Fréttablaðið - 04.11.2017, Side 61
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2017.
Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir
hæfni í starfið skulu berast á netfangið mos@mos.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Pétur J. Lockton, fjármálastjóri, í
síma 525 6700. Um framtíðarstarf er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um starfið.
Innheimtufulltrúi í fjármáladeild
MOSFELLSBÆR LEITAR AÐ INNHEIMTUFULLTRÚA Í FJÁRMÁLADEILD
Innheimtufulltrúi fjármáladeildar sér um reikningagerð, innheimtu reikninga, árlega álagningu
fasteignagjalda og reglulegar breytingar á fasteignagjöldum. Starfið er fjölbreytt og felur í sér mikil
samskipti og samvinnu við starfsmenn í öðrum deildum, innheimtuaðila, þjónustuaðila
hugbúnaðarkerfa og viðskiptamenn. Innheimtufulltrúi sér einnig um móttöku rafrænna reikninga frá
lánardrottnum og tekur þátt í öðrum verkefnum fjármáladeildar.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og
umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Stúdentspróf eða sambærilegt nám
skilyrði
Önnur menntun sem nýtist í starfi
æskileg
Reynsla af innheimtustörfum er æskileg
Mjög góð tölvukunnátta og góð færni í
excel er skilyrði
Reynsla af fjárhagskerfi NAV er æskileg
Góð samskiptahæfni , jákvætt viðhorf og
lausnamiðuð hugsun er skilyrði
Skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæði
í vinnubrögðum er skilyrði
Tölugleggni og vandvirkni í
vinnubrögðum er nauðsynleg
Metnaður og sjálfstæði í starfi
Viltu taka þátt í að móta lista- og menningarlíf í Reykjavík?
Menningar- og ferðamálasvið
Við leitum að skrifstofustjóra menningarmála.
Menningar- og ferðamálasvið fer með framkvæmd menningar- og ferðamála hjá Reykjavíkurborg. Sviðið hefur yfirumsjón með
starfsemi Borgarbókasafns Reykjavíkur, Borgarsögusafns Reykjavíkur, Höfuðborgarstofu og Listasafns Reykjavíkur.
Sviðið hefur jafnframt umsjón með málefnum Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi, tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu,
Listahátíðar í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Menningar- og ferðamálasvið sér um
samninga, styrki og samskipti við lista- og menningarlífið og er borgaryfirvöldum til faglegrar ráðgjafar í þeim málaflokkum
sem undir sviðið heyra.
Verksvið og megin verkefni starfs:
• Annast almenna stjórnsýslu á sviði menningarmála og
heldur utan um starfssamninga, styrki, húsnæðissamninga
og viðurkenningar á vettvangi menningarmála.
• Er næsti yfirmaður viðburðateymis Menningar- og
ferðamála sviðs sem heldur utan um Vetrarhátíð í Reykjavík,
Barnamenningarhátíð, hátíðarhöld á 17. júní, Menningarnótt,
tendrun Friðarsúlunnar og hátíðarhöld á aðventunni.
• Undirbýr mótun menningarstefnu og uppfærslu
aðgerðaáætlunar hennar.
• Ber ábyrgð á umsjón ýmissa sérverkefna og situr í
starfshópum tímabundinna verkefna skipuðum af ráðinu
eða sviðsstjóra.
• Vinnur að áætlanagerð og eftirliti með faglegum þáttum
einstakra verkefna.
• Ritstýrir árlegri starfsáætlun sviðsins og sinnir reglubundnu
árangursmati sviðsins í menningarmálum.
• Tilheyrir framkvæmdastjórn Menningar- og ferðamálasviðs
og situr fundi menningar- og ferðamálaráðs.
Reynsla og hæfni sem krafist er:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldspróf sem nýtist í
starfi er kostur.
• Víðtæk þekking og reynsla af þátttöku í lista- og
menningarlífi er skilyrði.
• Þekking á starfsumhverfi opinberrar stjórnsýslu er æskileg.
• Stjórnunarreynsla er æskileg.
• Kunnátta og reynsla af samningagerð er kostur.
• Reynsla af stefnumótunarvinnu er kostur.
• Reynsla af viðburðastjórnun.
• Reynsla af áætlanagerð.
• Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Gott vald á Norðurlandamáli er kostur.
• Góð almenn tölvufærni.
• Frumkvæði, sjálfstæði og skapandi hugsun við
framkvæmd verkefna.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum,
skipulagshæfni og nákvæmni í störfum.
Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir því hvernig umsækjandi mætir
ofangreindum kröfum.
Launakjör heyra undir kjaraákvörðun kjaranefndar Reykjavíkurborgar og um ráðningarréttindi gilda reglur um réttindi og
skyldur stjórnenda hjá Reykjavíkurborg. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Næsti yfirmaður er sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs sem fer með framkvæmd menningar- og ferðamála
hjá Reykjavíkurborg.
