Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Qupperneq 50
26 fólk - viðtal Helgarblað 4. ágúst 2017
vitur eftir á og sagt að það hafi
verið ýmis teikn á lofti sem maður
hefði átt að sjá. Því miður er það
samt þannig að meðan allt virðist
ganga vel, mikil umsvif eru í sam-
félaginu, tekjur opinberra aðila
og einstaklinga eru miklar og vel-
launuðum störfum fjölgar, þá er
tilhneiging til að snúa blinda aug-
anu að viðvörunarmerkjum. Lík-
lega er yfirvofandi hætta sjaldan
meiri en þegar allt virðist ganga
vel. Að sumu leyti má segja að
þetta sama sé að gerast núna.
Það eru ákveðin hættumerki sem
menn verða að taka alvarlega.“
Búin á líkama og sál
Hvernig snýr það að þér núna
að hluti af þínum eigin flokki og
þingheimi vildi á sínum tíma
draga þig fyrir landsdóm, sem
tókst reyndar ekki. Ertu búin að
fyrirgefa þessu fólki eða sérðu
kannski enga ástæðu til þess?
„Þetta var gríðarlega sársauka-
fullt og tók mig langan tíma að
jafna mig. Þetta er hluti af minni
fortíð sem ég lærði afar mikið af,
þótt þetta væri mjög erfitt.
Það var í rauninni mjög merki-
legt að fara í gegnum þessa tíma.
Ég glímdi við veikindi og var búin
á líkama og sál. Vegna veikind-
anna hafði ég hvorki getu né
löngun til að verjast þegar að mér
var sótt, ég átti einfaldlega fullt í
fangi með sjálfa mig. Ég var hins
vegar svo heppin að heilaæxlið
var ekki illkynja þó að það væri á
vondum stað og ég þurfti að fara
í erfiðar aðgerðir sem tókust vel.
Það var fyrsta heppnin sem var
yfir mér. Og fyrst gæfan hafði gef-
ið mér þetta tækifæri til að byggja
mig upp aftur, sem er ekki sjálf-
gefið, þá gat ég ekki forsmáð það
með því að dvelja í leiðindum. Ég
beindi því allri athyglinni að því
að byggja mig upp, bæði andlega
og líkamlega, og hugsaði með
mér: Ég get ekki dvalið við það
sem er að gerast í pólitíkinni. Ég
verð að einblína á sjálfa mig og
byggja mig upp. Öðruvísi geri ég
ekkert gagn, hvorki sjálfri mér né
öðrum. Og mér tókst þetta.
Núna er ég heilsuhraust og
mér líður vel. Svo fékk ég þetta
ótrúlega tækifæri, sem er ekki
sjálfgefið þegar maður er hálfsex-
tugur, að hefja alveg nýjan feril.
Ég ákvað að horfa til framtíðar
og leita á ný mið þar sem reynsla
mín og þekking gæti nýst. Ég sótti
um starf og fékk tækifæri til að
vinna innan Sameinuðu þjóð-
anna, kynntist ókunnum löndum
og eignaðist nýjan reynsluheim.“
Hafa einhverjir þeirra sem
vildu leiða þig fyrir landsdóm
haft samband við þig og beðið þig
afsökunar?
„Eingöngu Ögmundur
Jónas son. Sjálfsagt finnst mörg-
um að það sé engin ástæða til að
biðjast afsökunar á landsdóms-
málinu og gefa ekkert fyrir þá
staðreynd að rannsóknarnefnd
Alþingis komst að þeirri niður-
stöðu að ég hefði ekki gerst sek
um vanrækslu í starfi sem ráð-
herra. Í mínum huga er það ekki
léttvægt og ýmsar grundvallar-
reglur réttarríkisins voru einfald-
lega brotnar í meðferð þessa máls
á Alþingi.“
Ferskir vindar með Jóni Gnarr
Þú varst lengi borgarstjóri í
Reykjavík. Hvernig líst þér á nú-
verandi meirihluta?
„Mér líst vel á meirihlutann.
