Fréttablaðið - 04.11.2017, Side 96

Fréttablaðið - 04.11.2017, Side 96
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Elsa Borg Jósepsdóttir frá Borgum, Skógarströnd, áður til heimilis að Funalind 1, Kópavogi, lést fimmtudaginn 2. nóvember 2017. Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 9. nóvember kl. 13.00. Guðbjörn Jósep Guðjónsson Þorsteinn Rúnar Guðjónsson Sigrún Borg Guðjónsdóttir Jón Kristjánsson Kolbrún Guðjónsdóttir Finnur Ingimarsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ólína Anna Guðjónsdóttir Eiðhúsum, Miklaholtshreppi, lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ föstudaginn 3. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Erling Jóhannesson Eva Erlingsdóttir Lárus Björnsson Una Erlingsdóttir Vagn Ingólfsson Jóhannes Erlingsson Valborg Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Phillip Park Holtsvegi 25, Garðabæ, andaðist á heimili sínu 29. október. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 7. nóvember kl. 13. Þeim sem vildu minnast hans er bent á lungnadeild A-6 Landspítalans í Fossvogi. Blóm og kransar afþakkaðir. Sérstakar þakkir til stúlknanna í heimaaðhlynningunni og starfsfólks lungnadeildar A-6 LSH. Elín Park María Poulsen Lorraine Hodgson Harvey Hodgson Simon Patrick Park Dawn Park David Trevor Park Nína Guðrún og barnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarþel við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Hauks Sveinssonar frá Baldurshaga í Bolungarvík. Einnig viljum við þakka starfsfólki Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir umhyggju þess og góða umönnun. Sveinn Rúnar Hauksson Björk Vilhelmsdóttir Óttar Felix Hauksson Guðný Þöll Aðalsteinsdóttir Sigríður Hauksdóttir Evald Sæmundsen barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Valdimar Þór Hergeirsson fyrrverandi yfirkennari við Verzlunarskóla Íslands, sem lést á líknardeild Landspítalans 28. október verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 10. nóvember kl. 13. Ragnar Þór Valdimarsson Brynja Baldursdóttir Alda Björk Valdimarsdóttir Guðni Elísson Örn Valdimarsson Aðalheiður Ósk Guðbjörnsd. Brynja Tomer og barnabörn. Ástær eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Þór Þorsteins framkvæmdastjóri, lést mánudaginn 30. október á Landakotsspítala. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 17. nóvember kl. 13.00. Dóra Egilson Egill Þorsteins Marta Þórðardóttir Karl Þorsteins Erla Traustadóttir Snæfríð J. Þorsteins Ugla, Þórdís Stella, Halldóra Þöll, Kamilla, Úlfur Þór, Trausti Þór og Unnar Elí. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu og móður okkar, Svanhildar Sveinbjörnsdóttur hagfræðings, Fögruhæð 6, Garðabæ. Sérstakar þakkir fær starfsfólk krabbameinsdeildar Landspítalans og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Arnar Jónsson Karen Arnarsdóttir Emilía Arnarsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar Bjarna Pálssonar fyrrverandi skólastjóra Núpsskóla í Dýrafirði og framhaldsskólakennara í Garðabæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjartadeildar Landspítalans fyrir frábæra umönnun og umhyggju. Valborg Þorleifsdóttir Þorleifur Bjarnason Hildur Ómarsdóttir Hrefna Bjarnadóttir Bjarni Birgisson Anna Bjarnadóttir Jón Emil Magnússon Páll Geir Bjarnason og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs föður, tengdaföður, afa og langafa, Ólafs Jóhanns Jónssonar læknis, Eiríksgötu 27, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks 4. hæðar á hjúkrunarheimilinu Skjóli fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Ingibjörg Þóra Ólafsdóttir Gylfi Ólafsson Ingibjörg Sigrún Einisdóttir Vala Ólafsdóttir Kristján Ívar Ólafsson Heba Helgadóttir Jón Ívar Ólafsson Ingunn Ásta Sigmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Þegar við vorum að