Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017
VETTVANGUR
Málefni fanga hafa veriðmörgum hugleikin und-anfarið. Án efa hefur
sjónvarpsþáttaröðin Fangar haft
þar áhrif á og fengið menn til velta
vöngum yfir lífinu innan veggja
fangelsismúranna. Einkum stöðu
kvenfanga.
Fyrr í vikunni var sérstök um-
ræða á alþingi um stöðu fanga.
Sjónarmiðin sem þar voru sett
fram báru öll með sér mikinn vel-
vilja í garð fanga og samhug. Að
sama skapi örlaði á tortryggni í
garð fangelsa sem slíkra þótt ein-
ungis einn þingmaður hafi viðrað
þá skoðun að fangelsisvist væri
beinlínis gamaldags og úrelt fyr-
irbæri. Þeir þingmenn sem til
máls tóku lögðu hins vegar áherslu
á að markmiðið með fangelsisvist
ætti að vera betrun fremur en eitt-
hvað annað. Frá mínum
bæjardyrum séð var það
ánægjulegt. Ekki síst
vegna þess að und-
anfarin ár hefur gjarnan
gætt undarlegrar refsi-
gleði í almennri umræðu
um einstök dómsmál.
Jafnvel úr ræðustól al-
þingis.
Á það ber þó að líta að
tilgangur refsinga er
margþættur. Refsingu
er ætlað að vera hegn-
ing fyrir brot um leið og
henni er ætlað að vera
öðrum víti til varnaðar
og vera þannig forvörn gegn brot-
um almennt. Refsingu er líka ætl-
að að sporna gegn áframhaldandi
brotum hins dæmda. Fangar eru
auðvitað ekki einsleitur hópur og
forsögur fangelsisvistar eru marg-
víslegar. Þó er það mál manna
sem helst þekkja til að meirihluti
fanga glími við slíkan vanda,
heilsufars- og/eða félagslega, að
markmið refsingar um að ná hin-
um dæmda af refilstigum náist illa
nema með því að ráðast að rótum
hans. Þar gegnir betrunarþáttur
refsingar lykilhlutverki.
Ný lög um fullnustu refsinga
voru samþykkt á síðasta ári. Í
þeim er í fyrsta sinn kveðið með
skýrum hætti á um að markmiðið
með fullnustu refsing sé öðru
fremur að undirbúa dómþola fyrir
virka þátttöku í samfélaginu.
„Farsæl betrun“ er þannig lögum
samkvæmt eitt meginmarkmið
fullnustu refsinga. Með það að
leiðarljósi voru því
jafnframt rýmk-
aðar reglur um
fullnustu refsinga
utan fangelsis, svo
sem með sam-
félagsþjónustu eða
með rafrænu eft-
irliti. Því skal þó
haldið til haga að
frjáls félagasam-
tök hafa í nokkra
áratugi gegnt lyk-
ilhlutverki við
fullnustu refsinga.
Þannig hafa fang-
elsismálayfirvöld
átt gott samstarf við áfangaheim-
ilið Vernd um vistun fanga sem
eru að ljúka afplánun. Vægi
Verndar mun ekki minnka nú
þegar sjónum er í ríkara mæli
beint að fullnustu dóma utan
fangelsis.
Það er þó ekki raunhæft að
vænta þess að allir fangar eigi
þess kost að afplána meirihluta
dóms utan fangelsis. Þeir sem eft-
ir sitja inni eru hins vegar jafnvel
í brýnni þörf fyrir „farsæla betr-
un“ en hinir. Það er rétt að stefna
að því að búa enn betur að þeim.
Fangar
’Tilgangur refsinga ermargþættur.Einn þáttur lýtur
að betrun fanga.
’Refsingu erlíka ætlað aðsporna gegnáframhaldandi
brotum hins
dæmda.
Úr ólíkum
áttum
Sigríður Á. Andersen
saa@althingi.is
Morgunblaðið/Golli
Mikið hefur verið
skrifað um samtal
Sindra Sindrasonar
og Töru Margrétar
Vilhjálmsdóttur.
