Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Side 67
menning - SJÓNVARP 43Helgarblað 20. október 2017
Skáklandið
dv.is/blogg/skaklandid
Þ
að var hart barist á
hvítu og svörtu (brúnu)
reitunum í Huginsheimil-
inu í Breiðholti síðastliðið
mánudagskvöld, 16. október. Þá
fór fram hraðskákmót Hugins í
26. sinn með 17 þátttakendum
og þar af tveimur stórmeisturum
og góðri blöndu af eldri og yngri
skákmönnum.
Tefldar voru 7 umferðir, tvö-
föld við við hvern andstæðing
þannig að mest var hægt að fá 14
vinninga. Það vafðist ekki fyrir
sigurvegara mótsins Hjörvari
Steini Grétarssyni sem lagði
alla andstæðinga sína tvisvar að
velli og sigraði örugglega með
fullt hús vinninga. Hjörvar vann
mótið þar með í fimmta sinn og
hafa ekki aðrir unnið mótið oftar.
Hjörvar hefur jafnframt
hampað titlinum hraðskák-
meistari Hugins í öll þessi fimm
skipti. Björn Þorfinnsson hef-
ur hins vegar ennþá fleiri hrað-
skákmeistaratitla, eða sjö, þótt
hann hafi bara unnið mótið fjór-
um sinnum. Í öðru sæti varð Jó-
hann Hjartarson með 11,5 vinn-
inga. Annað sætið var honum
jafn fast í hendi og fyrsta sætið
Hjörvari því auk tveggja vinn-
inganna sem féllu í baráttunni
um fyrsta sætið, þá var það að-
eins Örn Leó sem náði að merkja
við Jóhann með jafntefli í annarri
skák þeirra.
Örn Leó Jóhannsson varð
nokkuð örugglega þriðji með
tíu vinninga og sýndi fram á
það að sigurinn á Geðheil-
brigðismótinu í síðustu viku var
engin tilviljun. Það er sannar-
lega ekki á hverjum degi sem
tveir stórmeistarar mæta á opið
hraðskákmót á Íslandi þegar
ekki eru há peningaverðlaun.
Verður að hrósa þeim Hjörvari
og Jóhanni fyrir þessa nálgun
sína. Kann að vera að þeir hafi
verið að hita upp fyrir helgina.
Um helgina fer fram Íslands-
mót skákfélaga. Þar mæta Vík-
ingar nokkuð sterkir til leiks og
munu berjast um titilinn ásamt
Huginsmönnum. n
Laugardagur 21. október
RÚV Stöð 2
07.00 KrakkaRÚV
07.01 Háværa ljónið Urri
07.15 Lundaklettur (26:39)
07.22 Ólivía (45:52)
07.33 Húrra fyrir Kela
07.56 Símon (21:52)
08.00 Molang (41:52)
08.05 Með afa í vasanum
08.16 Ernest og Célestine
08.30 Hvolpasveitin (13:26)
08.53 Ronja ræningjadóttir
09.16 Alvinn og íkornarnir
09.27 Hrói Höttur (13:52)
09.38 Skógargengið (20:52)
09.50 Litli prinsinn (14:26)
10.14 Zip Zip (20:21)
10.25 Flink
10.30 Útsvar (6:13)
11.40 Vikan með Gísla
Marteini (2:11)
12.25 Sagan bak við smell-
inn – Take My Breath
Away - Berlin (3:8)
12.55 Lorraine Pascale kem-
ur til bjargar (6:6)
13.25 The Mosaic Project á
Listahátíð 2016
14.55 Vestfjarðavíkingur-
inn
15.50 Grænt og gott með
Camillu Plum
16.25 Leikfélag Akureyrar
í 100 ár
17.15 Mótorsport (12:12)
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Kioka (4:26)
18.07 Róbert bangsi (16:26)
18.17 Alvinn og íkornarnir
18.28 Letibjörn og læmingj-
arnir (7:26)
18.35 Krakkafréttir vikunnar
18.54 Lottó (42:52)
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Michael Jackson
kveður Motown
(Michael Jackson's
Journey from Motown
to Off The Wall) Heim-
ildarmynd í leikstjórn
Spike Lee sem rýnir í
rætur Michael Jacksons
í Motown tónlistinni og
fylgir ferli stjörnunn-
ar fram að útgáfu
plötunnar Off The Wall
árið 1979.
