna mikið
að gera hjá okkur fyrir utan
Þjóðhátíð, enda höfum við
fengið mikið lof fyrir pítsurnar,“
segir Sævar. Vinsælustu
pítsurnar segir Sævar vera
Pepperoni 67 og Supreme,
en annars séu mjög margir
sem velji sér sjálfir áleggið. Yfir
Þjóðhátíðina verður opnunar-
tími með örlítið breyttu sniði en
þá verður staðurinn opnaður
kl. 10 á morgnana og lokað
kl. 21 en um það leyti tæmist
bærinn og þjóðhátíðardag-
skráin hefst í Dalnum. „Þá fara
einnig margir starfsmennirnir
okkar í Dalinn að skemmta sér
og taka þátt í hátíðarhöldun-
um. Á fimmtudeginum, þegar
Húkkaraballið er, verður þó
opið til fjögur um nóttina svo
djammglaðir þjóðhátíðargest-
ir þurfi ekki að fara svangir
að sofa,“ segir Sævar. Einnig
verða heimsendingar á pítsum
yfir alla helgina. Og auðvit-
að er upplagt að koma við á
Pizza 67 á mánudeginum áður
en lagt er í 'ann með Herjólfi,
en staðurinn er
einmitt á leið flestra niður að
höfn.
Veitingastaðurinn Pizza
67 er staðsettur að Heiðar-
vegi 5, Vestmannaeyjum.
Sími: 481-1567 Nánari
upplýsingar má nálgast á
Facebook-síðu staðarins:
Pizza 67 Vestmannaeyjum.
Góð stemning á
Pizza 67 á Þjóðhátíð
Notalegur salur.
Því það gleymist alltaf eitthvað
EYjAVÍk Er mEð ALLT FYrir ÞjóðHÁTÍð, NEmA mATiNN
Flottir bakpokar sem rúma allt sem þarf yfir daginn!
Öryggið á oddinn. Endurskinsvesti og
eyrnahlífar fyrir börnin.
Gerðu þig klára/n í Eyjavík.
Það dugir ekki að vera í lekum túttum
á blautu tjaldstæði. Eykavík
selur flottar gúmmítúttur og stígvél á
hagstæðu verði.
Heimsending alla helgina.