Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Page 22
HÖNNUN Fjórtán nemendur á öðru ári í Ljósmyndaskólanum halda ljós-myndamarkað á Lofti laugardaginn 11. mars á milli klukkan13.00 og 17.00. Til sölu verða litlar fjöldaprentaðar myndir en
einnig dýrari prentaðar myndir í takmörkuðu upplagi.
Ljósmyndamarkaður á Lofti
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017
Fjölskyldan hefur komið sér vel fyrir í hlýlegu og björtuheimili í Fossvoginum. „Ég elska hverfið mitt, það ermjög grænt og lokað, með göngustíga og leiksvæði
fyrir krakkana og engar þungar götur,“ segir Margrét sem
ólst sjálf upp í hverfinu og sá ekki fyrir sér neinn annan stað
til þess að ala sín börn upp. Fjölskyldan flutti inn fyrir rúmu
ári og hefur komið sér afar vel fyrir. Margrét lýsir stílnum
sem mínímalískum og segir sér líða best ef það er ekki of
mikið af dóti og kýs hún hreina liti, hvort sem þeir eru dökk-
ir eða ljósir. Margrét segist passa að það sé ekki of mikið að
gerast í einu, hún leyfir hlutunum að njóta sín og finnst mik-
ilvægt gott pláss inni á milli.
„Ég hugsa að það sé það helsta sem maður ætti að huga
að þegar maður innréttar heimilið að kaupa hluti og mublur
sem manni finnst fallegar og líður vel með og ekki elta
tískumerki bara því þau eru í tísku hjá öðrum,“ útskýrir
Margrét og bætir við að mikilvægast sé að manni líði vel á
heimilinu hvort sem þar ríki hvítur mínímalískur stíll eða
retro chaotic-stíll.
Aðspurð segist hún sækja innblástur mikið í önnur innlit.
„Ég vinn við að setja upp tímarit, meðal annars Hús og
híbýli, og sér maður þar svo margskonar og margbreytilega stíla og hluti og er gaman að rekast á í
þeim blöðum eitthvert flott horn eða uppstillingu og fá hugmyndir þaðan sem maður síðan heimfærir
í sinn persónulega stíl.“
Uppáhaldsstaður Margrétar á heimilinu er stofan. Hún er stór og hátt til lofts með mjög stórum
gluggum, hlýleg en björt í senn. „Stofan er einskonar griðastaður fjölskyldunnar þar sem við verjum
mestum tímanum saman, ég hef leikföng fyrir strákana í stofunni því mér finnst að allir eigi að njóta
hennar en ekki bara hafa hana upp á punt fyrir gesti einungis.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Heimskorti er komið fyrir fyrir ofan eldhúsborðið ásamt PH-ljósinu frá Louis Poulsen.
Hlýlegt og bjart
heimili í Fossvogi
Margrét Guðmundsdóttir, grafískur hönnuður, býr ásamt fjöl-
skyldu sinni í björtu og fallega innréttuðu raðhúsi í Fossvoginum.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Borðstofan er rúmgóð. Parið lét nýverið setja
glerkantinn sem kemur afar vel út. Málverkið er
eftir Ragnheiði Þorgrímsdóttur (ragnpaint.com).