Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Side 52
52 sakamál Helgarblað 4. ágúst 2017
K
risten Baxter, frá Toronto í
Kanada, taldi sig hafa fund-
ið draumaprinsinn í Brett
Ryan, 36 ára. Hann hafði
reyndar fengið dóm fyrir átta
bankarán á átta mánaða tímabili,
2007 til 2008, það síðasta framdi
hann í júní 2008. Bankaránin
hafði hann framið í gervi aldr-
aðs manns og fékk hann fyrir
vikið viðurnefnið Ræninginn með
gerviskeggið.
Saksóknari hafði á þeim tíma
farið fram á tíu ára dóm yfir Brett
en dómarinn í málinu var á önd-
verðum meiði og Brett fékk þriggja
ára og níu mánaða dóm og losn-
aði úr fangelsi árið 2011.
Léttvægar syndir
Brett og Kristen kynntust þegar
hann var laus til reynslu, þau fóru
að búa saman árið 2013 og trúlof-
uðust 2014.
Kristen vissi allt um þetta
undarlega tímabil í ævi Bretts,
sem hafði þá glímt við þunglyndi
í kjölfar sambandsslita við aðra
konu. Að mati Kristen hafði fennt
yfir þetta allt saman og hún sá
ekkert því til fyrirstöðu að hún og
Brett gengju í það heilaga í sept-
ember 2016. Stóri dagurinn nálg-
aðist óðfluga þegar hér var komið
sögu, í ágúst 2016.
Blekkingar og lygar
En Brett átti leyndar-
mál sem Kristen
mátti ekki komast
að; leyndarmál sem
móðir Bretts og
bræður þekktu til.
Reyndar hafði móð-
ir hans, Susan, hvatt
hann til að koma
hreint fram við
Kristen og leggja öll
spil á borðið fyrir
brúðkaupið.
Brett hafði nefni-
lega talið Kristen
trú um að hann
hefði útskrifast úr
háskóla en það var
ekki sannleikan-
um samkvæmt, því hann hafði
hætt námi. Síðan hafði Brett feng-
ið vinnu hjá fyrirtæki í upplýsinga-
geiranum, en verið rekinn eftir að
fortíð hans varð stjórnendum þar
ljós.
Í stað þess að segja Kristen frá
þessu öllu saman lét hann í það
skína að hann stundaði vinnu sína
heima við.
Brett settir afarkostir
Sem fyrr segir vildi móðir Bretts
að hann gerði hreint fyrir sínum
dyrum fyrir brúðkaupið og sagð-
ist myndu styðja hann fjárhags-
lega, þar til úr rættist, ef hann
gerði það. Hún setti reyndar syni
sínum afarkosti og hótaði að
upplýsa Kristen sjálf ef ekki vildi
betur.
Til þess kom þó aldrei því
Brett greip til sinna ráða með
banvænum afleiðingum.
Eftir margra mánaða
blekkingu varð ljóst að
sverfa myndi til stáls, því
Brett var ekki reiðubúinn til
að svipta hulunni af þeim
blekkingum sem hann hafði
viðhaft gagnvart Kristen.
Undirbúningur
Þann 25. ágúst, 2016, tók-
ust Brett og móðir hans á um
þetta leiðindamál á heimili
hennar. Síðar kom í ljós að
Brett hafði af einhverjum ástæð-
um gert ýmsar ráðstafanir fyrir
þennan fund þeirra.
Hann hafði falið lásboga í bíl-
skúr móður sinnar og einnig sett
upp iPad og iPhone á heimili
sínu, sennilega til að dikta upp
fjarvistar sönnun með rafrænu
fótspori, sem þó aldrei var nýtt.
Susan leist ekkert á hvert
rifrildið stefndi og hringdi í eldri
bróður Bretts, Christopher.
Þrjú morð
Brett nýtti tækifærið og náði í lás-
bogann. Hann stakk móður sína
með ör og kyrkti hana síðan með
gulu nælonreipi. Síðan beið hann
rólegur komu Christophers. Þegar
Christopher kom skaut Brett hann
með lásboganum og lenti örin í
aftanverðu höfði hans.
Brett vafði líkin inn í segldúk
og faldi þau í bílskúrnum. Að því
loknu beið hann eftir yngri bróður
sínum, Alexander. Þegar hann bar
að garði stakk Brett hann til bana
með ör.
Síðasti bróðirinn
Þriðji bróðir Bretts, Leigh, bjó hjá
móður þeirra og varð var við eitt-
hvert brambolt. Þegar hann kann-
aði hverju það sætti kom hann að
Brett standandi yfir líkinu af Alex-
ander í heimkeyrslunni.
Leigh snerist á hæli og hljóp inn
í húsið með Brett á hælunum. Inni
réðst Brett á bróður sinn sem tókst
að komast undan og náði heilu og
höldnu til nágrannanna.
Brett játaði á sig morðin þegar
lögreglan kom á vettvang. Föstu-
daginn 28. júlí, 2017, fékk Brett
Ryan þrefaldan lífstíðardóm og
getur ekki sótt um reynslulausn
fyrr en eftir 25 ár. n
Banvænn
Blekkingaleikur
n Unnusta Bretts horfði framhjá gömlum syndum n Brett skapaði nýjar
„Hún setti
syni sínum
afarkosti og hót-
aði að upplýsa
Kristen sjálf ef
ekki vildi betur
Brett og Kristen
Kristen fannst
ekki tiltökumál að
giftast dæmdum
bankaræningja.
Brett Ryan Greip til örþrifaráða í stað þess að segja sannleikann.