Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Blaðsíða 19
vel með íslensku atvinnulífi og hefðu
sérhæft sig í því að velja hentuga
starfsmenn fyrir þá sem þurfa.)
… ekki að reyna að
vera fyndnar
„Konur sem ætla sér að ná langt á
vinnumarkaðnum ættu ekki að flíka
skoðunum sem hugsanlega er hægt
að tengja kvennabaráttu. Starfsfer-
illinn verður að hafa stígandi, þótt
hún megi vera hægari en hjá karl-
mönnum þar sem konur verða oft að
sjá á eftir karlpeningnum á uppleið-
inni. […] Konur eiga að tala skýrt og
hafa góða símarödd. Konur eiga ekki
að reyna að vera fyndnar eða segja
brandara, en þeim á að líka kímni-
gáfa karlanna. Hláturinn á að vera
mildur en má vera dillandi. Konur
verða að gæta þess sérstaklega vel
að vera með á nótunum og helst vita
meira en viðmælandinn því um leið
og konan strandar á einhverju vakn-
ar upp grunur um að hún eigi betur
heima innan um börn og buru en í
hörðum heimi karlanna. (Úr sömu
grein í Helgarpóstinum, 1985)
… sinna skyldum sínum
„Það þarf að breyta viðhorfi
kvenna til kvenna. Það þarf að gera
konum kleift að vera heima. Konur
verða að gera upp við sig að á þeim
hvílir skylda samfara því að eiga
börn. Skyldur fylgja öllum verk-
efnum. Ef þú ert úti á vinnumarkaði
getur þú sagt upp. Móðurhlutverk-
inu getur þú ekki sagt upp.“
(Lesendabréf, Morgunblaðið,
1994)
… erfitt með að þola álag
„Einn helsti munurinn á körlum
og konum er viðbrögð þeirra við
álagi. Karlar verða einbeittir og ein-
angra sig en það þyrmir yfir kon-
urnar og þær verða mög tilfinninga-
samar.
(Úr bókinni Karlar eru frá Mars,
konur eru frá Venus, 1995)
… ekki að vera í skærum
litum á Alþingi
„Á Alþingi ættu konur ekki að
ganga í peysum eða skærlitum jökk-
um. Alþingi býður upp á virðulegan
stíl og Anna segir að tilvalið sé að
ganga í dökkbláum, gráum eða
dökkleitum fötum. „Það hentar ekki
að vera í skærlitum jökkum vegna
þess að þá sker konan sig úr.““ (Við-
tal við útlitsráðgjafa í Frjálsri versl-
un, 1995)
… að læra að kasta
og grípa
„Það þarf að kenna konunum rétt
kastlag. Allir sem hafa séð stelpur
reyna að kasta snjóbolta vita að þær
vantar sveifluna sem til þarf. En
þetta er hægt að kenna og ætti að
gera strax í íþróttakennslu í barna-
skólum.“ (Handboltaþjálfari í viðtali,
DV, 2001)
… ekki að vera hræddar
við ábyrgð
„Það er erfitt að fá konur í stjórn-
unarstöður, þeim þykir óþægilegt að
taka ábyrgð.“ (Úr pallborðs-
umræðum á námsstefnu Samtaka
atvinnulífsins, Félags kvenna í at-
vinnurekstri og iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytisins, 2007)
Getty Images/Stockphoto
12.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Enginn aðgangseyrir
Aldrei of seint – Heilsuefling eldri aldurshópa
Ráðstefna fimmtudaginn 16. mars 2017
Ráðhús Reykjavíkur – Tjarnarsalur
Ráðstefna sett: 14:00
• Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson
1. hluti: 14:05–14:45
Staðan í málaflokknum, breytingar á samfélagi og heilsueflandi forvarnir.
Hvernig vilja hinir eldri eldast?
• Stefnumótun í heilbrigðisþjónustu fyrir aldraðra; Ragnar Þórir Guðgeirsson, formaður starfshóps
og ráðgjafi hjá Expectus
• Mín eigin heilsa – Hvernig vil ég eldast – Reynslusaga; Kolbeinn Pálsson, fyrrum íþróttamaður
• Hvernig er samfélagið að breytast – hvað er til ráða til að efla heilsu hinna eldri á næstu árum;
Ólafur Þór Gunnarsson, lyf- og öldrunarlæknir og sveitarstjórnarmaður
• Fjölþætt heilsurækt – Leið að farsælum efri árum; Janus Guðlaugsson, PhD-íþrótta- og
heilsufræðingur
Hléæfingar
2. hluti: 14:50–15:25
Heilsa, næring og hollusta. Hvernig er tekist á við heilsubrest á efri árum?
• Næring samhliða fjölþættri hreyfingu hinna eldri; Ólöf Guðný Geirsdóttir, PhD-næringarfræðingur
• Að takast á við þjálfun sjötugur að lokinni hjarta- og æðaaðgerð; Páll Ólafsson, íþróttakennari
• Forvarnir og heilsa; Erla Gerður Sveinsdóttir, læknir, Heilsuborg
Hlé – Næring
3. hluti: 15:45–16:30
Íþróttafélögin, félagslegir þættir og heilsuhagfræði
• Hvað geta íþróttafélögin gert varðandi forvarnir aldraðra?; Þráinn Hafsteinsson, íþróttafræðingur
og þjálfari
• Mikilvægi félagslegra þátta í fyrirbyggjandi heilsurækt; Sigrún Ingvarsdóttir, félagsráðgjafi
• Sýn heilsuhagfræðings á heilsueflingu og forvarnir eldri aldurshópa; Gylfi Ólafsson, heilsuhag-
fræðingur
Hléæfingar
4. hluti: 16:35–16:55
Heilsuefling og forvarnir í framkvæmd
• Ráðherra heilbrigðismála – Óttar Proppé
• Borgarstjóri – Dagur B. Eggertsson
• Landlæknir – Birgir Jakobsson
• Sveitarstjóri – Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri í Norðurþingi og doktor í lýðheilsufræðum
Pallborðsumræður (17:00-17:10):
Óttar Proppé, Dagur B. Eggertsson, Birgir Jakobsson og Kristján Þór Magnússon
Ráðstefnulok
• Ellert B. Schram, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
Ráðstefnustjóri
• Anna Birna Jensdóttir, formaður Öldrunarráðs Íslands
Ráðstefnustaður
• Tjarnarsalur – Ráðhús Reykjavíkur