Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Page 72
Helgarblað 4. ágúst 2017
47. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Er Sólarsamba
nógu „hip“
fyrir Brekku-
sönginn?
Íslandsmet í
kafsundi
n Rithöfundurinn, þjóð
fræðingurinn og spurninga
höfundurinn Bryndís Björgvins
dóttir bætti um síðustu helgi enn
einni fjöður í hattinn sinn þegar
hún setti tvö Íslandsmet á fyrsta
alþjóðlega mótinu í fríköfun á
Íslandi. Fyrra metið setti Bryn
dís með því að halda niðri í sér
andanum í kafi í 2 mínútur og 57
sekúndur og það seinna þegar
hún synti heila 53 metra án þess
að koma upp til þess að anda.
„Vil þakka foreldrum mínum
sem áttu mjög stórt baðkar –
ekki segja þeim
samt frá þessu,“
skrifaði Bryn
dís á Face
booksíðu
sína eftir að
Íslandsmetin
höfðu ver
ið stað
fest af
dómar
anum.
Orðinn nógu
„hip“ fyrir lista-
spírurnar
n Svo virðist sem hafnfirski
tónlistarmaðurinn Jón Jóns
son sé loksins orðinn „hip og
kúl“ að mati listaspíra Reykja
víkur, en hann kemur fram í
fyrsta sinn á tónlistarhátíðinni
Innipúkinn í miðbænum um
helgina. Það skapaðist nokkur
umræða um hvort Jón væri
nógu „kúl“ fyrir miðbæinn und
ir lok síðasta árs, en þá upp
lýsti Jón að hann hefði sótt um
að fá að spila á Iceland Air
waves en umsókninni hafi verið
hafnað. Kollegi hans, Ingó Veð
urguð, gagnrýndi skipuleggj
endur hátíðarinnar og sagði
það greinilega
mikilvægara
að vera í réttu
klíkunni en að
vera vinsæll,
og sagði Jón
væntanlega
ekki nógu „hip
og kúl“ til að
spila á slíkri
hátíð.
Ber ábyrgð á bongóblíðunni
Hugtakið bongóblíða hefur á undanförnum áratugum fest sig í sessi sem eitt allra æðsta
stig tungumálsins yfir hið sjald
séða íslenska góðviðri. Höfundur
orðsins er Halldór Gunnarsson, en
nýyrðið smíðaði hann fyrir texta
lagsins „Sólarsamba“ sem Magnús
Kjartansson sendi í undankeppni
Eurovision árið 1988. Hann kveðst
alls ekki hafa grunað að orðið
myndi verða mikilvægur hluti af
veðurorðaforða Íslendinga 30 árum
síðar.
„Þetta var fjörugt lag, mikil
samba og sól í því. Þegar ég gerði
textann byrjaði ég á því að búa
til sviðsmyndir af góðviðrisdegi í
borginni. Þá rifjaðist upp fyrir mér
að við strákarnir fórum oft út með
gítar og bongótrommur og spiluð
um saman þegar veðrið var gott,“
segir Halldór, sem margir kannast
einnig við úr hljómsveitinni Þokka
bót. Vegna stuðlunarinnar í orðinu
passaði það sérstaklega vel inn í
sumarlegan textann: „Þetta er al
gjör bongóblíða, og básúnur og
trommur hljóma þrumuvel í dag.“
Sumarið 1988 kom svo út safn
platan Bongóblíða á vegum plötu
útgáfunnar Steinar sem innihélt
meðal annars lagið Sólarsamba og
þá jókst hróður orðsins enn frekar.
„Ég kveikti ekki á því að þetta væri
eitthvað sérstakt fyrr en fólk fór að
taka orðið upp. Þetta varð mjög
fljótlega hluti af daglegu máli. Mér
fannst það bara mjög skemmtilegt.“
Samkvæmt upplýsingum af
Tímarit.is hefur notkun orðsins í ís
lenskum fjölmiðlum aukist jafnt og
þétt frá lokum níunda áratugarins.
„Ég hef ekkert fylgst sérstaklega með
þessu, en ég tók eftir því þegar bongó
blíða var fyrst notað í veðurfréttum –
hærra verður náttúrlega ekki komist,“
segir Halldór og hlær dátt n
n Halldór Gunnarsson bjó til nýyrðið bongóblíða árið 1988„Við strákarnir fór-
um oft út með
gítar og bongótrommur
þegar veðrið var gott.
Sólarsamba Orðið kom
fyrst fyrir í lagi Magnúsar
Kjartanssonar
Halldór Gunnarsson Maðurinn sem fann upp á hugtakinu Bongóblíða. Mynd Brynja
Honda Civic er bíll sem er allt annað og meira. Hannaður sérstaklega fyrir þig.
Hann endurspeglar metnað okkar fyrir tæknilegum yfirburðum. Skemmtilegur
að keyra, öruggur, áreiðanlegur með pláss fyrir flest, þó sérstaklega – athygli!
Fullkomin blanda af krafti, sparneytni og gæðum. Komdu í heimsókn
og prófaðu meira af okkar besta til þessa.
Vatnagörðum 24-26 • 104 Reykjavík • Sími 520 1100 • www.bernhard.iswww.honda.is
Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ • Bílver, Akranesi • Höldur, Akureyri • Bragginn, Vestmannaeyjum
HONDA CIVIC
FRÁ KR. 3.130.000
N Ý O G F E R S K H U G S U N
F R Á U P P H A F I T I L E N D A