Birgir Þórarins-
son hafði þetta að segja um málið á
Facebook: „Skammarleg framkoma
Sindra gagnvart henni Töru á Stöð
tvö sýnir hversu eðlilegt fólki þykir
að fyrirlíta feitt fólk. Sorglegt þegar
fólk er meðvitundarlaust og blint á
eigið mannhatur.“
Svavar Örn
grínaðist á Face-
book og skrifaði:
„Langar geðveikt
að vera svona
Epalhommi.“
Honum varð að
ósk sinni síðar í vikunni þar sem
hann var fyrirsæta í Epalauglýsingu
ásamt fleirum, þar á meðal Berg-
þóri Pálssyni, sem birti fyrr í vik-
unni mynd af Alberti Eiríkssyni, ann-
arri Epalfyrirsætu, að moka tröppur
í nágrenni heimilis þeirra:
„Eitt af því sem mér þykir vænt
um í fari Alberts, er þegar hann tek-
ur málin í sínar hendur, án þess að
honum beri skylda til þess. Um
þessar tröppur ganga tugir eða
hundruð fólks á degi hverjum og
þar hafði myndast lítil og hættuleg
kindagata við handriðið. Þó að hann
gangi ekki um tröppurnar sjálfur,
hefur hann ánægju af því að „redda
málunum“, telur það ekki eftir sér
og finnst það einfaldlega gaman og
hressandi. Röskur og skemmtilegur
strákur.“
Óttar M. Norðfjörð skrifaði
um fótbolta. „Það var svolítið eins
og Barcelona hefði vaknað af
draumi í morgun, eftir ótrúlegan
sigur á París í gær,
þegar Börsungum
tókst hið ómögu-
lega, ekki aðeins
einu sinni, heldur
tvisvar. Á kaffihús-
inu mínu talaði fólk um lítið annað,
forsíður dagblaða lýsa hetjum og
kraftaverki, og ókunnugir eru
skyndilega bestu vinir. Það gildir líka
um mig, en þar sem ég horfði á leik-
inni í gær á bar faðmaði ég einhvern
bláókunnugan Spánverja þétt að
mér þegar Sergi Roberto skoraði
sigurmarkið. Og þá fyrst hófst bil-
unin, öll borgin missti sig, bílar flaut-
uðu, flugeldar fóru í loftið, og fólk
dansaði úti á götu. Ég sá mann með
hækjur dansa, svo það má kannski
segja að þetta hafi verið kraftaverk,
og eins og öll góð kraftaverk er það
auðvitað umdeilt, en það er bara
partur af leiknum. Ég geri mér grein
fyrir því að mörgum hérna er alveg
sama um fótbolta, en fyrir okkur
sem elskum íþróttina, þá má
kannski líkja þessu við trúarbrögð.
Annaðhvort sér maður ljósið eða
ekki. Það eina sem ég get sagt er að
leikurinn í gær kenndi manni að gef-
ast aldrei upp, að það er alltaf hægt
að snúa stöðunni við, meira að
segja á lokamínútunni, svo framar-
lega sem maður missir ekki trúna.
Þetta er Óttar M. Norðfjörð sem
talar frá Barcelona.“
Halla Gunn-
arsdóttir var
ekki sátt við
fréttir af því að
það standi til að
borga þremur
körlum eina
milljón hverjum fyrir að stunda nám
í leikskólakennarafræðum og ljúka
því.
„Er þetta aprílgabb? Það er ótrú-
legt hvað það er mikil þolinmæði
fyrir kostnaðarsömum sértækum
aðgerðum í þágu karla. Jákvæð mis-
munun hvað? Annars bara til ham-
ingju með alþjóðlegan baráttudag
kvenna.“
AF NETINU
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN
Enn snjallara heyrnartæki
Beltone Legend
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
™
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST