Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Page 27
12.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Harpa segir að Steff sé ekki
mikil uppskriftamanneskja og
hún vilji meina að matreiðsla sé
list og bakstur vísindi. Harpa
segist því sjá um baksturinn þar
sem innihaldsefnin séu í ná-
kvæmum hlutföllum en hún um
matseldina þar sem maturinn
sé einfaldlega smakkaður til.
Steff gat engu að síður gefið
uppskriftina að þessari smur-
bleikju.
létt gufusoðin bleikja
smjör
vorlaukur
dill
salt
sykur
sítrónusafi
sítrónubörkur
eplaedik
Bleikjan er gufuelduð í ofni.
Fiskurinn er tíndur af beinunum
og hvert einasta snitti er nýtt.
Fiskimaukinu er blandað við
smjör um það bil í hlutföllunum
1 hluti smjör á móti 2 hlutum
af fiski. Svo er fínt söxuðum
vorlauk, fersku söxuðu dilli,
rifnum sítrónuberki, sítrónu-
safa, eplaediki, salti og sykri
blandað saman við.
Fiskblandan er sett í form og
bráðnu smjöri hellt yfir þannig
að það þeki allt yfirborð fisk-
blöndunnar, þetta er gert til að
auka geymsluþolið og til að
halda réttu rakastigi á rétt-
inum.
Þetta er svo borið fram kalt
með brauði og dillmajónesi.
DILLMAJÓNES
Dillmajónes er gert alveg eins
og venjulegt majónes nema að
fyrst er búin til dillolía.
Ferskt dill og rapsolía sett í
blandara og látið ganga á
miklum hraða lengi þangað til
olían er orðin vel eiturgræn.
Þegar maður heldur að þetta
sé tilbúið er best að hræra í
svona fimm mínútur í viðbót.
Þá er olían síuð í gegnum
hreinan klút og sett á flösku.
Til að gera dillmajónesið not-
ar Steff dillolíu og venjulega
rapsolíu í jöfnum hlutföllum.
Steff segir að þegar dillolían sé
gerð verði eftir dillmauk í
klútnum sem sé tilvalið að nota
þegar fiskur er grafinn.
Smur-
bleikja með
dillmajónesi
Harpa sér um baksturinn en Steff
eldar matinn.
ILVE er eftirlæti eldhúsmeistara um allan heim. Hönnunin gerir eldhúsið að höll og handverkið er engu líkt.
ILVE eldavélar, ofnar og helluborð eru ítölsk afburðavara sem passar í allar venjulegar innréttingar. ILVE býður
upp á mikið úrval helluborða: Gas, keramik, innbyggð grill, langelda og stálpönnur, auk innfelldra helluborða
og ofna fyrir innréttingar. Breidd: 60-150 cm. Ef þú vilt vita af hverju okkur finnst ILVE vera bestu eldhústæki
í heimi, komdu þá við í Kokku.
Fasteign
á fótum