Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Síða 15
12.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Bændurnir á Hvannabrekku,Auðbjörg Elísa Stef-ánsdóttir og Steinþór
Björnsson, búa við malarveginn
margumtalaða í Berufirði.
„Við erum svekkt,“ segir Stein-
þór um niðurstöðu samgöngu-
ráðherra. Steinþór hefur búið alla
ævi við veginn. Hann er fæddur og
uppalinn á Hvannabrekku og tók
við búi foreldra sinna. Þau hjón
eiga samtals sjö börn og búa fimm
þeirra hjá þeim á bænum.
Steinþór segir umferðina hafa
breyst mikið síðan hann var lítill.
„Þá var ekki svona mikill hraði og
svona miklar þungaflutningar,“
segir hann og nefnir að umferðin
þarna um sé afar þung, sér-
staklega að sumarlagi og kona
hans tekur í sama streng.
„Sérstaklega þegar rútur og
flutningabílar fara framhjá, þá
liggum við í reykjarmekkinum,
þetta er ógeðslegt,“ segir Auð-
björg og nefnir einnig að rykið hafi
slæm áhrif á búskapinn. „Þetta er
vont fyrir gróðurinn og skepn-
urnar, það kemur ryk í heyið,“
segja þau. „Svo eigum við barn
sem er með asma, það er ekki á
bætandi.“
Blaðamaður furðar sig á því að
vegurinn virðist ekki sérlega
slæmur þennan dag.
„Já, þeir hefluðu í gær, svo kem-
ur rigning á morgun og þá verður
þetta allt í holum, spænist upp um
leið,“ segir hann. „Á sumrin þegar
það er blautt þá hefst ekkert við að
halda þessu holulausu, þetta fer í
holur um leið,“ segir Steinþór.
Þetta er ekkert grín
Auðbjörg segir veginn vera slysa-
gildru.
„Það er bara spurning hvenær
verður banaslys hérna. Við horfð-
um upp á það í fyrra að það valt
hér Land Rover, hér beint á móti.
Það voru fjórir Frakkar og það
mátti minnstu muna að einn þeirra
dæi, hann skaust út um rúðuna og
undir bílinn. Veginum var lokað í
þrjá tíma. Þetta var beint fyrir
framan augunum á krökkunum.
Þetta er ekkert grín. Þetta er al-
gjör slysagildra,“ segir Auðbjörg.
Hún segir veginn einnig fara illa
með bíla og þau geti til að mynda
ekki keyrt fjölskyldubílinn lengur
eftir veginum. „Hann var farinn að
ryðga smá en ef við keyrum hann
hér þá á hann eftir að brotna í
sundur,“ segir hún. „Lakkið á bíl-
unum er viðbjóður, grjótbarið.“
Auðbjörg og Steinþór eru
orðin þreytt á að búa við
ryk og drullu af veginum.
Hefur búið alla ævi við malarveginn
Um Berufjörð fara bæði rútur
og stórir vörubílar daglega.
Einbreiðar brýr eru víða á þjóðveginum
á Austfjörðum og skapa oft hættu í um-
ferðinni. Ekki síst eru það ferðamenn-
irnir sem eru óvanir slíkum brúm.