Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Blaðsíða 26
facebook.com/birta_vikublad vikublað - Ritstjóri: Margrét H. Gústavsdóttir Ábyrgðarmenn: Sigurvin Ólafsson og kolbrún bergþórsdóttir Markaðssamstarf: Svava kristín Gretarsdóttir s: 690 6900 Margrét H. gústavsdóttir margret@dv.is Vikublað 20. október 2017 2 Frændi minn og frændi þinn, frændur okkar allra Ég verð að viðurkenna að ég er fyrir löngu orðin óskaplega þreytt á þessu hvæsi um spillingu í okkar litla samfélagi. Jú, jú. Auðvitað erum við svolítið spillt, eins og allar þjóðir, en alls ekki eins mikið og sumir vilja láta í veðri vaka. Staðreyndin er sú að á lista ranker.com yfir 180 spilltustu þjóðir heims, árið 2017, er Ísland númer 170. Altso, í einu af tíu neðstu sætunum. Þetta er eiginlega alveg eins í Eurovision nema í þessari heiðarleikakeppni eru niðurstöðurnar frábærar en ekki skelfileg vonbrigði. Kanada, Ástralía, Nýja-Sjáland og hin Norðurlöndin toppa okkur reyndar og raða sér í síðustu sætin en mesta spillingin er í (ó)Sómalíu, Norður- Kóreu og Afganistan. Þar er allt í algjöru rugli. Tíunda sæti. Er það ekki bara skrambi gott?! Spurning um að kaupa snakk og kók og halda partí? Það má alveg djamma út á þetta! Við erum heiðblá og tær, eins og vatnið og loftið. HÚH! … eða svona næstum því. Spillingin hjá þessari fámennu þjóð er örugglega svolítið öðruvísi en annars staðar. Einu sinni stjórn- uðu bara pattaralegir miðaldra vindlakarlar landinu. Karlar sem þurftu aldrei að spyrja neinn leyfis um neitt. Þeir tóku stórar ákvarðanir eftir fundi með frímúrurum og skrifuðu skattalög við eldhúsborðið heima hjá sér. Pabbi minn og pabbi þinn. Þetta snerist allt um það „hverra manna“ maður væri og ef þú hafðir eitthvað spari- legt eftirnafn var leiðin oftast greið. Hvort þeir hafi mútað, svikið og falið sannleikann veit ég lítið um, en mig grunar þó, að sökum smæðar þessa ætt- bálkasamfélags hafi hagsmunir almenn- ings gjarna farið saman með hagsmunum þessara vindlakarla. Þeir voru jú frændur okkar flestra. Frændi minn og frændi þinn. „Þeir tóku stór- ar ákvarð- anir eftir fundi með frímúrurum og skrifuðu skattalög við eldhúsborðið heima hjá sér. Karl Pétur fæddist árið 1969. Hann ólst upp með foreldr-um sínum og tveimur eldri systrum í Hólahverfinu í Breiðholti, á einn yngri hálfbróður og eru þeir samfeðra. Hann útskrifaðist úr Versló 1990 og lærði svo stjórn- málafræði við Háskóla Íslands. Karl Pétur býr með eiginkonu sinni, Guðrúnu Tinnu, á Seltjarnarnesi og þau eiga fjögur börn: Katrínu Önnu, 14 ára, Kötlu, 11 ára, og tví- burana Grím Fannar og Fanneyju Petru, 5 ára. Hann á jafnframt einn son frá fyrra sambandi, Ara Pál, sem er tvítugur. Karl Pétur starfar sem ráðgjafi á sviði samskipta, rekstrar og almannatengsla en undanfarna mánuði hefur hann starfað sem aðstoðarmaður félags- og velferðarráðherra. Klukkan 8 „Ég vakna yfirleitt eins seint og ég kemst upp með enda er hvíldin alveg ofsalega mikilvæg. Ég vakna bara nógu seint til að geta hent mér í sturtu og borðað morgunmatinn, Hámark með jarðarberjabragði, í bílnum. Fyrst á dagskrá flesta morgna er að hitta kunningja mína í kaffifélaginu á Skólavörðustíg. Þetta er skemmtilegur hópur sem á saman gæðastund í svona korter, hálftíma, alla virka morgna. Ætli þetta séu ekki að verða tíu ár sem við höfum komið saman, aðallega viðræðugott fólk úr fjölmiðla- og listaheiminum. Þaðan fer ég oftast beint ráðu- neytið en það virðist alveg sama hversu vel maður planar daginn, það er alltaf eitthvað sem kemur á óvart. Vanalega er ég búinn að setja niður dagskrá þegar ég sest við skrifborðið en svo byrja hlutirnir að gerast, oftast á miklum hraða, þannig að venjulegur dagur er mjög annasamur og fjölbreyttur. Yfirleitt gengur þetta á með fund- um, undirbúningi, stefnumótun og samtölum við fólk sem tengist þessum fjölbreyttu málaflokkum sem við erum að vinna með. Stemningin í vinnunni er þó óvanaleg akkúrat núna af því við erum í kosningabaráttu og allt á fullu. Maður er yfirleitt með svona sautján Messenger-glugga opna, passandi upp á að allir séu með alla bolta á lofti á sama tíma og að hlutirnir komist rétt til skila.