Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2017, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2017, Side 44
Afmælisbörn vikunnar Guðbergur Bergsson Rithöfundur og samfélagsrýnir. 16. okt. 1932. Hjálmar Örn Jóhannsson Skemmtikraftur og snapchat-stjarna. 19. okt. 1943. Friðrik Sophusson Fyrrverandi ráðherra og forstjóri. Fæddur 18. okt. 1943. 85 ára 74 ára44ára Vel mælt „Við störfum fyrir daginn í dag, gærdagurinn er farinn, morgundagurinn er ekki runninn upp. Við höfum einungis daginn í dag. - Móðir Teresa Orðabanki Birtu Heimska -u KVK það að vera heimskur, vitsmunaskortur Íslensk orðsifjabók lýsir orðinu heimska svona: heimskur l. ‘vitgrannur, fávís’; sbr. sæ. máll. hemmsk ‘hræddur, huglítill’, fd. hemsk (s.m.), sbr. nno. heimen ‘einfaldur’; eiginlega ‘heima alinn > reynslulítill’. Sbr. fhþ. heimisc, nhþ. heimisch ‘sem heyrir til heimkynnunum, innlendur. samheiTi andhælisskapur, asnaskapur, aulaháttur, aulaskapur, axarskaft, álfaskapur, bjálfaskapur, bjánaskapur, dáraskapur, einfeldni, fábjánaháttur, fábjánaskapur, fáráðlingsháttur, fáráðlingsskapur, fásinna, fáviska, fávísi, fíflska, fíflskapur, fjarstæða, flónsháttur, flónska, flónskupör, fólska, gáfnaskortur, glappaskot, glópska, grunnhyggni, græningjaháttur, grænka, hálfvitaháttur, hálfvitaskapur, heimskupör, hyggjuleysi, kjánaskapur, nautska, óhyggni, ókænska, óráð, óskynsemi, ósnilli, óviska, óviturleiki, rataskapur, ráðleysi, sálarþynnka, skynsemdarleysi, vanhyggja, vanviska, vanvit, vitgrenni, vitleysa, vitsmunaskortur, þynnka skynsemi HEIMSKA: ÞEGAR VItS ER ÞöRf Orðið úr Orðabanka Birtu þessa vikuna er ættað úr germönsku. Flestir nota það yfir fólk sem skortir vitsmuni en á vísindavefnum svarar próf. Guðrún Kvaran spurningunni um uppruna orðsins með eftirfarandi hætti: Orðið heimskur ‘vitgrannur, fávís’ er náskylt orðunum heim ‘(í átt) til heimkynna’ og heima ‘heim- kynni, heimili’ og ‘í heimkynnum sínum’. Orðið heimskur þekkist allt frá fornu máli. Ekki þótti það karlmannlegt að sitja alltaf heima og fara ekkert. Í Hávamálum stendur (5. erindi): Vits er þörf þeim er víða ratar dælt er heima hvað. Dælt merkir þarna ‘auðvelt’, það er auðvelt að halda sig heima en vit er nauðsynlegt ef fara á víða. Heimskur er þá upphaflega sá sem heldur sig heima við og aflar sér ekki þekkingar á ferðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.