Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Blaðsíða 26
olíu þar til það freyðir vel og svo
sett út í deigið og hrært.
Sett í tvö kringlótt kökuform
og bakað við 180°C í 25 mínútur.
BANANAMAUK
2 bananar
4 msk. flórsykur
Bananar og flórsykur stappað
saman og sett á milli kökubotn-
anna.
SÚKKULAÐIGLASSÚR
150 g flórsykur
3 msk. kakó
heitt vatn
Flórsykur og kakó hrært saman
með heitu vatni þannig að það
verði þykk leðja og svo hellt yfir
kökuna.
Bananakaka
BOTN
125 g smjör
250 g sykur
250 g hveiti
1 tsk. salt (½ ef maður notar salt-
að smjör)
½ tsk. lyftiduft
¼ tsk. matarsódi
5 msk. kakó
2½ dl mjólk
2 egg eða:
4 msk. lyftiduft
4 msk. vatn
2 msk. olía
Sykur og smjör hrært saman og
svo þurrefnunum og mjólkinni
hrært saman við. Hrært þar til
deigið er orðið vel blandað, þá
er lyftiduft hrært út í vatn og
ur einnig verið á boðstólum bleikja,
fiskborgarar og saltfiskréttir.
Áhersla á nærumhverfið
Fyrir utan Íslandsþemað leggja þær
áherslu á nærumhverfið. „Við viljum
vera í góðum tengslum við nær-
umhverfið og reynum að kaupa sem
mest af því sem ekki kemur frá Ís-
landi frá nágrönnum okkar. Kaffið
okkar er brennt í kaffibrennslu hér í
götunni hjá Coffee Pirates og bjórinn
kemur frá nýlegri handverksbrugg-
smiðju sem heitir Brew Age, en við
erum eini staðurinn í Vín þar sem er
hægt að kaupa allar tegundirnar
þaðan. Sömuleiðis kemur vínið líka
frá lítilli fjölskyldurekinni vínekru
rétt fyrir utan borgina og mjólkin
kemur beint frá býli,“ segir Harpa að
lokum.
Þeir sem vilja vita meira um kaffi-
húsið geta skoðað það á Face-
book.com/icelandichome.
Það var tekinn íslenski stíllinn á
þetta, þar sem allir halda að þeir geti
allt, svo að barþjónar og kokkar
lögðu parket, máluðu, skrúbbuðu og
skröpuðu áður en við opnuðum loks-
ins,“ segir hún.
Eins og nafnið á kaffihúsinu gefur
til kynna er áhersla lögð á hið nota-
lega og heimilislega. Til dæmis eru
húsgögnin að mestu keypt á nytja-
mörkuðum. „Við erum með töluvert
af íslenskum réttum og mat innblás-
inn af íslenskri menningu og stemm-
ingu,“ segir hún og nefnir að meðal
þess sem þær séu með fast á matseðl-
inum sé harðfiskur, hjónabandssæla
og bjór frá brugghúsinu Einstök.
Harðfiskurinn er að sjálfsögðu frá
Ísafirði en einnig fá þær ferskan fisk
frá Íslandi, salt frá Saltverki og ís-
lenska rabarbarasultu í baksturinn.
Sem dæmi var boðið upp á vatns-
deigsbollur að íslenskum hætti í
kringum bolludaginn. Frá opnun hef-
Harpa Hilty Henrysdóttir ogkona hennar Steff Hilty,sem er frá Liechtenstein,
opnuðu í lok febrúar kaffihúsið
Home – Icelandic and Home Cook-
ing, íslenskt kaffihús í Vín. Þær
bjuggu áður á Ísafirði, þar sem Steff
vann á kaffihúsinu Bræðraborg en
Harpa kenndi við grunnskólann.
„Okkur langaði út í heim og þá þurft-
um við að finna okkur eitthvað snið-
ugt að gera. Þar sem Steff er af-
bragðsgóður kokkur ákváðum við að
opna íslenskt kaffihús einhvers stað-
ar í þýskumælandi Evrópu. Vínar-
borg varð fyrir valinu þar sem hún er
sérstaklega fjölskylduvæn og vinaleg
borg, en tvær dætur mínar, átta og
tólf ára, eru með okkur hérna,“ segir
Harpa og bætir við að ef þær hefðu
vitað fyrir fram hversu mikil skrif-
finnskan væri í kringum það að opna
veitingastað í Austurríki hefðu þær
kannski farið eitthvert annað.
„En við komumst í gegnum papp-
írsflóðið svo þetta hafðist og við er-
um mjög ánægðar hérna,“ segir hún,
en þær fluttu út í ágúst og fundu
heppilegt húsnæði í 9. hverfi borg-
arinnar í byrjun desember.
Endurbætur hófust í janúar og
staðurinn var opnaður 21. febrúar.
Allt starfsfólk með
tengingu við Ísland
„Allt starfsfólkið sem vinnur hérna
hefur einhverja tengingu við Ísland,
er íslenskt eða hefur búið á Íslandi.
Það var þó ekkert skilyrði þegar við
vorum að leita að starfsfólki, það
bara lenti svona og við teljum okkur
hafa verið afar heppnar með hópinn
sem við fundum.
Allt starfsfólk kaffihússins hefur
einhverja tengingu við Ísland, er
íslenskt eða hefur búið á Íslandi.
Íslenskt kaffihús í Vín
Nýtt íslenskt kaffihús, Home – Icelandic and Home Cooking, var opnað
fyrir stuttu í Vín í Austurríki. Matseðillinn er innblásinn af íslenskri menn-
ingu og stemningu en einnig er lögð áhersla á hráefni úr nærumhverfinu.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Harpa með ban-
anakökuna sem
er að mestu eftir
gamalli uppskrift
frá mömmu
hennar nema hún
byrjaði að gera
hana eggjalausa
vegna ofnæmis í
fjölskyldunni.
Bjórinn er frá
handverks-
bruggsmiðju
sem heitir
Brew Age.
Áhersla er á
notalega og
heimilislega
stemningu.
Ljósmyndir/Steff Hilty
MATUR Fyrir áhugasama er nýja íslenskættaða kaffihúsið Home í Vín í 9.hverfi borgarinnar og stendur við Spitalgasse 3. Eigendurnir segja
borgina vera sérstaklega fjölskylduvæna og vinalega.
Fjölskylduvæn og vinaleg borg
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017