Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Side 60
36 menning Helgarblað 20. október 2017
Þ
að er augljóst að kvik-
myndahúsagestir tengja
vel við þær heiftúðugu ná-
grannaerjur sem stigmagn-
ast og enda með ósköpum í Undir
trénu. Yfir 30 þúsund manns hafa
séð þessa nýjustu mynd leikstjór-
ans Hafsteins Gunnars Sigurðs-
sonar frá því að hún var frumsýnd
í byrjun september.
Myndin er fjölskyldudrama með
óþægilega sótsvörtum kómískum
undirtónum. Þar fléttast saman
tvær sögur, önnur um forræðisdeilu
ungs pars sem hefst þegar konan
stendur kærasta sinn að því að
horfa á gamalt kynlífsmyndband af
sjálfum sér og fyrrverandi kærustu.
Ungi maðurinn, leikinn af Steinþóri
Hróari Steinþórssyni, neyðist til að
flytja tímabundið aftur á æskuheim-
ili sitt í Hvassaleitinu, en þar lifa for-
eldrar hans, leiknir af Eddu Björg-
vinsdóttur og Sigurði Sigurjónssyni,
enn í skugga hörmulegs fráfalls eldri
sonar síns. Á sama tíma eiga þau í
heiftúðugum deilum við nágranna
sína sem vilja að veglegt og skugg-
sælt tré í garði þeirra verði fellt.
Það er rit- og handritshöfund-
urinn Huldar Breiðfjörð sem skrif-
aði handritið ásamt Hafsteini, en
hann skrifaði einnig handritið að
síðustu mynd leikstjórans, París
norðursins. Samstarf þeirra hófst
fyrst þegar þeir voru báðir í kvik-
myndanámi í New York um miðj-
an fyrsta áratug þessarar aldar og
Undir trénu á rætur sínar að rekja
allt til þess tíma.
Innblásinn af hæstaréttardómi
Hugmyndin að Undir trénu
fæddist fyrir um áratug, árið 2007,
þegar Huldar og Hafsteinn Gunn-
ar voru að leita sér að spennandi
sögu til að kvikmynda eftir að þeir
höfðu báðir lokið kvikmyndanámi
í Bandaríkjunum.
„Á þessum tíma vorum við svo-
lítið að flýta okkur að finna góðan
efnivið. Við vildum ráðast í að gera
bíómynd og láta það gerast hratt,“
segir Huldar.
„Ég talaði við félaga minn sem
var að kenna lögfræði við Háskól-
ann og spurði hann hvort hann
myndi eftir einhverjum skemmti-
legum málum sem væri hægt að
nota sem innblástur. Hann benti
mér á nokkur áhugaverð mál og
þar á meðal nágrannadeilu um
runna, deilu sem hafði farið alla
leið í Hæstarétt. Það fór ekkert af
þessu tiltekna máli inn í söguna
okkar en það sem kom mér í gang
var að sjá hvernig frekar venju-
legt úthverfafólk – að því er virtist
– breyttist bara í algjöra brjálæð-
inga á augabragði. Mér fannst
merkilegt hversu hratt deilan stig-
magnaðist og hvað það virtist vera
svakalega mikil heift í henni. Ég
hugsaði að það hlyti að liggja eitt-
hvað annað að baki – eitthvað
meira en þessi eini runni. Þegar
ég fór að velta þessu fyrir mér fóru
fyrstu persónur sögunnar fljótlega
að koma til mín,“ segir Huldar.
„Á þessum tíma vorum við hins
vegar með nokkur önnur verkefni
í pípunum og fljótlega sáum við
að þessi efniviður krefðist eflaust
meiri tíma en við ætluðum að
nota í verkið og því lögðum hug-
myndina til hliðar.“
Kunnum ekki að vera ósammála
Huldar segir hins vegar að sagan
hafi haldið áfram að mallast og
þróast í huga hans næstu árin:
„Þegar svona hugmynd hefur
fæðst þá fer maður að rekast á hana
hér og þar, taka eftir henni úti um
allt. Við vorum nýkomnir úr námi
erlendis og sáum íslenskt samfélag
að vissu leyti með nýjum augum.
Við urðum fljótlega frekar upp-
teknir af því hvað allt var logandi í
deilum í samfélaginu, nágranna-
erjur voru reglulega að blossa upp
í fjölmiðlum og það voru forræðis-
deilur víða í kringum okkur. Þetta
voru ágengar deilur frekar en ein-
hverjar gæfulegar rökræður.“
Má ekki segja að deilurnar í
myndinni séu að miklu leyti til
komnar vegna þess að það er ekki
tekist á við vandamálin, það er
ekki talað um þau og ekki unnið úr
áföllum – þannig að í raun ganga
þau aftur og ásækja fólk?
