Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Qupperneq 17
Brúin yfir Hornarfjarðarfljót er
einbreið og komin til ára sinna.
12.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir rekur Hafnarbúðinaá Höfn í Hornafirði og situr einnig í bæj-arstjórn. Hún tekur í sama streng og bæj-
arstjórinn. „Okkar vonbrigði eru í raun gífurleg.
Þetta varðar atvinnumál, þetta varðar vegalengdir.
Það eru líka börn sem búa í sveitum sem þurfa að
koma hingað í leikskóla og skóla, þannig að sam-
félagslega þá skiptir þetta okkur mjög miklu máli að
fá þennan veg. Það er full samstaða í bæjarstjórn að
berjast fyrir þessu og við vorum virkilega búin að
fagna því að þetta var komið inn á samgönguáætlun
eftir yfir tíu ára bið. Okkur þykir þetta mjög bagalegt
sérstaklega í ljósi þess að umhverfismat fyrir þetta
mun renna út ef ekki verður ráðist í framkvæmdir.
Þegar umhverfismatið rennur út er tíu ára vinna unn-
in fyrir gýg og við þurfum að byrja aftur á byrj-
unarreit og setja allt í umhverfismat að nýju. Þannig
að það hangir mjög mikið á spýtunni,“ segir Ragn-
heiður.
Brúin að hruni komin
„Þetta snýst um umferðaröryggi, fækkun einbreiðra
brúa og styttingu á vegalengdum og að gera sveitarfé-
lagið að einni heild þegar kemur að atvinnumálum.“
Ragnheiður segist trúa að það verði hlustað á þau
og að verkið muni hefjast.
„Ég hef fulla trú að þetta skili einhverju, það eru
svo stórir fjármunir í húfi. Það var búið að samþykkja
framkvæmdaleyfið fyrir þessa framkvæmd.“ Hún tel-
ur að öll samgöngumál eigi að vera í forgangi. „Við
lifðum í einangrun þar til brúin yfir Skeiðará var opn-
uð, og við sjáum nánast fram á að það gæti gerst á ný.
Þetta er bara ekki boðlegt. Brúin yfir Hornafjarð-
arfljót, fólk segir að hún eigi mörg ár eftir, en hún er
að hruni komin í mínum augum. Maður hossast upp
og niður. Við förum með börnin okkar yfir þessa brú í
staðinn fyrir að fara í rússíbana.“
Ragnheiður segir fjölgun ferðamanna kalla á betri
samgöngur. „Þetta varðar líka umferðaröryggi okkar
og gestanna okkar. Hér í sveitarfélaginu eru svo
margar einbreiðar brýr og þegar þú stendur hér á
fimmtudagsmorgni klukkan tíu að morgni, sérðu fólk-
ið í kringum þig? Þetta er pínulítill staður og ferða-
menn eru fleiri en íbúar yfir sumartímann, og ekki
bara yfir sumartímann. Nú er mars,“ segir hún og
bendir á troðfullan veitingastaðinn.
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
hefur áhyggjur af vegum nú
þegar ferðamönnum fjölgar.
Brúin notuð fyrir rússíbana
Okkur finnst þetta alvegótækt og forkastanlegt,“segir bæjarstjóri Horna-
fjarðar, Björn Ingi Jónsson, um þá
ákvörðun stjórnvalda að slá út af
borðinu fyrirhugaðar vegafram-
kvæmdir í hreppnum. Sérstaklega
telur Björn brýnt að fá nýja tvíbreiða
brú yfir Hornafjarðarfljót.
„Þetta er eitt af þeim verkefnum
sem voru lögð til grundvallar við
sameiningu sveitarfélagana. Þetta er
búið að vera í tuttugu ár í vinnslu og
nú kemur þetta útspil sem við erum
náttúrlega alls ekki sátt við. Við vor-
um búin að fá þetta rétt fyrir hrun,
þá var búið að fjármagna þetta verk-
efni, en svo kemur hrunið og við vit-
um auðvitað öll hvernig það fór og
við sættum okkur við það. En núna
töldum við að þetta væri að fara á
fulla ferð,“ segir Björn sem telur úr-
bætur nauðsynlegar. „Þetta er gíf-
urleg samgöngubót, bæði fyrir
íbúana hér í samfélaginu og ekki síð-
ur fyrir ferðaþjónustuna. Og eins og
einhvers staðar var sagt, þjóðveg-
urinn er fyrsti ferðamannastað-
urinn.“
Ofboðsleg reiði og vonbrigði
Björn segir alla hafa orðið fyrir gíf-
urlegum vonbrigðum þegar heyrðist
að ekkert yrði af framkvæmdum.
„Við erum í stanslausu sambandi við
þingmenn okkar og ráðherra og
reynum að þrýsta á og koma sjón-
armiðum okkar á framfæri,“ segir
hann og vonar að mótmæli skili ein-
hverju, en búið er að boða til lokunar
á Hornafjarðarbrú á sunnudag.
„Það voru mjög mikil vonbrigði og
ofboðslega mikil reiði sem fór af stað
þegar þetta birtist fyrirvaralaust í
kvöldfréttum í sjónvarpi,“ segir
hann. Hann segir þau hafi ekki vitað
af þessu nema að því leytinu til að
þau vissu að það vantaði tíu milljarða
upp á til að fjármagna samgöngu-
áætlunina. Þau hafi samt sem áður
alltaf talið að þau myndu fá fé til að
hefja verkið, þótt það yrði aðeins
minni upphæð en lagt var upp með.
„Við héldum ekki að menn myndu
slá algerlega út af borðinu heilu og
hálfu verkefnin.“ Björn nefnir einnig
að umhverfismat renni út í apríl 2019
og að framkvæmdaleyfið gildi aðeins
í tólf mánuði. „Ef það rennur út þarf
að óska eftir nýju leyfi. Og það kost-
ar fullt, fullt af peningum.“
Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri Horna-
fjarðar, er ekki sáttur frekar en aðrir á
Austurlandi.
Þjóðvegurinn er fyrsti
ferðamannastaðurinn