Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Side 38
Tilefnið var gala-kvöldverður í St. Tropez í Frakklandi, þar sem fjármunum var safnað í góðgerðasamtök DiCaprio, en hann rekur samtök í eigin nafni sem safna fé til umhverfismála. Einn heppinn gestur átti til dæmis hæsta boð í kvöldverð með DiCaprio og Winslet. Madonna og Lenny Kravitz sáu um að skemmta gestun- um. Og gestalistinn var ekkert slor og á meðal gesta voru leikararnir Cate Blanchett, Emma Stone, Marion Cotillard, Tom Hanks, Jared Leto, Pené- lope Cruz, Kate Hudson, Tobey Maguire og Uma Thurman. Kvikmyndin Titanic á bráðum 20 ára afmæli, en myndin kom út þann 1. nóvember 1997. Aðalleikarar myndar- innar Leonardo DiCaprio, Kate Winslet og Billy Zane hittust nýlega og fór vel á með þeim við endurfundina. Létu gott af sér leiða Endurfundir lEiKArAnnA í TiTAnic „SySTur“ SAmEinAST AfTur í SjónvArpi Aðdáendur leikkvennanna Jennifer Aniston og Reese Witherspoon geta farið að láta sig hlakka til, því samkvæmt fréttum vestanhafs munu þær leika saman aftur í sjónvarpsseríu. Eins og aðdáendur friends vita þá léku þær systur í þeim þáttum og hafa haldið vinskap síðan. Nýja serían, sem ekki hefur fengið nafn ennþá, fjallar um morgunþætti og þá fjölmiðla sem þeir tilheyra í New York. Aniston og Witherspoon eru einnig titlaðar sem framleiðendur, Jay Carson (House of Cards) skrifar handrit og það er Michael Ellen- berg, fyrrverandi yfirmaður hjá HBO, og nýtt fyrirtæki hans Media Res, sem er titlað sem framleiðandi. Witherspoon fékk nýlega til- nefningu til Emmy-verðlauna fyrir hlutverk hennar í Big Little Lies og vann Óskar fyrir Walk the Line, auk þess sem hún fékk Óskarstil- nefningu fyrir Wild. Aniston fékk fimm Emmy-tilnefningar fyrir hlutverk sitt í Friends og vann ein verðlaun. Söngkonan Katy Perry verður kynnir á MTV-tónlistar hátíðinni þann 27. ágúst næstkomandi. Hún mun jafnframt koma fram á hátíðinni. Í fyrra var enginn formlegur kynnir og árið 2015 var Miley Cyrus kynnir. Samkvæmt „pró- mó“ myndbandi sem Perry setti á Twitter er hún gríðarlega spennt fyrir nýju hlutverki sínu. GóðiR viniR DiCaprio og Winslet ha fa haldið vinskap í gegnum árin. SKemmtiKRAftAR KvöLDSinS Lenn y Kravitz og madonna sáu um að skem mta gestum. með eiGin mynD á uppBoði Billy Zane og Kate Winslet fyrir framan mynd sem Zane málaði og var á uppboðinu. SeLD Myndin fór á 100 þúsund evrur, rúm- lega 12 milljónir íslenskra króna. Katy verður kynnir á MTV-hátíðinni ný pLAtA oG tónLeiKAfeRðALAG Perry undirbýr nú Witness-tónleikaferðalag um heiminn til að fylgja eftir samnefndri plötu, sem kom út í júní. Tónleikaferðalagið mun byrja 7. september næstkomandi í Columbus í Ohio og enda í Ástralíu 14. ágúst 2018.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.