Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Page 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Þegar safna á peningum fyrir gott málefni er mikilvægt að gefendurfjárins fái að vita nákvæmlega í hvað peningarnir fara. Umræða um það hversu stór hluti söfnunarfjár sem til verður
gegnum fjáröflunarátak rennur raunverulega til góðs málefnis í stað milli-
liða kom enn á ný upp á dögunum, nú í tengslum við fjáröflun í þágu rann-
sókna á krabbameini og forvarna. Þetta er ekkert nýtt. Í mörg ár hafa kom-
ið upp spurningar og álitaefni er lúta að því í hvað peningar sem safnað er í
góðgerðarskyni fara.
Því fylgir mikil ábyrgð að safna
fé og biðja fólk um að gefa fé, hver
svo sem ástæðan að baki söfnuninni
er. Þegar peningum er safnað á
einn stað í nafni góðs málefnis,
hvert svo sem málefnið er, þarf að
liggja skýrt fyrir í hvað peningarnir
fara.
Í raun þarf þetta ekki að vera svo
flókið. Aðalmálið er að sá sem legg-
ur féð fram viti í hvað á að nota það.
Ef ég kaupi mér miða á góðgerð-
arviðburð og greiði fyrir það 3.000
krónur á ég heimtingu á því að vita
hversu hátt hlutfall rennur til hins
góða málefnis sem ég tel mig vera
að styrkja. Eru það 300 krónur eða 2.500 krónur? Það skiptir máli að vita
það og að sá sem leggur fram féð fái tækifæri á að taka upplýsta ákvörðun
áður en ákveðið er að styrkja málefnið.
Vel má vera að einhverjum þyki það feikinóg að einn tíundi miðaverðs
renni til góðs málefnis. Aðrir gætu ákveðið að hætta við stuðning nema að
t.d. meira en helmingur þess fjár sem lagt er fram renni til málefnisins sem
styrkja á. En við viljum vita í hvað peningarnir okkar fara, hvort sem um er
að ræða fé í sameiginlega opinbera sjóði eða miða á góðgerðartónleika. Ef
verið er að safna peningum á einn stað og deila þeim út aftur er það sjálf-
sögð krafa að gefið sé út fyrir fram hvernig þeim verði deilt að nýju.
Í góðgerðarmálum eru margar hendur á lofti. Fjölmörg málefni eru þess
verð að styrkja og á okkur dynur almennt talsvert áreiti úr ýmsum áttum
með beiðnum um að láta fé af hendi rakna. Í þessu sem öðru gildir það að
vera ábyrgur neytandi og þora að spyrja spurninga fyrir fram.
Góðu málefnin eru mörg.
Thinkstock
Margar hendur
á lofti
Pistill
Eyrún Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
’Fjölmörg málefni eruþess verð að styrkja ogá okkur dynur almennttalsvert áreiti úr ýmsum
áttum með beiðnum um
að láta fé af hendi rakna.
Erla Guðrún Gunnarsdóttir
Já. Ég held að Svala verði ofarlega en
held sjálf með Aroni Brink og mæli með
því að fólk hlusti á textann í laginu hans.
SPURNING
DAGSINS
Fylgist þú
með
Söngva-
keppninni
á RÚV?
Kristín Rúnarsdóttir
Ég hef lítið fylgst með henni en hef
fulla trú á Svölu Björgvins.
Morgunblaðið/Inga Rún
Glúmur Einarsson
Já, Daði Freyr er minn maður.
Arndís Sævarsdóttir
Nei, ég hef ekkert fylgst með henni.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Ertu mikil Eurovision-manneskja?
Eins og kannski margir Íslendingar segist ég
ekki vera það en svo ranka ég einhvern veginn
alltaf við mér á úrslitakvöldinu með allar teg-
undir af snakki og ídýfu fyrir framan mig í
geggjuðu stuði.
Hvert er besta Eurovision-lag allra
tíma?
Besta íslenska er All Out of Luck og besta erlenda
klárlega Euphoria.
Hvernig er stemningin fyrir lokakvöld-
inu?
Ég er orðin mjög spennt! Ég dáist að öllum þessum
keppendum sem eru komnir áfram, fáránlega hæfi-
leikaríkt og metnaðarfullt fólk og ég vona eiginlega
að þau komist öll áfram, þótt það sé ekki hægt.
Hvað er skemmtilegast við að vinna í
sjónvarpi?
Vikan er alltaf send út beint og það myndast ein-
hver orka í svoleiðis útsendingu sem mér finnst
ótrúlega skemmtileg. Það getur einhvern veginn
allt gerst og allt klikkað, svo það er mjög gaman
þegar allt heppnast ógeðslega vel, sem er oftast
raunin.
Nú vakti bleiki kraftgallinn í síðasta
þætti athygli, megum við búast við
Eurovision-galla á laugardaginn?
Þessi galli var svo ótrúlega mjúkur og þægilegur að ég
er að reyna að sannfæra pródúsentinn um að leyfa mér
að vera í honum í græna herberginu. Ef það gengur
ekki í gegn er það bara leðurgalli í anda Míns hinsta
dans.
Nú ert þú vinsæll snappari, er eitthvað
sem þú munt aldrei snappa?
Nei, ég ritskoða mig ekki neitt og mun snappa mik-
ið baksviðs á lokakvöldinu. Endilega addið mér
(berglindp) ef þið viljið sjá mig hrekkja keppendur,
Ragnhildi Steinunni og Gísla Martein.
Morgunblaðið/Eggert
BERGLIND FESTIVAL
SITUR FYRIR SVÖRUM
Vonar að
allir komist
áfram
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Berglind Pétursdóttir, betur þekkt sem Berglind Festival, er
með regluleg innslög í þættinum Vikan á RÚV. Berglind, sem er
einnig einn skemmtilegasti „snappari“ landsins, verður með
innslög í úrslitaþætti Söngvakeppninnar á laugardagskvöld.