Fréttablaðið - 04.11.2017, Page 61

Fréttablaðið - 04.11.2017, Page 61
 Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2017. Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu berast á netfangið mos@mos.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Pétur J. Lockton, fjármálastjóri, í síma 525 6700. Um framtíðarstarf er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um starfið. Innheimtufulltrúi í fjármáladeild MOSFELLSBÆR LEITAR AÐ INNHEIMTUFULLTRÚA Í FJÁRMÁLADEILD Innheimtufulltrúi fjármáladeildar sér um reikningagerð, innheimtu reikninga, árlega álagningu fasteignagjalda og reglulegar breytingar á fasteignagjöldum. Starfið er fjölbreytt og felur í sér mikil samskipti og samvinnu við starfsmenn í öðrum deildum, innheimtuaðila, þjónustuaðila hugbúnaðarkerfa og viðskiptamenn. Innheimtufulltrúi sér einnig um móttöku rafrænna reikninga frá lánardrottnum og tekur þátt í öðrum verkefnum fjármáladeildar. Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Menntunar- og hæfnikröfur:  Stúdentspróf eða sambærilegt nám skilyrði  Önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg  Reynsla af innheimtustörfum er æskileg  Mjög góð tölvukunnátta og góð færni í excel er skilyrði  Reynsla af fjárhagskerfi NAV er æskileg  Góð samskiptahæfni , jákvætt viðhorf og lausnamiðuð hugsun er skilyrði  Skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum er skilyrði  Tölugleggni og vandvirkni í vinnubrögðum er nauðsynleg  Metnaður og sjálfstæði í starfi Viltu taka þátt í að móta lista- og menningarlíf í Reykjavík? Menningar- og ferðamálasvið Við leitum að skrifstofustjóra menningarmála. Menningar- og ferðamálasvið fer með framkvæmd menningar- og ferðamála hjá Reykjavíkurborg. Sviðið hefur yfirumsjón með starfsemi Borgarbókasafns Reykjavíkur, Borgarsögusafns Reykjavíkur, Höfuðborgarstofu og Listasafns Reykjavíkur. Sviðið hefur jafnframt umsjón með málefnum Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi, tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu, Listahátíðar í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Menningar- og ferðamálasvið sér um samninga, styrki og samskipti við lista- og menningarlífið og er borgaryfirvöldum til faglegrar ráðgjafar í þeim málaflokkum sem undir sviðið heyra. Verksvið og megin verkefni starfs: • Annast almenna stjórnsýslu á sviði menningarmála og heldur utan um starfssamninga, styrki, húsnæðissamninga og viðurkenningar á vettvangi menningarmála. • Er næsti yfirmaður viðburðateymis Menningar- og ferðamála sviðs sem heldur utan um Vetrarhátíð í Reykjavík, Barnamenningarhátíð, hátíðarhöld á 17. júní, Menningarnótt, tendrun Friðarsúlunnar og hátíðarhöld á aðventunni. • Undirbýr mótun menningarstefnu og uppfærslu aðgerðaáætlunar hennar. • Ber ábyrgð á umsjón ýmissa sérverkefna og situr í starfshópum tímabundinna verkefna skipuðum af ráðinu eða sviðsstjóra. • Vinnur að áætlanagerð og eftirliti með faglegum þáttum einstakra verkefna. • Ritstýrir árlegri starfsáætlun sviðsins og sinnir reglubundnu árangursmati sviðsins í menningarmálum. • Tilheyrir framkvæmdastjórn Menningar- og ferðamálasviðs og situr fundi menningar- og ferðamálaráðs. Reynsla og hæfni sem krafist er: • Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldspróf sem nýtist í starfi er kostur. • Víðtæk þekking og reynsla af þátttöku í lista- og menningarlífi er skilyrði. • Þekking á starfsumhverfi opinberrar stjórnsýslu er æskileg. • Stjórnunarreynsla er æskileg. • Kunnátta og reynsla af samningagerð er kostur. • Reynsla af stefnumótunarvinnu er kostur. • Reynsla af viðburðastjórnun. • Reynsla af áætlanagerð. • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku. Gott vald á Norðurlandamáli er kostur. • Góð almenn tölvufærni. • Frumkvæði, sjálfstæði og skapandi hugsun við framkvæmd verkefna. • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, skipulagshæfni og nákvæmni í störfum. Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir því hvernig umsækjandi mætir ofangreindum kröfum. Launakjör heyra undir kjaraákvörðun kjaranefndar Reykjavíkurborgar og um ráðningarréttindi gilda reglur um réttindi og skyldur stjórnenda hjá Reykjavíkurborg. