Fréttablaðið - 04.11.2017, Page 8
AF ÖLLUM VÖRUM*
laugardag og sunnudag
SPARIÐ
*Gildir ekki um LEGO®-sett, leikjatölvur,
spjaldtölvur og vörur sem þegar eru með
afslætti. Tilboðin gilda 04.11-05.11 2017.
Stjórnmál Þeir sem tóku þátt
í skuggakosningum framhalds-
skólanna fyrir kosningarnar í fyrra
voru líklegri til að kjósa í alþingis-
kosningum, en fylgnin var sterkari
hjá körlum en konum. Þetta kemur
fram í nýrri rannsókn sem Magnús
Þór Torfason, lektor við viðskipta-
fræðideild Háskóla Íslands, og Hulda
Þórisdóttir, dósent við stjórnmála-
fræðideild, gerðu. Fyrirkomulag
skuggakosninga skipti máli fyrir
þátttökuna; þegar farið var úr tíma til
að kjósa var þátttaka í skuggakosn-
ingum meiri hjá báðum kynjum. Það
fyrirkomulag spáði einungis aukinni
þátttöku í alþingiskosningum hjá
körlum.
Magnús Þór segir að út frá niður-
stöðunum sé ekki hægt að fullyrða
neitt um orsakatengsl þarna á milli,
þar sem rannsóknin hafi ekki verið
sett upp með tilraunasniði.
Hins vegar hafi tengslin þarna á
milli verið miklu sterkari milli pilta
en stúlkna. „Þess vegna fórum við að
skoða hvers vegna karlar og konur
kusu ekki,“ segir Magnús Þór. Fyrstu
niðurstöður úr megindlegum og eig-
indlegum greiningum benda til þess
að karlar sem ekki kusu séu líklegri til
að segjast hafa litla trú á stjórnmálum
og lítinn áhuga á kosningum. Konur
eru líklegri til að hafa aðrar ástæður
fyrir því að kjósa ekki.
Komið hefur fram í fjölmiðlum að
þátttaka í alþingiskosningum hefur
minnkað undanfarna áratugi og náði
sögulegu lágmarki í alþingiskosning-
unum 2016. Þá kusu 79,2 prósent.
Kosningaþátttaka ungs fólks er
mun minni en þeirra sem eldri eru,
en nokkuð jöfn sé horft til kynja.
Þau Magnús Torfi og Hulda segja vís-
bendingar um að einstaklingar sem
ekki kjósa í fyrstu kosningum sem
þeir hafa kosningarétt í séu ólíklegri
til að kjósa í framtíðinni. – jhh
Karlar áhugalausir og hafa
litla trú á stjórnmálum
Ungt fólk sem tekur þátt í skuggakosningum framhaldsskólanna er líklegra til
að kjósa í alþingiskosningum. Fréttablaðið/SteFán trúfélög Forstöðumaður trúfélags-
ins Zuism hvetur fólk til að skrá
sig í félagið og lofar að endur-
greiðslur sóknargjalda til með-
lima hefjist eftir miðjan nóv-
ember. Á sama tíma hvetja
þeir sem áður skipuðu svokallað
öldungaráð zúista alla til að yfir-
gefa félagið.
„Við undirrituð hörmum
innilega þá stöðu sem nú er uppi í
trúfélaginu Zuism og hvetjum alla
meðlimi til að skrá sig úr félaginu í
síðasta lagi fyrir 1. desember,“ segir í
yfirlýsingu sexmenninganna. Er þar
vísað til þess að ef meðlimir skrái sig
ekki úr Zuism fyrir 1. desember renna
sóknargjöld í þeirra nafni úr ríkissjóði
í tólf mánuði til viðbótar.
„Við drógum fólk inn í þetta og
getum ekki borið ábyrgð á því að fólk
fái nokkurn tíma greitt eða að upp-
hafleg markmið okkar gangi eftir,“
segir Snæbjörn Guðmundsson, einna
hinna sex fyrrverandi öldungaráðs-
meðlima.
Hálftíma eftir að öldungaráðs-
mennirnir sendu yfirlýsinguna frá
sér í gær barst yfirlýsing frá Ágústi
Arnari Ágústssyni sem fyrir tæpum
mánuði fékk viðurkenningu sýslu-
manns á því að vera forstöðu-
maður félags zúista. Sagði Ágúst
umsóknarfrest um endurgreiðslur
sóknargjalda vera til 15. nóvember
og að stefnt væri að því að greiða
tveimur dögum síðar.
,,Eftir langa bið og mikla baráttu
er loksins komið að því að zúistar
geti fengið endurgreiðslu,“ segir
í yfirlýsingu Ágústs. „Zuism
er eina trúfélag landsins sem
leyfir sóknarbörnum að ráð-
stafa sínum sóknargjöldum.
Við hvetjum fólk til að skrá sig
í félagið fyrir 1. desember því
stefnt er að því að endurgreiðslur
muni halda áfram á næsta ári."
Öldungaráðið fyrrverandi undir-
strikar að það beri enga ábyrgð
lengur á félaginu. Um leið virðist
ráðið telja forstöðumanninn vera
að skreyta sig með stolnum fjöðrum.
„Við frábiðjum okkur einnig tilraunir
núverandi forráðamanna félagsins
til að eigna sér upphafleg markmið
okkar með gjörningnum,“ segir í
yfirlýsingunni.
Sjálfur segist Snæbjörn aðspurður
hafa skráð sig úr félaginu í vikunni.
„Nei," svarar hann og hlær aðspurð-
ur hvort hann hyggist senda inn
umsókn um endurgreiðslu.
Hvatning öldungráðsins virðist
hafa haft sín áhrif. Á þriðja tímanum
í gær höfðu 62 skráð sig úr Zuism
þann daginn og alls 357 frá því í byrj-
un október. Samkvæmt þjóðskrá eru
nú 2.303 í félaginu. gar@frettabladid.is
Zúistum fækkar í stríði
um sálirnar og gjöldin
Andstæðir pólar zúista ýmist hvetja fólk til að skrá sig í trúfélagið eða úr því.
Forstöðumaðurinn boðar endurgreiðslur sóknargjalda. Öldungaráðið yfirgaf
félagið og hvetur til úrsagna áður en nýtt greiðsluár hefst 1. desember.
Við drógum fólk inn
í þetta og getum
ekki borið ábyrgð á því að
fólk fái nokkurn tíma greitt
eða að upphafleg markmið
okkar gangi eftir.
Snæbjörn Guðmundsson, fyrrverandi
öldungaráðsmeðlimur hjá zúistum
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 l A U g A r D A g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
0
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
5
-B
F
1
8
1
E
2
5
-B
D
D
C
1
E
2
5
-B
C
A
0
1
E
2
5
-B
B
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K