Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Blaðsíða 15
12.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Bændurnir á Hvannabrekku,Auðbjörg Elísa Stef-ánsdóttir og Steinþór Björnsson, búa við malarveginn margumtalaða í Berufirði. „Við erum svekkt,“ segir Stein- þór um niðurstöðu samgöngu- ráðherra. Steinþór hefur búið alla ævi við veginn. Hann er fæddur og uppalinn á Hvannabrekku og tók við búi foreldra sinna. Þau hjón eiga samtals sjö börn og búa fimm þeirra hjá þeim á bænum. Steinþór segir umferðina hafa breyst mikið síðan hann var lítill. „Þá var ekki svona mikill hraði og svona miklar þungaflutningar,“ segir hann og nefnir að umferðin þarna um sé afar þung, sér- staklega að sumarlagi og kona hans tekur í sama streng. „Sérstaklega þegar rútur og flutningabílar fara framhjá, þá liggum við í reykjarmekkinum, þetta er ógeðslegt,“ segir Auð- björg og nefnir einnig að rykið hafi slæm áhrif á búskapinn. „Þetta er vont fyrir gróðurinn og skepn- urnar, það kemur ryk í heyið,“ segja þau. „Svo eigum við barn sem er með asma, það er ekki á bætandi.“ Blaðamaður furðar sig á því að vegurinn virðist ekki sérlega slæmur þennan dag. „Já, þeir hefluðu í gær, svo kem- ur rigning á morgun og þá verður þetta allt í holum, spænist upp um leið,“ segir hann. „Á sumrin þegar það er blautt þá hefst ekkert við að halda þessu holulausu, þetta fer í holur um leið,“ segir Steinþór. Þetta er ekkert grín Auðbjörg segir veginn vera slysa- gildru. „Það er bara spurning hvenær verður banaslys hérna. Við horfð- um upp á það í fyrra að það valt hér Land Rover, hér beint á móti. Það voru fjórir Frakkar og það mátti minnstu muna að einn þeirra dæi, hann skaust út um rúðuna og undir bílinn. Veginum var lokað í þrjá tíma. Þetta var beint fyrir framan augunum á krökkunum. Þetta er ekkert grín. Þetta er al- gjör slysagildra,“ segir Auðbjörg. Hún segir veginn einnig fara illa með bíla og þau geti til að mynda ekki keyrt fjölskyldubílinn lengur eftir veginum. „Hann var farinn að ryðga smá en ef við keyrum hann hér þá á hann eftir að brotna í sundur,“ segir hún. „Lakkið á bíl- unum er viðbjóður, grjótbarið.“ Auðbjörg og Steinþór eru orðin þreytt á að búa við ryk og drullu af veginum. Hefur búið alla ævi við malarveginn Um Berufjörð fara bæði rútur og stórir vörubílar daglega. Einbreiðar brýr eru víða á þjóðveginum á Austfjörðum og skapa oft hættu í um- ferðinni. Ekki síst eru það ferðamenn- irnir sem eru óvanir slíkum brúm.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.