Fréttablaðið - 04.11.2017, Page 30

Fréttablaðið - 04.11.2017, Page 30
Líney Arnórsdóttir er í stuttu fríi heima á Íslandi. Hún er þrjátíu og tveggja ára gömul, býr í San Fransisco, nánar tiltekið í Kísil- dalnum, og starfar hjá frumkvöðla- fyrirtækinu Pocket Games. Námsferill Líneyjar er glæsilegur. Hún þakkar það góðri undirstöðu í æsku. Hún naut skólagöngu víða um heim. Foreldrar hennar eru Guðrún Matthíasdóttir og Arnór Sigurjónsson, starfsmaður utan- ríkisráðuneytisins. „Við fluttum oft þegar ég var lítil. Ég flutti fyrst út þriggja ára gömul. Átta ára gömul til Bandaríkjanna. Þrettán ára gömul til Brussel í Belgíu. Ég held það hafi hjálpað mér mikið að fá að stunda nám við góða einkaskóla í Evrópu, sá í Brussel var einn sá allra besti. Þar var nám á háu stigi og ég lærði að taka nám alvarlega. Að kunna að meta það sem mér bauðst og oft voru kennararnir á heimsmæli- kvarða,“ segir Líney. Fékk fullan námsstyrk Líney flutti heim sextán ára gömul. „Ég var langt á undan jafnöldrum mínum á Íslandi í námi. Ég hóf nám á alþjóðabraut í Menntaskólanum við Hamrahlíð og útskrifaðist á tveimur árum, sautján ára gömul. Ég tók mér leyfi frá námi eftir útskrift- ina en skráði mig svo seinna í sál- fræði við Háskóla Íslands. Þaðan útskrifaðist ég semidúx árið 2007,“ segir Líney og rekur skólagöngu sína hér á landi. Líney fór í vísindaferð ásamt fleiri nemendum í sálfræði í sendi- ráð Bandaríkjanna. „Þar heyrði ég útundan mér af styrkveitingu í boði til náms í Bandaríkjunum. Mig dreymdi um að búa og starfa í Bandaríkjunum svo ég vatt mér í sendiráðið og sótti um styrk til náms við Háskólann í Miami. Það kom mér á óvart þegar ég fékk styrk- inn að hann reyndist fullur náms- styrkur til tveggja ára,“ segir Líney, sem segist hafa pakkað föggum sínum niður í snatri og flutt út. „Ég hafði mánuð til að flytja til Banda- ríkjanna og hefja nám við skólann. Svo ég þurfti að vera snör í snún- ingum,“ segir Líney. Heim í hruninu „Ég stundaði nám í almanna- tengslum við Háskólann í Miami og gekk afar vel. Ég kenndi við skólann og varð dúx. Mér líkaði vel í skólanum en gat ekki hugsað mér að búa þar áfram. Það er oft glíma, annað hvort líkar mér skólinn eða vinnustaðurinn eða borgin sem ég bý í. Það hefur alltof sjaldan farið saman,“ segir Líney. „Það hefur alltaf verið draumur minn að búa í New York. Þess vegna ákvað ég að keppa um stöðu hjá einu stærsta almanna- tengslafyrirtæki heims, Ketchum í New York. Ég var ein tíu nýútskrif- aðra sem kepptu um starfið. Reynslu- tíminn var tíu vikur. Ég hlaut starfið en þá kom babb í bátinn. Þetta var nefnilega árið 2010. Hrunið lék Bandaríkjamenn illa og Obama hafði stöðvað útgáfu atvinnuleyfa. Það fór því þannig að þótt ég hefði lagt allt þetta á mig og fengið starfið þurfti ég að snúa aftur heim til Íslands,“ segir Líney frá. „Hingað var ég komin í gríðar- lega erfitt atvinnuástand. Nýbúin að landa draumastarfinu en föst, atvinnulaus á Íslandi. Ég tók að mér öll þau verkefni sem mér buðust. Ég tók að mér verkefni fyrir Útflutnings- ráð og fyrir Útón. Ég gafst hins vegar ekki upp á New York. Ég sannfærði yfirmenn mína hjá Ketchum um að ráða sér lögfræðinga og ná atvinnu- leyfinu fyrir mig. Það hófst og ég flutti aftur út,“ segir Líney frá. Hún starfaði hjá Ketchum í þrjú ár. Henni líkaði vel að búa í borginni. Segir það henta sér vel að búa í stór- borgum þar sem er fjöldi fólks með ólíkan bakgrunn. Þannig skeri hún sig ekki sérstaklega úr hópnum. Er hvorki heimamaður né aðkomu- maður. „Í þetta sinn var það vinnu- staðurinn sem hentaði mér ekki. Ég ákvað að flytja aftur heim. Þá hafði Útflutningsráð orðið að Íslands- stofu. Mörg spennandi verkefni sem þau unnu að, svo sem Inspired by Iceland og fleiri. Þau höfðu reglulega samband við mig út og spurðu mig hvort ég vildi koma heim að vinna fyrir þau. Einn daginn sló ég bara til,“ segir Líney frá. Lærði öll kvöld og helgar Á Íslandsstofu fékk hún umsjón með umfjöllun um Ísland og varð einnig tengiliður við Norður-Amer- íku. „Ég ákvað að læra tungumálið og kynnast upprunalandinu betur. Ég hafði aldrei búið lengi á Íslandi sem fullorðin manneskja og fann fljótt fyrir óþreyju að komast aftur út í stærra samfélag. Það