„Jú, ef málin eru ekki kláruð al-
mennilega þá hafa þau tilhneig-
ingu til að koma hressilega til
baka. Þess vegna er slæmt hvað
við erum oft léleg í að vera ósam-
mála og rökræða málin. Maður sér
þetta til dæmis núna þegar stytt-
ist í kosningar, við erum alltaf í
einhverri heift. Þetta er allt önnur
menning en til dæmis í Englandi
þar sem það er mikið sport að rök-
ræða, fara í fínlegar skylmingar
með kjaftinum. Hérna heima för-
um við frekar í að fella manninn
og stinga beint í hjartað – bara eins
í Íslendingasögunum,“ segir Huld-
ar.
„Það er eflaust hægt að yfir-
færa umræðuna á Facebook jafnt
sem Alþingi á myndina. Ég held
því bara opnu fyrir áhorfendur fyr-
ir hvað tréð stendur fyrir, þeir geta
ákveðið sjálfir hverju þeir vilja
skipta trénu út fyrir.“
Huldar segir það hafa verið
flókið að koma inn öllum þeim
sögum og vinklum sem þeir vildu
í þröngt form kvikmyndahandrits-
ins en það hafi þó hjálpað að hafa
tréð sem þungamiðju í verkinu.
Hann segir að fyrir hann persónu-
lega hafi þó verið erfiðast að skrifa
senur þar sem mamman, leik-
in af Eddu Björgvinsdóttir, var at-
kvæðamikil. „Það er svo mikill
tregi og harmur í kringum þessa
persónu. Eftir að ég var búinn með
sumar senur með henni var ég al-
veg búinn á því. Að sama skapi var
ótrúlega gefandi að vinna með
hana og gaman að skapa svona
sterka kvenpersónu. Svo tóku leik-
stjórinn og Edda þetta náttúrlega
upp á annað „level“.“
Handritshöfundar ættu að
lesa Íslendingasögurnar
Huldar segir það hafa verið
skemmtilega upplifun að fylgjast
með áhorfendum á frumsýn-
ingunni engjast um á myndinni
enda er húmorinn oft kaldur og
nístandi: „Maður heyrir það á
hlátrinum að myndin færir fólk
mjög hressilega úr stað. Þegar líð-
ur á hana fer að koma fram eitt-
hvert taugaveiklunarfliss sem er
allt að því óviðeigandi. Þá veit
maður að myndin er farin að
skrúfa sig inn í fólk.“
Hann segir að markmiðið hafi
fyrst og fremst verið að skrifa
dramatíska mynd og þó að hinir
kómísku undirtónar séu vissulega í
handritinu hafi það verið leikstjórn-
arleg ákvörðun Hafsteins Gunnars
að draga fram hinn sótsvarta húmor
í myndinni. „Okkur langaði alltaf
til að gera svolítið dramatískari og
átakameiri sögu en við höfðum
áður gert, til dæmis í lokaverkefni
Hadda í New York, í sjónvarpsseríu
sem við höfðum skrifað saman og
París norðursins. Það sem ég gerði
á meðan ég var að skrifa hand-
ritið var að leggjast svolítið yfir Ís-
lendingasögurnar. Þar erum við
með 40 sögur sem fjalla margar að
miklu leyti um nágrannaerjur. Það
er til dæmis hægt að benda á Eyr-
byggju eða húskarlavígin í Njálu.
Þar er líka áberandi hvað deilurn-
ar eru oft ótrúlega slóttugar og and-
styggilegar – hvað karakterarnir
ganga langt og beita illkvittnisleg-
um aðferðum til að koma hinum
aðilanum úr jafnvægi. Í harmræn-
unni allri í Íslendingasögunum er
því líka mjög svartur tónn og ég
held að hann hafi að einhverju leyti
skilað sér inn í handritið.“
Það er áhugavert að þú hafir sótt
innblástur fyrir þessa nútímalegu
úthverfasögu í Íslendingasögurnar.
Er það efniviður sem ætti oftar að
geta verið kvikmyndagerðarmönn-
um samtímans innblástur?
„Já, almennt séð er mjög gagn-
legt fyrir handritshöfund að lesa
Íslendingasögur vegna þess að þar
er frásögnin yfirleitt mjög mynd-
ræn – og það er einmitt eitt af því
sem handritshöfundar þurfa að ná
fram. Líkt og í kvikmyndum ferð
þú aldrei inn í hausinn á persón-
unum í Íslendingasögunum, þetta
liggur allt í atburðarásinni – atvik-
um eða samtölum. Ég held að í
þessi tilviki hafi ég hins vegar að-
allega sótt í átökin, dramað og
deilurnar – og svo sótti ég kannski
einhvern kraft í þær.“ n
Húskarlavíg
í Hvassa-
leitinu
Handritshöfundurinn, Huldar Breiðfjörð,
sótti innblástur í hæstaréttadóma og
Íslendingasögur við skrifin á Undir trénu
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
„Það er mjög
gagnlegt
fyrir handrits-
höfund að lesa
Íslendingasögur
Harðvítugar deilur Huldar Breiðfjörð skrifar
um harðvítugar nágrannaerjur í Undir trénu en
hann segist hafa orðið upptekinn af því hversu
logandi íslenskt samfélag var í ágengum og
heiftúðlegum deilum. mynd sIGtryGGur arI
Edda Björgvinsdóttir Huldari fannst gefandi að vinna með henni.