Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Side 30
Vikublað 20. október 2017 6
Langflest stofnum við til langvarandi ástarsambands við annan einstakling ein-
hvern tíma á ævinni. Algengast er
hér á landi að til slíkra sambanda sé
stofnað nokkuð snemma á meðan
víða annars staðar sé algengara að
fólk festi ekki ráð sitt fyrr en það
tekur að nálgast þrítugt eða síðar.
En hvað er það, sem gerir það að
verkum að við löðumst frekar að
einum einstaklingi en öðrum?
Sumir segja að þar ráði „efnafræði“
mestu, aðrir segja að „sálrænir/
sálfræðilegir“ þættir ráði meiru og
enn aðrir segja að skynsemi eða
praktísk hugsun ráði mestu.
Vafalaust eru til fleiri hugmyndir
um það hvað stjórnar því með hvaða
einstaklingi við stofnum til ástar-
sambands og með hverjum ekki.
Líklegast er að um samspil margra
þátta sé að ræða. Nýjar rannsóknir
segja okkur að efnafræðin kemur
eitthvað við sögu alveg eins og hjá
dýrunum. Sálfræðin hefur komið
fram með kenningar um að styrkur,
sjálfstraust, framkoma og hegðun
ráði þarna allnokkru og einnig er
líklegt að mjög margir einstaklingar
láti skynsemi og praktísk sjónarmið
hafa áhrif á val sitt.
Hvað sem líður ástæðunum
er alveg ljóst, að því fer fjarri að
öll ástarsambönd haldi til lengri
tíma eða alla ævina. Hér á landi
hefur sýnt sig að hátt í helmingur
hjónabanda heldur ekki og lang-
flestir stofna til nýrra sambanda
eftir skilnað. Á undanförnum
árum hefur umræðan um fjölgun
hjónaskilnaða vaxið og ýmislegt
hefur verið gert til þess að gefa fólki
kost á að efla hjónabandið eða sam-
búðina. Tilgangurinn er þá fyrst og
fremst sá að fækka skiln uðum og
að viðhalda góðu sambandi lengur.
Nægir þar að nefna fjölda nám-
skeiða og fyrirlestra um efnið.
Krafan um gott kynlíf
Flestir líta svo á að gott kynlíf sé
mikilvægt til að viðhalda góðum
samböndum. Það er þó til að sam-
bönd haldist árekstralítil og að pör
séu vel samheldin án þess að kynlíf
sé mikið stundað eða það mjög
fullnægjandi fyrir annan eða báða
aðila. Krafan um gott kynlíf fer þó
vaxandi í hinum vestræna heimi og
þar á meðal hér á landi.
Öll ástarsambönd og þar með
talið hjónabönd og sambúðir
byggja á því í upphafi að kynlíf
sé til staðar. Einnig held ég að í
langflestum þeirra sé það nokkuð
fullnægjandi í byrjun. Líklegast þó
hjá mörgum, vegna þess að ýmis-
legt annað gerir það að verkum að
krafan um fullnægjandi kynlíf er
önnur í upphafi sambanda en þegar
líður á þau. Mér sýnist að margir
afsaki það að kynlífið sé ekki alveg
fullnægjandi í upphafi og telji að
það muni batna eða ganga betur
þegar líður á sambandið. Í sumum
tilvikum batnar það líka, en í
mörgum tilvikum gerist það ekki.
Ef kynlífið verður ekki fullnægj-
andi gera sumir minni kröfur til
þess og sætta sig við það eins og það
er, einkum ef margir aðrir þættir
í sambandinu eru góðir. Þó eru
einnig til aðrar ástæður fyrir því að
krafan um gott kynlíf minnkar, eins
og t.d. ótti við skilnað, lítið sjálfs-
traust, meðvirkni o.fl. Aðrir geta
ekki sætt sig við að kynlífið verði
ekki fullnægjandi. Þeir leita sér þá
aðstoðar, leita út fyrir sambandið
eða skilja. Mér virðist sem þeim
fari stöðugt fjölgandi, sem leita sér
aðstoðar við að gera kynlíf sitt betra
og til að fá meiri fullnægju út úr því.
Fólk á öllum aldri og stundum með
margra ára sambönd að baki leitar
sér aðstoðar í kynlífi.
Kynlíf er tegund af samskiptum
Kynlíf er stundað í sameiningu og
til þess að það sé fullnægjandi þurfa
báðir aðilar að njóta þess. Frum-
forsendan fyrir nautn er slökun.
