Fréttablaðið - 04.11.2017, Page 10

Fréttablaðið - 04.11.2017, Page 10
Því eru læknar hvattir til að vera á varðbergi gagnvart þessum sjúkdómum. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Það er verið að gera legsteinahús um alla gömlu, merkilegu legstein- ana sem forfeður mínir á Húsafelli gerðu. Páll Guðmunds- son í Húsafelli Frá leikskóla til háskóla #nýjarPVreglur2018 Persónuvernd í íslensku skólasamfélagi Málþingið er hluti af fundaröð Persónuverndar um hið breytta regluverk og fer fram í aðalsal Háskólabíós fimmtudaginn 9. nóvember 2017 kl. 15:00-17:00. Málþingið er aðallega ætlað þátttakendum í skólastarfi á Íslandi – en verður opið öðrum áhugasömum á meðan húsrúm leyfir. Málþinginu verður streymt á vefsíðu Persónuverndar. Vinsamlegast skráið þátttöku á skraning@personuvernd.is. Persónuvernd, í samstarfi við Háskóla Íslands, boðar til málþings fyrir íslenskt skólasamfélag um nýja Evrópureglugerð um persónuvernd sem mun taka gildi árið 2018. Hið nýja regluverk markar tímamót í sögu persónuverndarlöggjafar í Evrópu. Eftirfarandi er meðal þess sem verður rætt: • Áhrif nýrrar Evrópulöggjafar um persónuvernd á íslenskt skólasamfélag • Vinnsla persónuupplýsinga í vísinda- og rannsóknarstarfi • Hvernig eiga skólar að vinna eftir nýrri löggjöf? Fimmtudaginn 9. nóvember 2017 í aðalsal Háskólabíós kl. 15:00-17:00 Dagskrá: Opnun málþings: Dómsmálaráðuneyti Áhrif nýrrar persónuverndarlöggjafar á skólastarf Vigdís Eva Líndal, skrifstofustjóri upplýsingaöryggis hjá Persónuvernd Söfnun persónuupplýsinga í þágu rannsókna Þórður Sveinsson, skrifstofustjóri lögfræðisviðs hjá Persónuvernd Raunhæf ráð um innleiðingu nýrrar persónuverndarreglugerðar Hörður Helgi Helgason, lögmaður hjá Landslögum Fundarstjórn og inngangserindi: Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar Tilgangur skráningar er að áætla fjölda þátttakenda Ásgerður Búadóttur og Sverri Haraldsson Höfum verið beðin að útvega listaverk eftir Ásgerði Búadóttur og Sverri Haraldsson. Einnig abstraktverk eftir Guðmundu Andrésdóttur, Hjörleif Sigurðsson, Hörð Ágústsson, Karl Kvaran, Valtý Pétursson o.fl.. Hátúni 6B | Sími 552 4700 studiostafn.is/listaverkasala Málverk eftir Jóhannes S. Kjarval, Jón Stefánsson og Kristínu Jónsdóttir Studio Stafn, Hátúni 6B, Sími 552 4700. Leitum að góðum blómauppstillingum eftir Kristínu Jónsdóttur og Jón Stefánsson og úrvalsmálverki eftir Jóhannes S. Kjarval fyrir fjársterkan viðskiptavin.“ Ný verk í sölu á: studiostafn.is/listaverkasala Stjórnmál „Ég var hreinsuð út og var náttúrlega ekkert í þessum kosn- ingaham Pírata. Ég held að það hafi verið út af ótta við Sjálfstæðisflokk- inn, eða mér skildist það. Það var eina skýringin sem ég fékk,“ segir Birgitta Jónsdóttir. Fyrir nýafstaðnar alþingiskosn- ingar var ákveðið að Birgitta yrði ekki í heiðurssæti á framboðslista Pírata. Birgitta segist hafa frétt það á kjördegi að ástæðan hefði verið ótti við að Sjálfstæðisflokknum tækist að hræða fólk með því að hún yrði ráðherra, ef hún yrði í heiðurssætinu. Birgitta segist ekki vera sár yfir þessu. „Ekki lengur. Ég var pínu sár