Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Side 58
34 menning Helgarblað 4. ágúst 2017
É
g veit að þetta hljómar svo
lítið hippalega en stefnan
er að kynna fólk fyrir tónlist
sem það gæti haft gaman af
á jákvæðan hátt – segja örstuttar
sögur af hljómsveitum og plötum
– eins og þú sitjir með góðum
vini og hann segi þér frá því sem
hann hefur verið að hlusta á,“ segir
Hlynur Benediktsson tónlistar
maður sem stendur á bak við
Garg.is nýja vefsíðu sem fjallar um
rokktónlist á breiðum grundvelli.
„Ég hef lagt upp með að hafa
þetta algjörlega fordómalaust, það
er fjallað um alla rokktónlist frá
Chuck Berry yfir í norskan svart
málm og allt þar á milli. Og þó að
einn fíli Green Day og annar fíli
Mayhem þá þurfa þeir ekkert að
vera að kýta hvor við annan. Það
örlaði svolítið á því fyrst þegar ég
byrjaði en ég hvatti fólk frekar til
þess að senda okkur greinar um
sitt áhugasvið og fletta fram hjá því
sem það fílar ekki.“
Garg.is fæddist í maí og átti
upphaflega að vera persónulegt
rokktónlistarblogg Hlyns og vina
hans en áhuginn var strax mikill
enda skortur á íslenskum vett
vangi þar sem hægt er að nálgast
tónlistarfréttir og umfjallanir. Vef
síðan hefur vaxið ört í sumar, nú
heimsækja meira en 4000 net
notendur Gargið daglega og lesa
fréttir og greinar eða skoða tón
leikadagatalið á síðunni. Fyrir
utan vefsíðuna hefur Garg haldið
utan um vikulegan rokkfrétta
pakka í útvarpsþættinum Fuzz á
Rás 2.
Enn sem komið er, er síðan
rekin að mestu leyti af Hlyni og
hjálpar kokkum hans í sjálfboða
vinnu. „Ég sé um síðuna en það er
fjöldi góðra og áhugasarmra aðila
sem koma að þessu, skrifa, taka
upp myndbönd og viðtöl. Ég hef
beðið einstaklinga um að skrifa
um eitthvað sem þeir hafa sér
fræðiþekkingu á – í staðinn fyrir
að ég sé að baula um eitthvað
sem ég hef lítið vit á – en
svo hefur fólk líka ver
ið duglegt að senda
inn greinar að fyrra
bragði. Þá yfirför
um við bara stað
reyndir og ann
að og merkjum
greinarnar svo
með nafni höf
undar. Núna er
vinnan við allt þetta
reyndar orðin slík að það
liggur beinast við að
byrja að selja auglýs
ingar bara til að hafa
upp í kostnað. Þetta er
orðið meira og stærra
en ég bjóst við og eftir
spurnin er mikil.“ n
Gargað um rokktónlist
Hlyni Ben fannst vanta vettvang fyrir umræður um rokk og stofnaði rokkfréttasíðuna Garg.is
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is „Þetta er eins
og þú sitjir
með góðum vin og
hann segir þér frá
því sem hann hefur
verið að hlusta á
Rokkari Tónlistarmaðurinn Hlynur
Ben stofnaði vefsíðuna Garg í vor fyrir
íslenska áhugamenn um rokktónlist.
B
ókaútgefandinn
Snæ björn Arngrímsson
hefur selt bókaforlagið
Hr. Ferdinand
og tengd fyrir tæki til
Politikens Forlag, eins
stærsta útgáfufyrirtækis
Danmerkur. „Mér líður
bara mjög vel með. Þetta er hár
rétt ákvörðun á hárréttum tíma,“
segir Snæbjörn um söluna.
Snæbjörn stofnaði útgáfu
fyrirtækið Bjart árið 1999 til að
gefa út fyrstu bókina um galdra
strákinn Harry Potter en færði
út kvíarnar til Skandinavíu
á nýju árþúsundi. Hann
seldi hlut sinn í Bjarti árið
2008 og einbeitti sér, ásamt
eiginkonu sinni, Susanne
Torpe, í kjölfarið að því að
byggja upp danska systurfyrir
tækið Hr. Ferdinand. Fyrirtækið
hefur verið atkvæðamikið í
Danmörku í útgáfu þýddra
skáldverka eftir höfunda á borð
við Dan Brown, Stephen King
og Elenu Ferrante.
„Þetta er búið að vera í undir
búningi frá því í desember. Al
gjörlega upp úr þurru þá kom
kona frá stóru erlendu forlagi
í heimsókn og spurði hvort við
værum til sölu. Við svöruðum
að svo væri ekki en hún bað okk
ur um að hugsa málið, svo við
gerðum það. Við höfum bæði
verið
í þessum
bransa
alla okkar
starfsævi og
við fórum að
velta fyrir
okkur hvort
við ættum ekki bara að
finna okkur nýtt sæti í leikhús
inu – ekki alltaf að sitja á sama
stað,“ segir Snæbjörn. Eftir að
ákvörðunin hafði verið tekin um
að selja fyrirtækið fóru hjón
in að líta í kringum sig og náðu
góðum samning við danska út
gáfurisann Politiken.
Voru það miklir peningar sem
fengust fyrir fyrirtækið?
„Já, þetta var alveg stórkost
lega há upphæð,“ segir Snæ
björn og hlær innilega en bætir
svo við: „Nei, ég má ekki segja
það.“
En hvað tekur við hjá
þér þegar starfi þínu hjá Hr.
Ferdinand lýkur?
„Það er að finna nýtt gott
sæti. Ég hef ekki hugmynd um
hvað ég ætla að gera. Ég læt það
bara koma í ljós. En ég er harð
ákveðinn í því að nú muni ég
prófa eitthvað annað en útgáfu
bransann.“ n
Segir skilið við útgáfubransann
Snæbjörn Arngrímsson selur Hr. Ferdinand til eins stærsta bókaforlags Danmerkur
„Við höfum bæði verið í þessum bransa alla
okkar starfsævi og fórum að velta fyrir okkur
hvort við ættum ekki að finna okkur nýtt sæti í
leikhúsinu.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
„Stórkostlega há upphæð“ Snæbjörn Arngrímsson vill ekki gefa upp hvað Politiken greiddi fyrir útgáfu-
fyrirtækið Hr. Ferdinand, en grínast með að það hafi verið „stórkostlega há upphæð.“