21.25 Bíóást: Butch Cassidy
and The Sundance
Kid Í vetur sýnir RÚV
vel valdar kvikmyndir
sem hafa valdið
straumhvörfum í
kvikmyndasögunni.
Að þessu sinni segir
kvikmyndagerðar-
maðurinn Óskar Þór
Axelsson frá Ósk-
arsverðlaunamyndinni
Butch Cassidy and
the Sundance Kid.
Myndin skartar Paul
Newman og Robert
Redford í hlutverkum
lestarræningja sem
flýja til Bólivíu frá villta
vestrinu. Leikstjóri:
George Roy Hill.
23.20 Ránið (Kapringen)
01.00 Útvarpsfréttir í
dagskrárlok
07:00 Strumparnir
07:25 Waybuloo
07:45 Mæja býfluga
07:55 Stóri og litli
08:10 Með afa (7:100)
08:20 Nilli Hólmgeirsson
08:35 Billi Blikk
08:45 Dagur Diðrik (3:20)
09:10 Dóra og vinir
09:35 Gulla og grænjaxlarnir
09:45 K3 (48:52)
09:55 Beware the Batman
10:15 Ævintýri Tinna
10:35 Ærlslagangur Kalla
kanínu og félaga
10:55 Grey's Anatomy
12:20 Víglínan (34:60)
13:05 Bold and the Beautiful
14:25 Bold and the Beautiful
14:50 Friends (21:24)
15:10 Friends (11:25)
15:35 Leitin að upprunanum
16:05 Kórar Íslands (4:8)
17:10 Sjáðu (516:550)
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:55 Sportpakkinn
19:05 Lottó
19:10 Top 20 Funniest
19:55 Moneyball Mögnuð
mynd sem byggð er á
ótrúlegri sannri sögu
og samnefndri met-
sölubók og fjallar um
Billy Beane sem ákveð-
ur að synda á móti
straumnum og fara
gegn öllum hefðum
varðandi það hvernig
maður byggir upp
öflugt íþróttalið. Hann
finnur öflugan félaga í
utangátta tölfræðiséní
og saman hefja þeir
við að brjóta allar
reglurnar með Brad
Pitt, Jonah Hill, Philip
Seymour Hoffman
og Robin Wright í
aðalhlutverkum.
22:05 War Dogs Gaman-
samur spennutryllir frá
2016 með Jonah Hill
og Miles Teller. Myndin
er byggð á sannri sögu
þeirra Davids Packouz
og Efraims Diveroli
sem árið 2007 lönduðu
300 milljón dollara
vopnasölusamn-
ingi við bandaríska
varnarmálaráðuneytið
þrátt fyrir að vera
aðeins rúmlega tvítugir
að aldri.
00:05 A Good Man
Spennutryllir frá 2014
með meistara Steven
Seagal í aðalhlutverki.
Eftir að glæstur ferill
sérsveitarmanns endar
með hörmungum, þá
fer Alexander í felur
og reynir að lifa rólegu
lífi sem húsvörður í
íbúðablokk í Rúmeníu.
01:45 A Hologram
for the King
03:20 The Gift
05:05 George Lopez: The
Wall
06:00 Síminn + Spotify
08:00 Everybody Loves
Raymond (17:25)
08:20 King of Queens
09:05 How I Met Your
Mother (21:24)
09:50 American Housewife
10:15 Parks & Recreation
10:35 The Great Indoors
11:00 The Voice USA (7:28)
12:30 The Bachelor (1:13)
14:55 Top Gear (2:6)
15:45 Rules of Engagement
16:10 The Odd Couple (13:13)
16:35 Everybody Loves
Raymond (2:26)
17:00 King of Queens
17:25 How I Met Your
Mother (2:24)
17:50 Old House, New Home
18:45 Glee (21:24) Bandarísk
þáttaröð um söngelska
unglinga sem ganga í
Glee-klúbbinn, söng-
hóp skólans undir for-
ystu spænskukennar-
ans Will Schuester.