þegar ég heyrði þetta,“ segir hún. Birgitta, sem er einn af stofnfélögum Pírata, segist stolt af því að hafa tekið þátt í að byggja upp stjórnmálahreyf- inguna. „Ég er stolt af því að hafa tekið þátt í að hafa búið til hreyfingu sem hefur starfað með svona mörgu ungu fólki sem fann farveg fyrir sjálft sig í stjórnmálum og hafa beitt sér á flottan hátt. Mér finnst það frábært legacy,“ segir Birgitta og segist mjög stolt yfir því að hafa tekið þátt í að búa til svoleiðis. Píratar eru aðilar að fjögurra flokka stjórnarmyndunarviðræðum undir forystu Katrínar Jakobsdóttur. Birgitta segist ekki vita nógu mikið til að hafa afgerandi skoðun á þeim stjórnarmyndunarviðræðum. Hún sé ekki aðili að stjórnarmyndunarvið- ræðunum og sé ekki að skipta sér af. Hún óskar Pírötum á þingi vel- farnaðar í stjórnarmyndunarviðræð- unum. Í Fréttablaðinu í gær var greint frá því að innan þeirra flokka sem eiga aðild að stjórnarmyndunarvið- ræðunum hafi áhyggjum verið lýst af reynsluleysi, sérstaklega í þingflokki Pírata. Þetta finnst Birgittu ósann- gjarnar athugasemdir. Í síðustu ríkisstjórn voru allmargir sem höfðu aldrei setið á þingi. „Það hafa allir Píratar núna setið á þingi þó það sé misjafnlega lengi. Við erum með stífar reglur um að bera hluti undir grasrótina. Það getur ekki átt sér stað á einum degi eins og hjá öðrum flokkum. Þannig að allar þær áhyggjur sem hafa verið settar fram eiga nú frekar við hjá öðrum flokkum. Og varðandi reynsluleysið, ímyndaðu þér þá hvað hefði gerst ef Miðflokk- urinn og Flokkur fólksins færu inn á þing. Hvað hefur mikið af fólki þar setið áður á þingi? Og formaður ann- ars flokksins mætti aldrei í vinnuna,“ segir Birgitta og bætir við að þessi orðræða gagnvart félögum hennar sé ósanngjörn. jonhakon@frettabladid.is Var ýtt til hliðar af ótta við Sjálfstæðismenn Birgitta Jónsdóttir fékk ekki heiðurssæti á lista fyrir síðustu kosningar. Hún segir það hafa verið af ótta við viðbrögð Sjálfstæðismanna. Hún óskar félögum sínum velfarnaðar í stjórnarmyndunarviðræðum og segist ekki vera sár. „Það sem skiptir máli er að Píratar hafa ítrekað sagt að þeim finnist ekki að ráðherrar eigi að vera þingmenn og við höfum talað fyrir fagráðherrum. Ég veit ekki hvernig það verður núna,“ segir Birgitta. FrÉttaBlaðið/Valli Fyrir nýafstaðnar al- þingiskosningar var ákveðið að Birgitta yrði ekki í heið- urssæti á framboðslista Pírata. HeilbrigðiSmál Búast má við alvar- legum afleiðingum vegna vaxandi útbreiðslu kynsjúkdóma hér á landi sem ekki hafa sést um árabil. Þetta kemur fram í ritstjórnargrein Þór- ólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis í nýjasta tölublaði Læknablaðsins. Þórólfur segir í greininni að fyrst megi nefna alvarlegar afleiðingar sárasóttar, til dæmis meðfædda sýkingu. Þá varar hann einnig við því að ein afleiðinganna gæti verið meðfæddar HIV-sýkingar. „Því eru læknar og aðrir heilbrigðisstarfs- menn hvattir til að vera á varð- bergi gagnvart þessum sjúkdómum í sínum daglegu störfum,“ skrifar sóttvarnalæknir. Sú aukning sem Þórólfur nefnir er talsverð. Skrifar hann að fylgst hafi verið með árlegum fjölda ein- staklinga sem greinast með sárasótt og/eða lekanda frá árinu 1896, með klamydíu frá 1982, HIV frá 1983 og svo með lifrarbólgu B frá 1985. Samkvæmt Þórólfi hefur árlegur fjöldi þeirra sem greinist með lek- anda aukist árlega frá árinu 2004 og í fyrra hafi 89 greinst með sjúkdóm- inn. „Í dag eru flestir sem greinast með lekanda karlmenn sem stunda kynlíf með öðrum karlmönnum.