Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Page 28
Tehúsið Kumiko er litríkt líkt og kræsingarnar sem þar eru á boðstólnum.
Susanne Grüene er yfirkokkur áKumiko og reyndar eini kokk-urinn þar. Hún sér um að töfra
fram súpur, brauð, japanskar samlokur,
bakkelsi og kökur af ýmsu tagi. Kök-
urnar eru eins og listaverk; litríkar og
skreyttar með sykurmassa og nostrað er
við hvert smáatriði. Umhverfið er í sama
anda; sterkir og fallegir litir blasa við og
það er ekki laust við að gestirnir fyllist
gleði bara við það eitt að stíga þarna
inn.
Undir japönskum áhrifum
Susanne segir tehúsið vera undir jap-
önskum áhrifum en staðurinn sé alls
ekki japanskur. „Súpan sem ég gef upp-
skrift að er til dæmis úr grænum baun-
um og grænu karríi, sem er alls ekki
japanskt. En mér finnst gaman að elda
japanskt og er með nigiri-samloku á
matseðlinum. Þannig að margt hér er
undir japönskum áhrifum en í bland við
annað,“ segir hún.
Susanne vann í Sviss á Michelin-
stöðum og segir vinnuna hafa verið erf-
iða og dagana þar langa. Hana langaði
að breyta til og vinna minna en sextán
tíma á dag og tók því tilboðinu að koma
hingað og kokka. Reykvíkingar og ferða-
menn eru smátt og smátt að uppgötva
staðinn, en hægt er að fá nánari upplýs-
ingar á heimasíðunni kumiko.is.
Lakkrísostakaka vinsæl
Mikil vinna er lögð í kökurnar, en þær
er einnig hægt að panta og taka með
heim fyrir veislur. Valið gæti verið erf-
itt. „Ég er hrifnust af því þegar þær eru
sætar með örlitlu súru með,“ segir Sus-
anne. „Ég er líka mjög hrifin af lakkrís-
ostakökunni, en hún er gerð sérstaklega
fyrir fólkið hér á norðurhjara veraldar,“
segir hún og nefnir að fólkið sunnar í
álfunni sé ekki eins hrifið af lakkrís.
Kökurnar er alls ekki sykurlausar en
Susanne er með ágæta lífssýn hvað það
varðar. „Þegar maður ætlar að gera vel
við sig þarf maður að velja vel og ekki
vera með samviskubit yfir því. Það er
betra að velja góða köku en eitthvert
sykrað drasl úr búð!“
Susanne Grüene er yfirkokkur
á Kumiko. Hún býr til súpur,
samlokur og kökur sem gleðja
bæði bragðlaukana og augað.
Morgunblaðið/Ásdís
Ævintýralegt
japanskt tehús
Kökurnar eru litríkar og ljúffengar.
Úti á Grandagarði hefur nýlega bæst í flóruna
japanska tehúsið Kumiko. Þar er þó ekki bara að finna
mat frá Japan því þýski kokkurinn Susanne leitar víða
fanga og tekur það besta úr matargerð ýmissa landa.
Kökurnar þar eru í sérflokki, svo fallegar að maður
tímir næstum ekki að borða þær!
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Bleikur kolkrabbi vakir yfir góðgætinu.
Réttirnir á tehúsinu Kumiko eru eins og klipptir út úr ævintýri. Staðurinn er að sögn kokksins undir jap-
önskum áhrifum en þó ekki dæmigerður japanskur staður.
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017
MATUR