Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Qupperneq 14
14 Helgarblað 20. október 2017fréttir
V
ið botn Miðfjarðar í Vestur-
Húnavatnssýslu liggja vega-
mót Norðurlandsvegar og
vegarins inn að Hvamms-
tanga. Á fyrri hluta 20. aldar stóð þar
lítil verslun sem nefndist Norður-
braut þar sem vegfarendur gátu
keypt varning og mat sem var ekki
beint sá hollasti. Það má með
sanni segja að Norðurbraut hafi
verið ein allra fyrsta vegasjoppa
landsins.
Sumarbúð
Þórður Skúlason, fyrrverandi
sveitar stjóri og framkvæmdastjóri
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
segist muna vel eftir Norðurbraut.
„Ég fór þarna margoft sem strákur.
Ég hugsa að þetta hafi verið mjög
óvenjulegt. Seinna var farið að af-
greiða í litlum skúr á Stað, sem í
dag heitir Staðarskáli. En ég held
að Norðurbraut hafi verð ein fyrsta
vegasjoppa landsins. Ríkið rak
Fornahvamm og Bakkasel sem
voru gistihús með veitingarekstri en
það voru ekki sjoppur. Þetta var því
mjög sérstakt.“ Fyrir þremur árum
skrifaði Þórður sögu Norðurbraut-
ar í tímaritið Húna, rit Ungmenna-
sambands Vestur-Húnvetninga.
Húsið var upprunalega byggt á
Hornmýrarholti í landi bæjarins
Stóra Óss í Miðfirði einhvern tím-
ann á þriðja áratug síðustu aldar.
Nákvæm dagsetning er ekki kunn
og heldur ekki hver lét reisa það.
En um árið 1930 var það komið í
eigu Sigurðar Davíðssonar kaup-
manns, sem hafði þá nýlega hafið
verslunarrekstur á Hvammstanga.
Sigurður rak þar krambúð í um
hálfa öld og var hún þekkt fyrir
vöruúrvalið. Árni Johnsen heim-
sótti Sigurð árið 1969 og skrifar um
það í bók sinni, Kvistir í lífstrénu:
„Þar voru leikföng, helgimyndir,
fjósaluktir, frakkar, gullúr, byssur,
korselett, perlufestar, slöngur,
sökkur, sauðabjöllur, önglar efn-
isstrangar, plastblóm og margt
fleira. Allt í einni kös. Ekki er hægt
að sjá í neinn vegginn á verslun-
inni fyrir varningi í hillum, en á
stöku stað má sjá í loftið inn á milli
varnings sem teygir sig silalega
niður.“
Vegamótin liggja í um fimm
kílómetra fjarlægð frá Hvamms-
tanga og Sigurður rak Norðurbraut
sem útibú frá verslun sinni í þorp-
inu. Útibúið var hins vegar aðeins
starfrækt yfir sumartímann, frá
byrjun júní fram í miðjan október.
Líkt og í krambúðinni var opn-
unartími og vöruúrvalið nokkuð
handahófskennt.
Hús á flakki
Húsið er enn til en hefur tvívegis
verið fært á milli staða. Á seinni
hluta sjötta áratugarins komu
upp deilur milli Sigurðar og land-
eigendanna í Stóra Ósi. Þá voru
sleðameiðar settir undir húsið og
það dregið af stórum GMC-trukki
inn í þorpið og komið fyrir við hlið
krambúðarinnar. Á áttunda ára-
tugnum var það síðan dregið af
jarðýtu rétt út úr þorpinu og kom-
ið fyrir í landi Syðstahvamms. Þar
stendur það, hrörlegt og veður-
barið.
Norðurbraut er 40 fermetra hús
með timburklæðningu að utan og
bárujárnsþaki. Að innan er það
klætt með panil og standa þar all-
ar upprunalegu innréttingarnar
og búðarhillurnar. Það er meira
að segja enn þá varningur þar. Á
húsinu eru þrír inngangar. Einn
austast á suðurhliðinni þar sem er
lítil forstofa og stærra herbergi þar
fyrir innan sem fólk gat gengið inn
í. Á vesturhliðinni eru síðan tveir
inngangar og afgreiðslulúga.
Sjólax og reimleikar
Ólíkt nútímasjoppum var hvorki
hægt að fá hamborgaratilboð
né eina með öllu í Norðurbraut.
Eldunaraðstaðan var nokkuð
frumstæð og hvorki rafmagn né
rennandi vatn til staðar. Hægt var
að kaupa ýmsa matvöru og rusl-
fæði eins og gosdrykki, sælgæti,
kex, smurt brauð og harðfisk sem
barinn var á staðnum. Meðal þess
sem boðið var upp á var brauð með
sjólaxi og þótti herramannsmatur.
Sjólax var hins vegar ekki
lax heldur niðursoðinn
ufsi í sneiðum.