var samt ótrúlega góð og skemmtileg reynsla að starfa hér,“ segir hún frá. Hugmyndin að því að sækja um í MBA nám við Stanford Graduate School of Business kviknaði. Hún einsetti sér að hljóta inngöngu og setti allt kapp á það. Aðeins fjórir Íslendingar hafa hlotið inngöngu í námið. Líney varð fyrsta konan til að komast í skólann. „Ég er ekki með þennan dæmigerða bakgrunn sem fólk hefur sem tekið er inn í skólann, viðskiptafræði eða hag- fræði. Fram undan var inntökupróf og ritgerðaskrif. Ég læsti mig inni um kvöld og helgar og lærði stíft – í marga mánuði. Fjölskyldan hélt ég væri að missa vitið. En ég tók prófið og fékk nógu háa einkunn og fékk að halda áfram í ferlinu. Ég skrifaði ritgerðirnar og skilaði þeim. Fékk svo loksins tölvupóst um að ég hefði komist í viðtal,“ segir Líney um ferlið. Fékk hjálp við kostnað „Mér var sagt að því miður væri enginn á Íslandi tiltækur til að taka viðtalið við mig. En ef ég væri fyrir tilviljun í London tveimur dögum seinna, þá væri hægt að taka það þar. Ég lét sem það væri einmitt svo. Ég væri einmitt fyrir algjöra tilviljun stödd í London eftir tvo daga. Þvílík heppni,“ segir Líney og hlær því hún pantaði sér flug til London strax eftir að símtalinu lauk. „Viðtalið fór fram á British Museum. Þangað kom aðvífandi bankagaur frá New York í síðum frakka. Þetta var bara eins og atriði í James Bond mynd. Ég fór til Íslands daginn eftir og beið eftir símtali, ég missti reyndar næstum af því. En svarið var já! Ég komst inn.“ Líney komst fljótlega að því að hún myndi ekki þurfa að hafa miklar áhyggjur af kostnaði við námið. „Ef þeir sem komast inn í skólann þurfa á styrkjum að halda til að klára námið, þá fást þeir. Þeir vilja halda í það fólk sem velst inn í skólann. Ég ræddi við tvo af þeim Íslendingum sem komust inn í námið til að fræðast um þetta og fleira.“ Condoleezza Rice kenndi Námið í skólanum var ævintýra- legt að sögn Líneyjar. Hún naut leið- sagnar heimsþekktra fyrirlesara og kennara. „Condoleezza Rice kenndi mér á fyrsta árinu. Mér fannst gaman að segja pabba frá því. Þá kenndu mér Steve Ballmer, framkvæmdastjóri Microsoft, og Evan Spiegel, fram- kvæmdastjóri Snap chat. Þetta var góður tími, segir Líney frá. Hún segir kostnaðinn ekki hafa sligað sig. „Mér var hjálpað mikið, skólagjöldin voru ekki sligandi en maður lifir svolítið hátt í kringum þessa krakka. Þurfti að ferðast út um allt. Það var kostn- aður sem ég þurfti að standa undir,“ nefnir hún. Íslendingar í Kísildalnum Líney útskrifaðist frá Stanford síðasta sumar og hefur síðan unnið í tækni- geiranum í Kísildalnum hjá frum- kvöðlafyrirtækinu Pocket Games. „Þetta er tölvuleikjafyrirtæki sem sér um markaðssetningu á leikjum fyrir fræga fólkið. Ég hef verið að vinna með Dolan tvíburunum sem yngri kynslóðin þekkir vel. Það er mjög spes að semja við sextán ára gaura, þeir vita alveg hvað þeir vilja. Ég hef líka unnið með leikkonunum úr Pretty Little Liars og fyrir Demi Lovato. Pocket Games telst lítið fyrir- tæki í Kísildalnum, þar starfa um 300 manns. Það er svolítið fyndið að þar erum við fjórir Íslendingar. Ekkert okkar þekktist áður. Það er merkilegt vegna þess að í öllum dalnum eru í Úr Stanford í Kísildalinn Líney Arnórsdóttir var fyrsta íslenska konan til að hljóta inngöngu í MBA í Stanford há- skóla í Kaliforníu. Eftir útskrift fékk hún starf hjá tæknifyrirtæki í Kísildalnum. Líney segir frá glæstum námsferli sínum og lífinu í Kísil- dalnum þar sem hallar verulega á konur. Líney þakkar góðri undirstöðu í einkaskólum í Evrópu góðan árangur sinn í námi og starfi. FRéttabLaðið/ERniR Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Mér var hjálpað Mikið, skólagjöldin voru ekki sligandi en Maður lifir svolítið hátt í kringuM þessa krakka. þurfti að ferðast út uM allt. ↣ 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r30 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 0 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 1 2 0 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 2 5 -9 C 8 8 1 E 2 5 -9 B 4 C 1 E 2 5 -9 A 1 0 1 E 2 5 -9 8 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 2 0 s _ 3 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.