Fréttablaðið - 04.11.2017, Blaðsíða 80
Afinn og faðir
körfuboltans
í Hafnarfirði,
Ingvar Jónsson,
með tveimur
barnabörnum
sínum og körfu-
boltastrákum.
Hilmar Péturs-
son er til vinstri
og Kári Jónsson
til hægri.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Ljóðstafur
Jóns
úr Vör
Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar
efnir í sautjánda sinn til árlegu ljóða sam-
keppninnar um Ljóðstaf Jóns úr Vör.
Skilafrestur er til og með 8. desember
og skal ljóðum skilað í fjórum eintökum
undir dulnefni. Hverju ljóði skal fylgja
umslag merkt með dulnefninu sem
inniheldur upplýsingar um nafn,
heimilisfang, símanúmer og netfang
skáldsins. Einungis umslög sem tilheyra
ljóðum sem fá verðlaun eða viðurkenningu
verða opnuð og öllum gögnum verður
fargað að keppni lokinni. Athugið að ljóðin
mega ekki hafa birst áður.
Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar
Skilafrestur í kepp
nina er til og með 8
. d
es
em
b
er
2
01
7 /
Greint verður frá
niðurstöðum samkeppninnar
og verðlaun veitt sunnu-
daginn 21. janúar 2018
í Salnum í Kópavogi.
Verðlauna afhendingin
er liður í Dögum ljóðsins í
Kópavogi, árlegri ljóðahátíð
sem hefur þann tilgang að
efla og vekja áhuga á ljóðlist.
Nánari upplýsingar:
menningarhusin@kopavogur.is
eða 441 7607
Utanás
kriftin e
r
Mennin
garhúsi
n í Kóp
avogi
Digrane
svegi 1
200 Kó
pavogu
r
Einn efnilegasti körfubolta-maður landsins, hinn tvítugi Kári Jónsson, skrifaði nýlega
undir samning við uppeldisfélag
sitt Hauka eftir að hafa leikið einn
vetur með Drexel-háskólanum í
Bandaríkjunum. Hann segir aðal-
ástæðu vistaskiptanna tilkomna
vegna þess að hann var einfaldlega
hættur að hafa gaman af hlutunum
ytra. „Mér leið ekki nógu vel og
hafði ekki gaman af því sem ég
var að gera dagsdaglega. Ég þurfti
að ákveða hvað væri best fyrir
mig persónulega og þótt þetta
hafi verið mjög erfið ákvörðun og
tækifæri sem erfitt er að gefa frá
sér var þetta það sem ég þurfti að
gera. Mér líður strax betur hérna
heima og finn að neistinn gagnvart
körfunni og daglegu lífi er kominn
aftur.“
Hann segir lífið í Bandaríkjunum
undanfarið ár hafa verið fínt að
mörgu leyti. „Auðvitað er margt
öðruvísi þar en hér heima á Íslandi.
Helsti munurinn er hversu stórt allt
er í Bandaríkjunum en skólinn og
körfuboltinn er sama batteríið og er
haldið mjög vel utan um allt saman.
Það voru t.d. nokkrir námsráðgjafar
sem sáu bara um körfuboltaliðið
sem hjálpaði mér persónulega mjög
mikið auk þess sem liðið hafði 4-5
þjálfara í full starfi.“
Mikil körfuboltafjölskylda
Kári er fæddur inn í mikla körfu-
boltafjölskyldu. Afi hans er Ingvar
Jónsson körfuboltaþjálfari, oft
nefndur faðir körfuboltans í
Hafnarfirði. Faðir hans er Jón Arnar
Ingvarsson, margfaldur landsliðs-
maður í körfubolta auk þess sem
föðubróðir hans, Pétur Jónsson, á
að baki 27 landsleiki með A-lands-
liðinu í körfubolta. „Það er talað
um fátt annað en körfubolta í
fjölskylduboðum. Ég læri svo mikið
frá þeim sem mér finnst mjög
dýrmætt. Eini gallinn er að oft
eftir tapleiki eða slaka leiki þá fær
maður strax að heyra hvað maður
hefði getað gert betur. Það er ekki
endilega það sem maður vill heyra
strax eftir slakan leik en kannski
það sem maður þarf að heyra til að
læra af þeim.“
Spenntur fyrir þjálfun
Hann segist spenntur fyrir nýbyrj-
uðu tímabili, Haukar séu með
spennandi hóp og skemmtilegt lið.
„Auðvitað er tímabilið nýbyrjað
og liðið er með nýjan útlending
þannig að við erum ennþá að slípa
okkur saman. Ég er mjög spenntur
fyrir vetrinum og það verður fjör.
Ég mun a.m.k. klára þennan vetur
heima og næsta sumar skoða
ég möguleika mína. Ef tækifæri
opnast til að spila í Evrópu mun ég
skoða það en núna er einbeitingin
hérna heima.“
Fátt annað en körfuboltinn
kemst því að í lífi Kára þessa
dagana. Þegar hann er spurður
hvert hann stefni síðar í lífinu
viðurkennir hann að hann hafi í
raun ekki hugmynd um hvað hann
vilji starfa við eða hvernig nám
hann vilji stunda. „Vonandi kemur
það á næstunni. Það er margt sem
mig langar til að læra enn frekar
um boltann þannig að þjálfun er
eitthvað sem ég mun örugglega fara
út í.“
Hvað ætlar þú að gera um helg-
ina? Það er ekkert planað annað en
æfingar og gera eitthvað skemmti-
legt með kærustunni og fjölskyldu.
Hver er óskamorgunmaturinn
um helgar? Þessi týpíski ameríski
morgunmatur, egg, beikon og
pönnukökur.
Hver er uppáhaldsmaturinn? Það
Finnur aftur fyrir neistanum
Kári Jónsson, einn efnilegasti körfuboltamaður landsins, heldur mikið upp á grínistann Pétur Jó-
hann og segir Hafnarfjörð klárlega vera besta bæ landsins. Hann stefnir á atvinnumennskuna.
Kári Jónsson í leik með U20 ára landsliðinu á Evrópumótinu í Grikklandi í sumar þar sem liðið lenti í 8. sæti. MYND/FIBA
er jólamaturinn í fjölskyldunni
sem er rjúpur. En það er bara einu
sinni á ári þannig að uppáhalds
helgarmaturinn er góð steik og
bernaise-sósa. Það er fátt sem
toppar það.
Hvaða NBA-leikmenn eru í mestu
uppáhaldi? Það er LeBron James en
sá sem ég horfi á aðallega til að læra
af er Manu Ginobili, örvhentur
galdramaður.
Hvernig tónlist hlustar þú á?
Aðallega rapp og hipphopp. Herra
Hnetusmjör er besti íslenski tón-
listarmaðurinn.
Hvernig kvikmyndasmekk hefur
þú? Ég horfi meira á sjóvarpsþætti.
Í mestu uppáhaldi eru Game of
Thrones, The Walking Dead og
Stranger Things.
Hver er fyndnasti maður lands-
ins? Pétur Jóhann Sigfússon.
Er Hafnarfjörður besti bær lands-
ins? Alveg klárlega, enginn annar
bær kemst nálægt því.
Hvaða hæfileika hefur þú sem
utanaðkomandi vita ekki um þig?
Ég er ekki þekktur fyrir mikla hæfi-
leika en það sem fáir vita er að ég er
mjög góður nuddari.
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . N Óv E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
6
-0
E
1
8
1
E
2
6
-0
C
D
C
1
E
2
6
-0
B
A
0
1
E
2
6
-0
A
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K