Fréttablaðið - 04.11.2017, Page 12
LISTVINAfélag hallgrímskirkju 35. starfsár
THE HALLGRÍMSKIRKJA FRIENDS OF THE ARTS SOCIET Y 35TH SEASON
KÓRPERLUR Á ALLRA HEILAGRA MESSU
í Hallgrímskirkju
Gemstones of a capella choral music on All Saint’s Day
L I S T V I N A F E L A G . I S • S C H O L A C A N T O R U M . I S
AÐGANGSEYRIR / ADMISSION: ISK 3500
MIÐASALA / Ticket sale: Hallgrímskirkja s. / tel. 510 1000 og MIDI.IS ( online midi.is )
SCHOLA CANTORUM
STJÓRNANDI / Conductor: Hörður Áskelsson
Sunnudaginn 5. nóvember kl. 17
Sunday November 5th at 5 pm
Media vita eftir John Sheppard
Miserere eftir James MacMillan
Requiem eftir Kjell Mörk Karlsen
efnisskrá / programme
Upplýsingatæknideild Reykjavíkurborgar (UTD) undirbýr innkaup á upplýsinga- og skjalakerfi
fyrir Reykjavíkurborg. Um er að ræða rafrænt umsjónarkerfi mála, verkefna, skjala, skráa og
annarra gagna, sem heldur utan um myndun, umsjón, umsýslu, vinnslu, notkun, stjórnun
og varðveislu upplýsinga. Mikilvægt er að kerfið styðji við skilgreinda verkferla í starfsemi
Reykjavíkurborgar og allt utanumhald gæðamála.
Hluti af undirbúningi fyrir innkaupin er að kalla eftir upplýsingum frá aðilum á markaði
sem bjóða slík kerfi. Þeir sem hafa áhuga á að kynna virkni sinna kerfa og þjónustu skulu
vinsamlegast hafa samband við Sigurlaugu B. Stefánsdóttur verkefnastjóra hjá UTD fyrir
15. nóvember nk. á netfangið sigurlaug.bjorg.stefansdottir@reykjavik.is
Athugið að þessi markaðskönnun felur ekki í sér neina skuldbindingu um innkaup,
hvorki af hálfu Reykjavíkurborgar né áhugasamra aðila. Ekki liggur endanlega fyrir
hvenær innkaupaferlið hefst en það verður framkvæmt í samræmi við lög um
opinber innkaup nr. 120/2016 og innkaupareglur Reykjavíkurborgar.
reykjavik.is/upplysingakerfi-fyrir-reykjavikurborg
Upplýsingakerfi fyrir Reykjavíkurborg
Markaðskönnun vegna innkaupa
Sýrland Deir al-Zour, síðasta stóra
vígi hryðjuverkasamtakanna sem
kenna sig við íslamskt ríki, féll í
hendur Sýrlandshers í gær. Frá
þessu greindi ríkissjónvarpið þar í
landi en aðrir miðlar greindu jafn-
framt frá því að herinn væri nú að
hrekja ISIS burt af öðrum smærri
svæðum á sama tíma. Þá var sömu
sögu að segja af störfum írakska
hersins sem rekur um þessar mund-
ir hryðjuverkamenn frá síðustu
bæjum þeirra sín megin við landa-
mæri ríkjanna.
ISIS hefur verið við völd í Deir al-
Zour undanfarin þrjú ár en borgin
gegndi lykilhlutverki í hinu svokall-
aða kalífadæmi samtakanna vegna
nálægðar við landamærin að Írak.
Á undanförnum mánuðum hafa
hryðjuverkasamtökin einnig misst
höfuðvígin Mósúl og Raqqa. Er því
farið að syrta allverulega í álinn fyrir
ISIS.
Þessir stóru ósigrar hafa leitt til
þess að hið svokallaða kalífadæmi
ISIS virðist vera á enda. Lýst var yfir
stofnun kalífadæmis í júní 2014
og gerðu forsprakkar þess tilkall
til trúarlegra, pólitískra og hern-
aðarlegra yfirvalda yfir öllum mús-
limum heimsins. Það var jafnframt
á þessum tíma sem samtökin hófu
að kenna sig við íslamskt ríki. Engin
sjálfstæð ríki viðurkenndu sjálf-
stæði þessa kalífadæmis.
Að mati utanríkismálagreinanda
BBC, Jonathans Marcus, er góður
árangur Sýrlandshers góð áminn-
ing um að stríðið gegn kalífadæm-
inu sé að vinnast. Þrátt fyrir það sé
staðan að flækjast. Marcus hélt því
fram í gær að vegna stríðsins hafi
sýrlenskir uppreisnarmenn, ríkis-
stjórnarherinn og Kúrdar beint
sjónum sínum að ISIS en nú gæti
það farið að breytast.
Kalífadæmið spannar nú einungis
brotabrot af því sem var þegar það
var sem stærst. Fara liðsmenn ISIS
einungis með völd á litlum svæðum
í Deir al-Zour-héraði sem og Íraks-
megin við landamærin. Eins og áður
segir sækja herir beggja ríkja þó stíft
og er útlit fyrir að samtökin missi
allt sitt landsvæði á næstunni.
Samkvæmt hernaðarbandalaginu
gegn ISIS, sem Bandaríkin eru í for-
svari fyrir, hefur tekist að hrekja
samtökin á brott frá 95 prósentum
þess landsvæðis sem áður voru
undir hæl hryðjuverkasamtakanna.
Jafnframt hefur tekist að frelsa 4,4
milljónir írakskra borgara undan
samtökunum, að því er bandalagið
greinir frá.
Undir lok októbermánaðar voru
liðsmenn samtakanna á Filippseyj-
um hraktir frá borginni Marawi eftir
fimm mánaða orrustu. Er borgin nú
öll á valdi ríkisstjórnarinnar en talið
er að 87 almennir borgarar hafi látið
lífið í átökunum og rúm milljón
misst heimili sín.
Þótt kalífadæmið sé á síðasta
snúningi hafa hryðjuverkasamtökin
ekki verið sigruð, að því er kemur
fram í fréttaskýringu The Guardian.
Enn eru liðsmenn þeirra margir og
dreifðir víða um Mið-Austurlönd
og jafnframt heiminn og verður
því erfitt að uppræta starfsemi sam-
takanna.
thorgnyr@frettabladid.is
Síðustu dagar
kalífadæmisins
Íslamska ríkið hefur misst 95 prósent af því land-
svæði sem hryðjuverkasamtökin réðu yfir. Deir
al-Zour, síðasta stóra vígi samtakanna í Sýrlandi, féll
í hendur Sýrlandshers í gær. Unnið er að upprætingu
samtakanna bæði í Írak og Sýrlandi. Fall kalífadæm-
isins þýðir þó ekki endalok Íslamska ríkisins.
Sýrlenskur hermaður fagnar sigri í gær. NordicphotoS/AFp
Tekist hefur að frelsa 4,4
milljónir írakskra borgara úr
klóm Íslamska ríkisins og
endurheimta 95 prósent
landsvæðis kalífadæmisins.
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 l a U G a r d a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
5
-A
6
6
8
1
E
2
5
-A
5
2
C
1
E
2
5
-A
3
F
0
1
E
2
5
-A
2
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K