19:30 The Voice USA (8:28)
Vinsælasti skemmti-
þáttur veraldar þar
sem hæfileikaríkir
söngvarar fá tækifæri
til að slá í gegn. Þjálf-
arar í þessari seríu eru
Adam Levine, Blake
Shelton, Miley Cyrus og
Jennifer Hudson.
20:15 Spaceballs Geggjuð
gamanmynd úr smiðju
Mel Brooks þar sem
gert er grín að Star
Wars myndunum og
öðrum vísindaskáld-
skap á hvíta tjaldinu.
Mel Brooks leikur
sjálfur í aðalhlutverki
ásamt Bill Pullman,
John Candy og Rick
Moranis. Myndin er frá
1987 og er leyfð öllum
aldurshópum.
21:55 Cinderella Man
Frábær dramatísk
ævisaga frá 2005 með
Russell Crowe, Renée
Zellweger og Paul Gi-
amatti í aðalhlutverk-
um. Í kreppunni miklu
í Bandaríkjunum varð
hnefaleikakappinnn
James J. Braddock,
öðru nafni Cinderella
Man, óvænt að einni
mestu goðsögn
íþróttasögunnar.
Myndin er stranglega
bönnuð börnum.
00:20 Just Before I Go Gam-
ansöm mynd frá 2014
með Seann William
Scott í aðalhlutverki.
Hann leikur ungan
mann sem hefur gefist
upp á lífinu en heldur
til heimabæjar síns til
að bæta fyrir gamlar
syndir áður en hann
ætlar að enda líf sitt.
Leikstjóri er Courteney
Cox. Bönnuð börnum.
02:00 Return to Paradise
03:55 Harry Brown
05:40 Síminn + Spotify
Sjónvarp Símans
Góðu og dökku hliðar Muhammad Ali
Í
tarleg ævisaga Muhammad Ali
er komin út. Bókin heitir ein-
faldlega Ali og höfundur henn-
ar er Joanathan Eig sem tók
rúmlega 600 viðtöl við samningu
verksins, en bók hans er 640 síður.
Hún þykir gefa glögga mynd af Ali,
en þar er ekki einungis fjallað um
góðu hliðar hans, heldur einnig
þær myrku.
Ali var sterkur karakter, lífs-
glaður og hafði gaman af að
bregða á leik. Hann átti til að kíkja
í símaskrána, velja þar nafn af
handahófi og hringja í viðkom-
andi, kynna sig og halda uppi
hrókasamræðum. Margar sögur
eins og þessa, sem sýna Ali upp á
sitt besta, er að finna í bókinni.
Myrka hliðin snýr að einkalífi
hans. Ali kvæntist fjórum sinnum
og hafði lítinn áhuga á að vera trúr
eiginkonum sínum. Belinda, önn-
ur eiginkona hans, fann einna
mest fyrir því, en þau voru gift á
árunum 1967–1976. Hún reyndi
að taka framhjáhaldi hans af
rósemi, bókaði jafnvel hótelher-
bergi fyrir ástkonur hans. „Ég var
ung stúlka. Hann átti sína dökku
hlið og hann stjórnaði mér,“ er
haft eftir henni í bókinni. Þegar
hann fór síðan að taka ástkonur
sínar inn á heimilið fór að draga
verulega úr þolinmæði Belindu.
Dag einn bað Ali hana um að fara
að kaupa í matinn. Þegar hún
uppgötvaði að hún hefði gleymt
buddu sinni sneri hún við og kom
að Ali í rúmi þeirra hjóna með ást-
konu. Börn þeirra voru að leik í
öðru herbergi. „Honum var sama.
Hann var Muhammad Ali. Hann
gat gert það sem honum sýndist,“
segir Belinda í bókinni.
Eig fjallar ítarlega um heilsu-
leysi Ali og kemst að því að Ali
hafi þjáðst af heilaskaða strax árið
1970 þegar hann var 28 ára gamall.
Höfundur þykir koma því einkar
vel til skila af hve miklu æðru-
leysi Ali tókst á við veikindi sín, en
hann heyrðist aldrei kvarta. n
kolbrun@dv.is
Muhammad Ali Ný og ítarleg
ævisaga hans er komin út.
HjörvAr steinn
MiskunnArlAus