Sigurður flutti ýmsan
annan varning úr
krambúð sinni í Norður-
braut og var úrvalið nokk-
uð breytilegt. Þar var til
dæmis hægt að kaupa
ýmis verkfæri og veiðar-
færi, leikföng, fótbolta og
neftóbak sem var skorið
úr rjóli á staðnum og selt
í litlum pokum.
Yfirleitt voru tveir
starfsmenn á staðnum
en það var misjafnt hvers
konar fólk Sigurður réð
til starfanna. Stundum réð hann
unga menn og stundum miðaldra
konur. Þórður segir: „Einu sinni
unnu þar stútungskerlingar og var
önnur hölt.“ Oftast nær voru ráðn-
ar inn ungar og fágaðar búðar-
dömur frá Reykjavík og má til
dæmis nefna Ástu Sveinsdóttur
sem samdi fjölda vinsælla dægur-
laga á sjötta áratugnum. Starfs-
fólkið bjó í húsinu yfir þá mánuði
sem búðin var opin en hélt síðan
heim á haustin.
Vistin í Norðurbraut var þó ekki
mjög lífleg fyrir ungt fólk. Þar var
ekki einu sinni útvarp en starfs-
fólkið dundaði sér aðallega við
lestur á kvöldin. Þar að auki var
sagt að reimt væri á staðnum og
skrifaði Björn Daníelsson, fyrrver-
andi starfsmaður, um það í ritið
Heimdraga árið 1965. Hann segir
að eitt kvöldið hafi hann setið við
lestur þegar hann heyrir bank-
að á gluggann. Hann bar þá olíu-
lampann upp að skjánum en sá
ekkert og heldur ekki þegar hann
gekk út. Í nokkur skipti til viðbótar
heyrði hann barið á gluggana,
glamur í beislum og hófadyn fyrir
utan. Þá lá hann „bugaður í bæli
sínu“ og gat ekki sofið.
Þegar kóngur kom
Fyrsta bifreið Vestur-Húnavatns-
sýslu var keypt af Jóhannesi
Davíðs syni, bróður Sigurðar, árið
1926. Fátt var um bíla og vegir lé-
legir þessi fyrstu ár sem Norður-
braut var starfrækt og því nokkuð
djarft verkefni hjá Sigurði. Mest
var að gera þegar rútur komu,
annaðhvort frá Reykjavík eða
Akur eyri. Þær keyrðu ekki inn á
Hvammstanga og var Norður-
braut því nokkurs konar biðstöð
þar sem fólk og vörur komu og
fóru. Fólksbílum sem stoppuðu
fór þó fjölgandi með árunum og
einnig kom fólk við á hestbaki eða
reiðhjólum.
Merkilegasta heimsóknin sem
Norðurbraut fékk var þann 24.
júní árið 1936. Kristján X konung-
ur Danmerkur og Íslands kom
þá við á leið sinni norður í land
ásamt fylgdarliði sínu. Viðbún-
aður var mikill og Húnvetningar
fjölmenntu að búðinni til að sjá
konung. Íslenska fánanum var
flaggað og konunglegur kamar var
reistur við norðurvegg hússins.
Konungur stoppaði stutt og ekki
er vitað til þess að hann hafi keypt
sér neitt í búðinni. Þórður segir
að vafasöm saga hafi gengið þess
efnis að konungur hafi einung-
is heilsað Jóhannesi, sem var þá
klæddur í fínan einkennisbúning,
og klappað einum hundi frá ná-
lægum bæ. Á aðra hafi hann varla
yrt. Sá hundur hafi upp frá því
verið talinn höfðingjasleikja.
Nýtt hlutverk?
Á Hvammstanga er töluverður
áhugi á því að varðveita húsið sem
stendur nú í niðurníðslu. Hólm-
fríður Ósmann Jónsdóttir arki-
tekt hefur farið fyrir þeim hópi
og meðal annars sótt um styrki til
Uppbyggingarsjóðs Norðurlands
vestra og Húsfriðunarnefndar til
að mæla það upp og skrásetja.
Hún segir: „Hugmyndir mínar
gengu fyrst og fremst út á varð-
veisluhlutann en það væri svo í
höndum heimamanna að finna
því hlutverk.“ Ekki hefur verið
ákveðið hvort Norðurbraut yrði
endurgerð sem safn eða verslun
eða þá hvar hún myndi standa.
Ljóst er að gera þyrfti það fyrr en
seinna því að timburhúsið gamla
þolir ekki marga áratugi í viðbót
án viðhalds. n
„Einu sinni
unnu þar
stútungskerlingar
og var önnur hölt
n Konungur kom við n Vilja endurgera húsið Norðurbraut í dag Í landi Syðstahvamms.
Varningur úr versluninni Lucky Strike, Opal, kakó og fleira.
Norðurbraut Flaggað við heimsókn Kristjáns X
Norðurbraut: Fyrsta
vegasjoppa landsins
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is