Einskis er hægt að njóta án þess að
slaka á og taka á móti. Neikvæðar
hugsanir, spenna, erfiðleikar, kvíði,
ótti, áleitnar hugsanir, stöðugar
vangaveltur, hugsanir um hvað aðrir
haldi um mann og margt fleira
veldur streitu, sem kemur í veg fyrir
nautn á öllum sviðum. Ekki hvað
síst í kynlífi eða í því að njóta sam-
vista í sambandi, sambúð eða hjóna-
bandi almennt. Allt þetta og meira
til getur valdið því að kynlíf er ekki
fullnægjandi í upphafi sambands, en
einnig þegar líður á samband.
Öll samskipti hafa tilhneigingu
til að festast í ákveðnu fari. Það
verða til ákveðin „norm“, sem fyrst
og fremst er ætlað að auka öryggi í
samskiptunum. Til þess að fólk viti
hvar það hefur hvert/hvort annað.
Svo ekki þurfi stöðugt að velta fyrir
sér hvað hinn/hinir séu að meina
eða hvert þeir séu að fara með hegð-
un sinni. Þannig er það líka með
kynlífið. Það hefur tilhneigingu til
að verða alltaf eins. Jafnvel þótt okk-
ur finnist að við lifum góðu kynlífi.
Í sjálfu sér er ekkert við það að
athuga, en langflestir hafa þó þörf
fyrir að brjóta líf sitt upp öðru
hvoru. Ögra „normunum“. Við
setjumst í stól við matarborðið/í
matsalnum, sem „annar á“, leggj-
umst þeim megin í rúmið sem
makinn er vanur að vera, breytum
uppröðun húsgagna íbúðinni,
förum aðra leið í vinnuna, skiptum
um vinnu, hegðum okkur „barna-
lega“ á almannafæri o.s.frv. Sama
þörfin gerir vart við sig í kynlífi, ef
það er orðið fast og fylgir fyrirfram
þekktum reglum hjá parinu. Þegar
svo er komið má segja að þó það sé
gott, sé það ekki fullnægjandi. Við
höfum þörf fyrir að brjóta það upp,
gera eitthvað annað og öðruvísi.
Megum við ekki segja
frá órum eða löngunum?
Þó hefur lítið mátt ræða þessi
samskipti. Það hefur talist dónalegt
eða rangt. Það er því sveipað dulúð
og veldur þannig oft erfiðleikum.
Skortur á umræðum veldur bábiljum,
sem svo valda erfiðleikum. Við eigum
að standa okkur í kynlífi í stað þess
að njóta þess. Við eigum að fullnægja
hinum aðilanum í stað þess að sjá til
þess að við sjálf séum fullnægð. Við
megum ekki segja hvað við viljum í
kynlífi því það gæti virst klámfengið
eða komið upp um sóðalega kynóra
eða eitthvað enn verra.
Konur mega ekki vera of
ágengar því það gæti „slökkt“ á
manninum eða gefið honum í
skyn að hann sé ekki „karlmaður“.
Maðurinn má ekki vera of ágengur
því það gæti gefið í skyn að hann
taki ekki tillit til konunnar. Svona
mætti lengi telja upp bábiljur, sem
tengjast kynlífi en ekki öðrum
samskiptum parsins. Sjúkdómar
og slys geta einnig haft áhrif á
það að samskipti pars þurfa að
breytast og það hvernig parið getur
stundað kynlíf. Í tengslum við slys
og sjúkdóma hafa einnig myndast
alls kyns bábiljur, sem valda því að
nauðsynlegt er að ræða saman um
samskipti og framhald kynlífs hjá
pari sem í slíku lendir.
Samræður eru nauðsynlegar
Til þess að viðhalda góðu ástar-
sambandi og góðu kynlífi er því
nauðsynlegt að ræða saman um
sambandið, samskiptin og kynlífið.
Við þurfum að gefa okkur tíma til
að setjast niður og segja hvort öðru
frá löngun okkar, hugmyndum,
væntingum og viðhorfum til sam-
bandsins, samskiptanna og kynlífs-
ins. Við þurfum einnig að gera það
sem okkur langar til að gera til að
brjóta upp, endurnýja og örva sam-
bandið og kynlífið. Við þurfum þar
af leiðandi að gefa hvort öðru leyfi
til að koma fram með hugmyndir
bæði í orði og í athöfnum. Það hef-
ur svo í för með sér að við þurfum
líka að hafa leyfi til að hafa eigin
skoðun og hafna hugmyndum hins
aðilans, ef okkur sýnist svo. Frelsi
til að hafa eigin frumkvæði ásamt
frelsi til að hafna er nauðsynlegt í
öllum samböndum, ef okkur á að
líða vel í þeim. Einmitt þess vegna
er svo nauðsynlegt að geta rætt
saman um alla hluti.
Alltof oft er það þannig að aðeins
eru ræddir slæmir hlutir. Þegar
eitthvað er að. Hins vegar gefum við
okkur of sjaldan tíma til að ræða
saman um hvað okkur líður vel
saman, hvað er gott í sambandinu.
