Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Side 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Side 26
olíu þar til það freyðir vel og svo sett út í deigið og hrært. Sett í tvö kringlótt kökuform og bakað við 180°C í 25 mínútur. BANANAMAUK 2 bananar 4 msk. flórsykur Bananar og flórsykur stappað saman og sett á milli kökubotn- anna. SÚKKULAÐIGLASSÚR 150 g flórsykur 3 msk. kakó heitt vatn Flórsykur og kakó hrært saman með heitu vatni þannig að það verði þykk leðja og svo hellt yfir kökuna. Bananakaka BOTN 125 g smjör 250 g sykur 250 g hveiti 1 tsk. salt (½ ef maður notar salt- að smjör) ½ tsk. lyftiduft ¼ tsk. matarsódi 5 msk. kakó 2½ dl mjólk 2 egg eða: 4 msk. lyftiduft 4 msk. vatn 2 msk. olía Sykur og smjör hrært saman og svo þurrefnunum og mjólkinni hrært saman við. Hrært þar til deigið er orðið vel blandað, þá er lyftiduft hrært út í vatn og ur einnig verið á boðstólum bleikja, fiskborgarar og saltfiskréttir. Áhersla á nærumhverfið Fyrir utan Íslandsþemað leggja þær áherslu á nærumhverfið. „Við viljum vera í góðum tengslum við nær- umhverfið og reynum að kaupa sem mest af því sem ekki kemur frá Ís- landi frá nágrönnum okkar. Kaffið okkar er brennt í kaffibrennslu hér í götunni hjá Coffee Pirates og bjórinn kemur frá nýlegri handverksbrugg- smiðju sem heitir Brew Age, en við erum eini staðurinn í Vín þar sem er hægt að kaupa allar tegundirnar þaðan. Sömuleiðis kemur vínið líka frá lítilli fjölskyldurekinni vínekru rétt fyrir utan borgina og mjólkin kemur beint frá býli,“ segir Harpa að lokum. Þeir sem vilja vita meira um kaffi- húsið geta skoðað það á Face- book.com/icelandichome. Það var tekinn íslenski stíllinn á þetta, þar sem allir halda að þeir geti allt, svo að barþjónar og kokkar lögðu parket, máluðu, skrúbbuðu og skröpuðu áður en við opnuðum loks- ins,“ segir hún. Eins og nafnið á kaffihúsinu gefur til kynna er áhersla lögð á hið nota- lega og heimilislega. Til dæmis eru húsgögnin að mestu keypt á nytja- mörkuðum. „Við erum með töluvert af íslenskum réttum og mat innblás- inn af íslenskri menningu og stemm- ingu,“ segir hún og nefnir að meðal þess sem þær séu með fast á matseðl- inum sé harðfiskur, hjónabandssæla og bjór frá brugghúsinu Einstök. Harðfiskurinn er að sjálfsögðu frá Ísafirði en einnig fá þær ferskan fisk frá Íslandi, salt frá Saltverki og ís- lenska rabarbarasultu í baksturinn. Sem dæmi var boðið upp á vatns- deigsbollur að íslenskum hætti í kringum bolludaginn. Frá opnun hef- Harpa Hilty Henrysdóttir ogkona hennar Steff Hilty,sem er frá Liechtenstein, opnuðu í lok febrúar kaffihúsið Home – Icelandic and Home Cook- ing, íslenskt kaffihús í Vín. Þær bjuggu áður á Ísafirði, þar sem Steff vann á kaffihúsinu Bræðraborg en Harpa kenndi við grunnskólann. „Okkur langaði út í heim og þá þurft- um við að finna okkur eitthvað snið- ugt að gera. Þar sem Steff er af- bragðsgóður kokkur ákváðum við að opna íslenskt kaffihús einhvers stað- ar í þýskumælandi Evrópu. Vínar- borg varð fyrir valinu þar sem hún er sérstaklega fjölskylduvæn og vinaleg borg, en tvær dætur mínar, átta og tólf ára, eru með okkur hérna,“ segir Harpa og bætir við að ef þær hefðu vitað fyrir fram hversu mikil skrif- finnskan væri í kringum það að opna veitingastað í Austurríki hefðu þær kannski farið eitthvert annað. „En við komumst í gegnum papp- írsflóðið svo þetta hafðist og við er- um mjög ánægðar hérna,“ segir hún, en þær fluttu út í ágúst og fundu heppilegt húsnæði í 9. hverfi borg- arinnar í byrjun desember. Endurbætur hófust í janúar og staðurinn var opnaður 21. febrúar. Allt starfsfólk með tengingu við Ísland „Allt starfsfólkið sem vinnur hérna hefur einhverja tengingu við Ísland, er íslenskt eða hefur búið á Íslandi. Það var þó ekkert skilyrði þegar við vorum að leita að starfsfólki, það bara lenti svona og við teljum okkur hafa verið afar heppnar með hópinn sem við fundum. Allt starfsfólk kaffihússins hefur einhverja tengingu við Ísland, er íslenskt eða hefur búið á Íslandi. Íslenskt kaffihús í Vín Nýtt íslenskt kaffihús, Home – Icelandic and Home Cooking, var opnað fyrir stuttu í Vín í Austurríki. Matseðillinn er innblásinn af íslenskri menn- ingu og stemningu en einnig er lögð áhersla á hráefni úr nærumhverfinu. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Harpa með ban- anakökuna sem er að mestu eftir gamalli uppskrift frá mömmu hennar nema hún byrjaði að gera hana eggjalausa vegna ofnæmis í fjölskyldunni. Bjórinn er frá handverks- bruggsmiðju sem heitir Brew Age. Áhersla er á notalega og heimilislega stemningu. Ljósmyndir/Steff Hilty MATUR Fyrir áhugasama er nýja íslenskættaða kaffihúsið Home í Vín í 9.hverfi borgarinnar og stendur við Spitalgasse 3. Eigendurnir segja borgina vera sérstaklega fjölskylduvæna og vinalega. Fjölskylduvæn og vinaleg borg 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.