“ Klukkan 12 „Oftast fer ég niður í mötuneyti og fæ mér að hádegismat þar. Uppáhaldshádegismaturinn minn er samt alltaf þessi klassíska Sómasamloka með hangikjöti og baunasalati og kókómjólk með. Ég er sæmilegasti matgæðingur en í amstri dagsins þá nenni ég yfirleitt ekki að eltast við eitthvert svona gourmet-stöff. Mér finnst fínt að vera fljótur að borða og koma þá frekar fleiri hlutum í verk. Í vinnunni minni eru engir tveir dagar eins. Í síðustu viku vaknaði ég til dæmis og ætlaði að fljúga til Kaupmannahafnar í hádeginu en endaði heima um kvöldið af því það var skipt um flokksformann. Í þessu starfi er það sveigjanleikinn sem gildir, enda ekkert starfsöryggi í boði og allt breytingum háð, bæði innan dagsins og jafnvel klukku- tímans.“ Klukkan 16.00 „Eins og staðan er núna er auðvitað allt að gerast og það er bæði líflegt og skemmtilegt, en á sama tíma er ég ekki eins mikið með fjölskyldunni og ég er vanur. Ég hef nefnilega alltaf reynt að halda fast í þá reglu að koma ekki seinna heim en klukkan fimm eða í síðasta lagi hálf sex. Dætur mínar byrja þá að hringja upp úr klukkan þrjú til að spyrja hvað sé í matinn og ég þarf að spinna eitthvað upp. Á þessum tímapunkti er ég yfirleitt alls ekki búinn að ákveða hvað á að vera í matinn, hvað þá kaupa hráefnið, svo ég fer að spá í hvað sé til í ísskápnum og hvað sé við hæfi. Mér finnst alveg einstaklega róandi að koma heim, saxa matinn og eiga gæðastund með sjálfum mér í eldhúsinu eftir vinnu.“ Klukkan 21.00 „Eftir kvöldmat þurfum við hjónin að svæfa tvíburana okkar en þetta getur stundum verið eltingarleikur um allt hús, tveir allsberir fimm ára krakkar á fleygiferð. Oftast eru þau samt sofnuð á milli átta og hálf níu og þá finnst mér gott að fara í Vest- urbæjarlaugina. Þar er oftast mjög skemmtilegt samfélag á kvöldin. Allir kátir og léttir og gaman að spjalla. Þetta er líka ágætis leið til að hlaða batteríin. Svo tek ég oft smá syrpu við vinnu aftur, slakur eftir sundið.“ Klukkan 00.00 „Stundum reyni ég að horfa á eitt- hvað skemmtilegt í sjónvarpinu eða lesa góða bók. Núna er ég að horfa á nýja HBO-seríu sem heitir The Douche, en hún er eftir höfunda The Wire. Þessir þættir eru jafnvel betri en The Wire. Svo er ég í skýj- unum af því Larry Davis er með nýja seríu af Curb your enthusiasm. Þessi sería er fyndnari en allt sem hann hefur gert hingað til. Ég mæli með henni.“ karl Pétur Jónsson — sveigjanleiki, Sómasamlokur, kókómjólk og kaffiklúbbur klukkan níu Besta ráð sem þér hefur verið gefið? Fyrir nokkrum árum var ég á bakpokaferðalagi á indlandi með konunni minni. Þar fengum við tækifæri til að hitta Murli heitinn Deora ráðherra. Ég var alveg hræðilega stressaður enda leit ég mikið upp til þessa manns. Eftir að hafa setið með honum í klukkutíma þá gaf hann mér besta ráð sem mér hefur verið gefið um ævina: „Slappaðu af“. Besta ráð sem þú getur gefið öðrum? Það er sama ráðið. Slappaðu af. Það er yfirleitt engin sérstök ástæða til að vera á taugum eða nálum yfir því sem við erum á taugum og nálum yfir. Það endar allt einhvern veginn og yfirleitt á besta veg. hvað vildirðu að þú hefðir vitað fyrr? Ég hefði viljað hafa heilbrigðara sjálfstraust. Da gur í l ífi m yn d si g tr yg g u r ar i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.