Hrósa makanum og okkur sjálfum
við makann. Þegar við ræðum
um vandamál fylgir því ákveðinn
alvöruþungi og oft er hætta á að
samræðurnar byggist á ásökunum
og rifrildi. Þegar við ræðum um
góða hluti, hrósum hvort öðru
og ræðum um vellíðan, fylgir því
slökun og uppbygging. Ef samræð-
ur verða of einhliða um vandamál
verður því alvöruþungi, ásakanir og
rifrildi einkennandi í sambandinu. Í
sambandi, sem einkennist of mikið
af slíkri neikvæðni, getur verið erfitt
að stunda gott kynlíf. Spennan er of
mikil í sambandinu.
Í mörgum samböndum verður
gott jafnvægi á milli alvöruþrunginn-
ar umræðu og afslappaðrar uppbyggi-
legrar umræðu. Ef svo er ekki þarf
meðvitað að sjá til þess að jafnvægi
náist. Ekki má sleppa alvöruþrungn-
um samræðum. Slíkt leiðir eingöngu
til þess að parið forðast vandamál.
Það má ekki heldur sleppa afslapp-
aðri og uppbyggilegri samræðu. Slíkt
leiðir til spennu í sambandinu og
niðurbrots. Ég hef grun um að það
sé algengara að það vanti þessa síðar
nefndu umræðu í sambönd.
Opin umræða leiðir til betra kynlífs
Að setjast saman að kvöldi, slökkva á
sjónvarpinu, símanum og tölvunni,
hita gott kaffi eða opna góða rauð-
vínsflösku, setjast niður í góða stóla
eða sóffa við kertaljós í notalegu
andrúmslofti er góð leið til þess að
opna góða og uppbyggilega sam-
ræðu, sem síðan getur gjarnan leitt
til góðs kynlífs. Einnig getur verið
gott að fara saman í gott freyðibað,
fara í góðu veðri í notalega kvöld-
göngu eða skreppa saman í bíltúr eða
gönguferð út fyrir skarkala bæjarlífs-
ins. Slíkt leiðir gjarnan til ánægju-
stunda. Vinna saman í garðinum, að
matargerð eða undirbúningi veislu.
Fara saman út að borða, í leikhús
eða bíó, á tónleika eða á listsýningar.
Allt er þetta vel til þess fallið að vera
aðdragandi að góðri, uppbyggilegri
og afslappaðri samræðu parsins.
Leggið áherslu á slökun
og lengið forleikinn
Þegar kemur að kynlífinu þarf
einnig oft að hjálpa meðvitað til
með því að leggja áherslu á slökun.
Það er hægt að gera með því að
lengja forleikinn, nota meðvitað
gæluorð og gælur. Leggja áherslu
á að líkaminn er miklu meira en
bara kynfærin og brjóstin. Víða um
líkamann leynast staðir, sem örva
kynferðislega löngun. Hjálpa hvort
öðru til að finna þessa staði. Gefa
hvort öðru kost á að slaka á, án
þess að þurfa að gefa gælur á móti
í nokkrar mínútur. Hefja forleikinn
um miðjan dag í almennum sam-
skiptum. Hefja forleikinn saman
í sturtu eða baði. Hefja forleikinn
í samræðum við kertaljós, ljúfum
gönguferðum eða við að njóta list-
viðburða. Svona mætti lengi telja.
Forleikur í kynlífi, sem stendur í
45–90 mínútur eða lengur, gefur
miklu dýpri fullnægingu, en for-
leikur, sem aðeins stendur í 5–10
mínútur og er eingöngu til þess
fallinn að gera báða aðila líkamlega
færa um stunda samfarir.
Meginatriðið við að viðhalda
góðu ástarsambandi og góðu kynlífi
er sem sagt það að vinna meðvitað að
því í stað þess að láta allt ganga sinn
vanagang og vona hið besta.
Frekari fróðleik um
kynlíf og góð samskipti er að
finna á vefnum doktor.is
Kynlíf er ein tegund samskipta og samskipti eiga það til að festast í sama farinu
Að viðhAldA góðu ástAr-
sAmbAndi og góðu kynlífi
„neikvæðar
hugsanir,
spenna, erfiðleikar,
kvíði, ótti, áleitnar
hugsanir, stöðugar
vangaveltur, hugsanir
um hvað aðrir haldi
um mann og margt
fleira veldur streitu,
sem kemur í veg fyrir
nautn á öllum sviðum.
Takið ykkur Tíma Að setjast saman að kvöldi, slökkva á sjónvarpinu, símanum og tölvunni, hita gott kaffi eða opna
góða rauðvínsflösku, setjast niður í góða stóla eða sóffa við kertaljós í notalegu andrúmslofti er góð leið til þess að opna
góða og uppbyggilega samræðu, sem síðan getur gjarnan leitt til góðs kynlífs.