“ Sama þróun hefur jafnframt átt sér stað með sárasótt og í fyrra var fjöldi nýgreindra með HIV-sýkingu sá hæsti á einu ári frá því faraldur- inn hófst. – þea Sóttvarnalæknir óttast afleiðingar kynsjúkdóma SkipulagSmál Deila tveggja land- eigenda í Húsafelli þarf að fara að nýju fyrir úrskurðarnefnd umhverf- is- og auðlindamála. Eins og Fréttablaðið sagði frá 5. október 2016 er listamaðurinn Páll Guðmundson að reisa nýtt hús við vinnustofur sínar í Húsafelli. „Það er verið að gera legsteinahús um alla gömlu, merkilegu legsteinana sem forfeður mínir á Húsafelli gerðu,“ sagði Páll í Fréttablaðinu. Deiliskipulag lóðarinnar og byggingarleyfi hússins var kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála af Sæmundi Ásgeirs- syni, sem keypti gamla Húsafellsbæ- inn á árinu 2009 og rekur þar gisti- heimili. Steinsnar er milli húsanna. Sæmundur sagði aðkomu að gisti- heimilinu og bílastæðum tekna burt og bílastæðin verða notuð af gestum safns Páls. Ómögulegt yrði að stækka gistiheimilið og hann myndi því verða af tekjum. Átroðn- ingur safngesta á hlaði gistiheimilis- ins myndi ennfremur gera rekstur þess erfiðan. Úrskurðarnefndin sagði hins vegar kæru Sæmundar vegna deili- skipulagsins of seint fram komna og hafnaði því sömuleiðis að ógilda byggingarleyfi vegna legsteinasafns- ins. Sæmundur leitaði í framhaldinu til Umboðsmanns Alþingis sem segir ekki ljóst hvort nefndin hafi tekið formlega afstöðu til þess hvort umdeild  auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins hafi verið birt með fullnægjandi hætti: „Hafði þetta álitaefni þó sérstaka og verulega þýðingu í því máli sem hér er til umfjöllunar, enda verður að telja að þegar hvort tveggja nafn svæðis sem deiliskipulag á að taka til sem og landnúmer þess er rang- lega tilgreint í auglýsingu skipu- lagsins í Stjórnartíðindum hljóti að vakna umtalsverður vafi um það hvort slík birting geti talist fullnægjandi,“ segir í niðurstöðu umboðsmanns sem leggur fyrir úrskurðarnefndina að taka málið fyrir ef Sæmundur óskar þess og það mun hann þegar hafa gert. Deilan stendur í raun um tvö hús; safnahúsið sem nú er verið að steypa upp og timburhús sem flutt var á staðinn eftir að deiliskipu- lagið var kært. Óljóst er hvor húsin þurfa að víkja falli málið á endanum Sæmundi í vil og Páli í óhag. – gar Legsteinasafn Páls fer á ný fyrir úrskurðarnefnd 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 0 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 1 2 0 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 2 5 -B A 2 8 1 E 2 5 -B 8 E C 1 E 2 5 -B 7 B 0 1 E 2 5 -B 6 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 0 s _ 3 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.