Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Qupperneq 29
500 g hveiti
400 g sykur
1 msk. lyftiduft
¼ msk. vanilluduft
salt á hnífsoddi
1 msk. eplaedik
60 g olía
150 g bananar, skornir
í smáa bita
200 g kókosmjólk
250 g sojamjólk
Öllu blandað saman.
Í lokin er 200 g súkku-
laðidropum (eða söxuðu
súkkulaði) blandað saman
við og blöndunni hellt í lítil
form sem geta verið
hvernig sem er í laginu.
Bakað við 160°C í 15 til
20 mínútur.
Eftir að kubbarnir hafa
kólnað eru þeir hjúpaðir
með súkkulaði sem brætt
hefur verið yfir vatnsbaði.
Magn og súkkulaðitegund
fer eftir smekk.
Vegan bananakubbar
500 g frosnar grænar baunir
0,6 l kókosmjólk (ósæt)
0,3 l grænmetissoð
salt eftir smekk
1 msk. grænt karrímauk (curry
paste)
4 hvítlauksgeirar
2 laukar
2 Kaffir límónulauf
2 stilkar sítrónugras
Hitið olíu á pönnu og setjið
lauk, hvítlauk og grænt karrí-
mauk á við miðlungshita.
Skerið límónulauf og
sítrónugras og bætið á pönn-
una ásamt frosnu baununum.
Hitið allt saman ásamt
soðinu og kókosmjólkinni.
Látið sjóða örstutt og salt-
ið að vild.
Hellið súpunni gegnum
sigti áður en hún er borin
fram.
Súpa með
grænum
baunum og
sítrónugrasi
12.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
BOTN
200 g egg
350 g sykur
237 ml mjólk
112 g ósaltað smjör
1 msk vanilludropar
245 g hveiti
2 tsk lyftiduft
½ tsk salt
4 msk svört sesamfræ
Hrærið saman egg og sykur þar til hræran
er létt og frauðkennd. Blandið þurrefnum
saman í aðra skál.
Hitið mjólkina og bætið smjöri og van-
illudropum út í. Hrærið þar til allt er bráðn-
að. Blandið mjólkur- og smjörblöndu var-
lega saman við þurrefnin með handafli, og
blandið því næst saman við eggjahræruna.
Hitið ofn í 180°C. Hellið deiginu í tvö
kringlótt form og bakið í 45 mínútur. Látið
kökurnar kólna og skerið þær í lög, ca 2
sentímetra þykk. Helst þarf að skera annan
botninn í tvo hluta og hinn í þrjá.
HVÍTSÚKKLAÐIMÚS MEÐ MATCHA
8 eggjarauður
150 g sykur
Hrærið eggjarauðurnar í hrærivél á miklum
hraða í þrjár mínútur eða þar til þær eru er
farnar að þykkna. Bætið þá sykri smátt og
smátt saman við.
500 ml rjómi
250 g hvítt súkkulaði, skorið í bita
1 msk. matcha-duft (japanskt grænt teduft)
Hitið rjómann og bræðið súkkulaðið
saman við, og bætið matcha-duftinu út í.
Hrærið mjög vel saman.
700 ml rjómi
Þeytið rjómann og hrærið honum var-
lega saman við matcha-rjómakremið.
Næst skal raða kökunni saman, lag fyrir
lag, botn og krem til skiptis . Látið kólna og
skreytið að vild.
Vanillusvampkaka með
matcha-kremfyllingu