Það er ekki einfalt mál þegar
margir flokkar eru í meirihluta,
en þau halda vel saman. Þeim
eru auðvitað mislagðar hendur,
en almennt finnst mér þau halda
vel á málum og vera að gera góða
hluti. Það eru allar forsendur til
að þau haldi áfram samstarfinu.“
Þú nefndir fyrr í viðtalinu að
stjórnmálamenn ættu ekki að
sitja of lengi í sömu stöðu. Finnst
þér Dagur B. Eggertsson ekki vera
búinn að vera of lengi í pólitík?
„Nei, en sjálfsagt er hann far-
inn að nálgast það. Ég myndi
setja markið við átta ár í embætti
eins og þessu. Ég held að fólk eigi
ekki að sitja lengur. Ég var borg-
arstjóri í níu ár en fann að ég var
búin með erindi mitt eftir átta ár,
þó að atvikin höguðu því þannig
að ég gat ekki farið fyrr.“
Fylgdistu með Jóni Gnarr í
embætti borgarstjóra?
„Hann var óvenjulegur
borgar stjóri en það var líka nokk-
uð sem við þurftum á þeim tíma.
Það var líka mjög skynsamlegt
hjá honum að hætta eftir eitt
kjörtímabil og til marks um að
hann var mjög meðvitaður um
erindi sitt. Ég er ekki viss um að
annað kjörtímabil hefði verið vel
heppnað. Með Jóni Gnarr komu
ferskir vindar og hann braut upp
hugmyndir fólks um pólitíkusa.
Hann ögraði kerfispólitíkusum
og sýndi og sannaði að það er
hægt að vera í pólitík þó að mað-
ur falli ekki inn í fyrirframgefið
skapalón, og það var fínt. Þetta
var hans framlag og það var mjög
mikilvægt.“
Fyrst við erum að tala um
borgar stjóra þá kemur annað
nafn upp í hugann. Var samband
ykkar Davíðs Oddssonar alltaf
jafn kalt og það virtist vera?
„Ég get alveg hitt Davíð vand-
ræðalaust. Allir hafa eitthvað til
síns ágætis, það er enginn þannig
að hann sé alslæmur eða algóður.
Davíð hefur marga kosti sem
einstaklingur en ég er óskaplega
ósammála honum í pólitík. Fyrst
og síðast er ég afskaplega ósam-
mála þeim aðferðum sem hann
beitir í stjórnmálum. Mér þykja
þær ósvífnar.“
Það er lítið eftir af Samfylk-
ingunni. Hver heldurðu að
ástæðan sé?
„Ég er búin að vera í burtu í
mörg ár við vinnu í útlöndum. Ég
ætla ekki að koma núna og láta
eins og ég sé þess umkomin að
benda á vandann eða sökudólga,
hvort sem það eru menn eða
málefni. Mér finnst ég ekki vera í
stöðu til þess og það gerir flokkn-
um heldur ekkert gagn.“
Kannski ævisaga
Þú gegnir þessu nýja starfi í Var-
sjá í þrjú ár, hvað tekur svo við?
„Eftir þrjú ár er ég 65 ára og þá
finnst mér ekki ólíklegt að ég láti
gott heita og flytji heim í heiðar-
dalinn.“
Þú hefur átt ansi áhugaverða
ævi og séð margt. Ætlarðu ekki
með tíð og tíma að skrifa ævisögu
þína?
„Það getur vel verið. Ég held
þeim möguleika opnum að gera
það. Núna hef ég engan tíma til
að skrifa. Ég get ekki hlaupið í það
í hjáverkum. Það hefur alltaf verið
þannig að ég gef mig alla í það
sem ég er að gera hverju sinni
og um leið á það athygli mína
óskipta.“ n
„Ef fólk
er með
fordóma og
tjáir þá í orði þá
verðum við að
mæta því öðruvísi
en hjá dómstólum
Íslensk
umræða
„Stundum
finnst mér
umræðan
hérna
óþarflega
vanstillt
miðað við
umfang
vandans.“
Mynd BrynJa