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs sem fer með framkvæmd menningar- og ferðamála hjá Reykjavíkurborg. Nánari upplýsingar veita: arna.schram@reykjavik.is, sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs og baldur.orn.arnarson@reykjavik.is, mannauðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs. Sérstök athygli er vakin á markmiðum starfsmanna- og mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar sem er að finna á www.reykjavik.is Umsóknarfrestur er til og með 19. nóv.n.k. Umsóknir skulu sendar á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf Sérfræðingur á stjórnsýslusviði Ríkisendurskoðun auglýsir laust til umsóknar starf sér- fræðings á stjórnsýslusviði stofnunarinnar. Á sviðinu starfar fólk með margvíslega menntun. Meginviðfangsefni þess eru stjórnsýsluúttektir, þ.e. að meta frammistöðu þeirra aðila sem ríkisendurskoðandi hefur eftirlit með. Einkum er horft til þess hvort hagkvæmni og skilvirkni sé gætt í rekstri stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins og hvort framlög ríkisins skili þeim árangri sem að er stefnt. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur reynslu af úttektarvinnu og skýrslugerð, er mjög vel ritfær, vandvirkur og með góða greiningar- og ályktunar- hæfni. Helstu verkefni og ábyrgð Starf sérfræðings felst í úttektarvinnu og skýrslugerð auk almennrar þátttöku í innra starfi sviðsins. Hann starfar sjálfstætt að verkefnum sínum í samræmi við gæðakröfur stjórnsýslusviðs og starfsáætlanir og þarf að geta leitt þau til lykta í samvinnu við sviðsstjóra / deildarstjóra. Hæfnikröfur • Háskólamenntun (meistarapróf) sem nýtist í starfi • Reynsla af vinnu við úttektir / skýrslugerð • Þekking á ríkisrekstri og opinberri stjórnsýslu • Samviskusemi, frumkvæði og sjálfstæði í starfi • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum • Gagnrýnin og lausnarmiðuð hugsun • Færni í greiningu, úrvinnslu og miðlun tölulegra gagna • Mjög góð kunnátta í íslensku og geta til að skrifa hnit- miðaðan, vandaðan og læsilegan texta • Gott vald á Word og Excel og hæfileiki til að tileinka sér ný tölvukerfi • Góð enskukunnátta er nauðsynleg og kunnátta í einu Norðurlandamáli æskileg Frekari upplýsingar um starfið Um fullt starf er að ræða og skal sótt um á vef Starfatorgs, starfatorg.is. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nauðsynlegt er að umsókn fylgi starfsferilskrá, kynn- ingarbréf, afrit af staðfestum prófskírteinum og upplýsingar um umsagnaraðila. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamn- ingi Starfsmannafélags Ríkisendurskoðunar. Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu. Umsókn getur gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. Umsóknarfrestur er til og með 13.11.2017 Nánari upplýsingar veitir Þórir Óskarsson - thorir@rikisend.is Ríkisendurskoðun er sjálfstæð stofnun sem starfar á vegum Alþingis. Stofnunin endurskoðar ríkisreikning og reikninga ríkisaðila, hefur eftirlit með og stuðlar að umbótum á fjármála- stjórn ríkisins og nýtingu almannafjár. Hún gerir grein fyrir niðurstöðum úttekta í skýrslum sem sendar eru Alþingi og birtar opinberlega. Ríkisendurskoðandi ræður starfsfólk stofnunarinnar. Ríkisendurskoðun er til húsa í Bríetartúni 7, 107 Reykjavík. Starfsmenn eru nú samtals 47. Sjá nánar: www.rikisendurskodun.is Bifvélavirki óskast Aðalskoðun hf. óskar eftir að ráða bifvélavirkja til starfa við skoðun ökutækja á höfuðborgarsvæðinu. Um framtíðarstarf er að ræða. Umsóknarfrestur er til 18. nóvember. Sveinspróf í bifvélavirkjun skilyrði. Aðalskoðun leggur áherslu á fagleg vinnubrögð við skoðun ökutækja og ríka þjónustulund, en í starfinu felast eðlilega mikil samskipti við viðskiptavini. Nánari upplýsingar veita Árni Stefánsson þjónustustjóri og Hörður Harðarson fagstjóri. Sími 5906900. Umsóknir sendist til Árna Stefánssonar, arni@adalskodun.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað að loknum umsóknarfresti. Aðalskoðun hf. er faggild óháð skoðunarstofa sem starfrækir í dag fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu ásamt skoðu- narstöð í Reykjanesbæ. Aðalskoðun sinnir einnig skoðunum í Grundarfirði, Ólafsfirði og Reyðarfirði. 0 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 1 2 0 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 2 5 -E B 8 8 1 E 2 5 -E A 4 C 1 E 2 5 -E 9 1 0 1 E 2 5 -E 7 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 2 0 s _ 3 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.