opna vorum við sammála um það að við vildum bjóða upp á eitthvað nýtt, skapandi og lifandi vett-vang, mitt á milli þess sem hefð- bundnar hönnunarbúðir og listgallerí bjóða upp á. Reglulega fáum við því til liðs við okkur listamann eða hönnuð sem fær fullt frelsi til að breyta rýminu og sýna verk sín innan um okkar vörur sem hanga í sitthvorum færanlega rammanum og eina reglan er sú að þeir þurfa að passa inn í heildarmyndina,“ segir fatahönnuðurinn Magnea Einarsdóttir sem rekur A.M.Con- cept Space ásamt Anítu Hirlekar. „Með því að stilla okkar vöru upp á þennan hátt trúum við því að skilin á milli fatahönnunar, myndlistar og ann- arra skapandi miðla minnki og sameinist á vissan hátt en í raun er vinnuferli okkar ekki ósvipað vinnuferli annarra lista- manna. Okkur finnst oft vanta upp á þennan skilning hvað varðar fatahönnun og kannski hönnun almennt, fatnaður er svo daglegt brauð í lífi hverrar mann- eskju en fyrir okkur er fatnaður og textíll afrakstur okkar skapandi ferlis og mikillar rannsóknarvinnu,“ segir Aníta. Magnea segir að breiður hópur leggi leið sína í verslunina, ýmist til að kaupa sér föt eða til að skoða þau listaverk sem prýða rýmið hverju sinni. Skyggnast inn í hugarheim annarra listamanna Þær Aníta og Magnea kynntust í Central Saint Martins listaháskólanum í London. „Í náminu var lögð mikil áhersla á sjálf- stæð og skapandi vinnubrögð þar sem vinnuferlið var ekki síður mikilvægt en lokaútkoman. Við vorum hvattar til að sækja innblástur í aðra listmiðla, vinna ítarlega hugmynda- og rannsóknarvinnu og þrýsta öllum hugmyndum okkar eins langt og þær komust,“ segir Magnea. „Frá útskrift höfum við báðar hannað undir eigin merkjum ásamt því að hafa unnið samstarfslínur við önnur merki, sýnt bæði hér heima og erlendis og verið tilnefndar til Hönnunarverðlauna Íslands. Við eigum því ýmislegt sameigin- legt. Þegar við vorum að eiga samtal um það leyti sem við vorum að opna búðina þá áttuðum við okkur á því hvað þessi bakgrunnur okkar hefur mótað okkur,“ útskýrir Aníta. Magnea tekur undir og bætir við: „Okkur finnst forvitnilegt að skyggnast inn í hugarheim annarra listamanna og finnum að aðrir hafa áhuga á því að skyggnast inn í okkar.“ Báðar eru þær sammála um að það sé vöntun á sýningarrými fyrir listamenn. Það kemur þeim því ekki á óvart að við- tökurnar hafi verið góðar og þær sjá fyrir sér spennandi listaár fram undan. „Já við finnum fyrir miklum áhuga, bæði meðal listamanna og annarra hönnuða. Við finn- um að við erum með eitthvað spennandi í höndunum og svo hefur verið vöntun á sýningarrýmum fyrir listamenn. Þessa dagana erum við að auglýsa eftir hug- myndum frá fólki sem hefur áhuga á að sýna á næsta ári og erum við opnar fyrir öllum miðlum,“ segir Aníta. Spurðar nánar út í fyrirkomulag sýn- inganna fram undan verður Magnea fyrir svörum: „Viðmið um sýningartíma eru 1-2 mánuðir en sýningar mega vara í skemmri tíma og erum við opnar fyrir stuttum við- burðum líka.“ gudnyhronn@365.is Spennandi listaár fram undan Fatahönnuðirnir Aníta Hirlekar og Magnea Einarsdóttir reka verslunina og sýningar- rýmið A.M.Concept Space. Í versluninni selja þær sína eigin hönnun ásamt því að setja upp nýjar listsýningar eftir ýmsa listamenn með reglulegu millibili. A.M.Concept Space er til húsa við Garðastræti 2. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r48 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Okkur finnst forvitni- legt að skyggnast inn í hugarheim annarra listamanna og finnum að aðrir hafa áhuga á því að skyggnast inn í okkar. 0 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 1 2 0 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 5 -C 8 F 8 1 E 2 5 -C 7 B C 1 E 2 5 -C 6 8 0 1 E 2 5 -C 5 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 2 0 s _ 3 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.