Nánari upplýsingar veita:
arna.schram@reykjavik.is, sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs og baldur.orn.arnarson@reykjavik.is, mannauðsstjóri
Menningar- og ferðamálasviðs.
Sérstök athygli er vakin á markmiðum starfsmanna- og mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar sem er að finna á www.reykjavik.is
Umsóknarfrestur er til og með 19. nóv.n.k. Umsóknir skulu sendar á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf
Sérfræðingur á
stjórnsýslusviði
Ríkisendurskoðun auglýsir laust til umsóknar starf sér-
fræðings á stjórnsýslusviði stofnunarinnar. Á sviðinu starfar
fólk með margvíslega menntun. Meginviðfangsefni þess
eru stjórnsýsluúttektir, þ.e. að meta frammistöðu þeirra
aðila sem ríkisendurskoðandi hefur eftirlit með. Einkum er
horft til þess hvort hagkvæmni og skilvirkni sé gætt í rekstri
stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins og hvort framlög ríkisins
skili þeim árangri sem að er stefnt. Um er að ræða fjölbreytt
og krefjandi starf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi
sem hefur reynslu af úttektarvinnu og skýrslugerð, er mjög
vel ritfær, vandvirkur og með góða greiningar- og ályktunar-
hæfni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starf sérfræðings felst í úttektarvinnu og skýrslugerð auk
almennrar þátttöku í innra starfi sviðsins. Hann starfar
sjálfstætt að verkefnum sínum í samræmi við gæðakröfur
stjórnsýslusviðs og starfsáætlanir og þarf að geta leitt þau til
lykta í samvinnu við sviðsstjóra / deildarstjóra.
Hæfnikröfur
• Háskólamenntun (meistarapróf) sem nýtist í starfi
• Reynsla af vinnu við úttektir / skýrslugerð
• Þekking á ríkisrekstri og opinberri stjórnsýslu
• Samviskusemi, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
• Gagnrýnin og lausnarmiðuð hugsun
• Færni í greiningu, úrvinnslu og miðlun tölulegra gagna
• Mjög góð kunnátta í íslensku og geta til að skrifa hnit-
miðaðan, vandaðan og læsilegan texta
• Gott vald á Word og Excel og hæfileiki til að tileinka sér
ný tölvukerfi
• Góð enskukunnátta er nauðsynleg og kunnátta í einu
Norðurlandamáli æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Um fullt starf er að ræða og skal sótt um á vef Starfatorgs,
starfatorg.is. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst. Nauðsynlegt er að umsókn fylgi starfsferilskrá, kynn-
ingarbréf, afrit af staðfestum prófskírteinum og upplýsingar
um umsagnaraðila. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að
sækja um starfið. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamn-
ingi Starfsmannafélags Ríkisendurskoðunar.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið
ákvörðun um ráðningu.
Umsókn getur gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Umsóknarfrestur er til og með 13.11.2017
Nánari upplýsingar veitir Þórir Óskarsson - thorir@rikisend.is
Ríkisendurskoðun er sjálfstæð stofnun sem starfar á vegum
Alþingis. Stofnunin endurskoðar ríkisreikning og reikninga
ríkisaðila, hefur eftirlit með og stuðlar að umbótum á fjármála-
stjórn ríkisins og nýtingu almannafjár. Hún gerir grein fyrir
niðurstöðum úttekta í skýrslum sem sendar eru Alþingi og birtar
opinberlega. Ríkisendurskoðandi ræður starfsfólk stofnunarinnar.
Ríkisendurskoðun er til húsa í Bríetartúni 7, 107 Reykjavík.
Starfsmenn eru nú samtals 47.
Sjá nánar: www.rikisendurskodun.is
Bifvélavirki óskast
Aðalskoðun hf. óskar eftir að ráða bifvélavirkja til starfa við
skoðun ökutækja á höfuðborgarsvæðinu. Um framtíðarstarf er að
ræða. Umsóknarfrestur er til 18. nóvember.
Sveinspróf í bifvélavirkjun skilyrði.
Aðalskoðun leggur áherslu á fagleg vinnubrögð við skoðun
ökutækja og ríka þjónustulund, en í starfinu felast eðlilega mikil
samskipti við viðskiptavini.
Nánari upplýsingar veita Árni Stefánsson þjónustustjóri
og Hörður Harðarson fagstjóri. Sími 5906900.
Umsóknir sendist til Árna Stefánssonar, arni@adalskodun.is.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum
umsóknum verður svarað að loknum umsóknarfresti.
Aðalskoðun hf. er faggild óháð skoðunarstofa sem starfrækir í dag
fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu ásamt skoðu-
narstöð í Reykjanesbæ. Aðalskoðun sinnir einnig skoðunum í
Grundarfirði, Ólafsfirði og Reyðarfirði.
0
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
5
-E
B
8
8
1
E
2
5
-E
A
4
C
1
E
2
5
-E
9
1
0
1
E
2
5
-E
7
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K