Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Blaðsíða 30
HEILSA Að ganga á skíðum reynir jafnt á efri og neðri hluta líkamans og margir vöðvareru virkjaðir þegar gengið er. Á gönguskíðum er hægt að brenna fleiri kaloríum
en í öðrum íþróttum og skíðaganga er talin sérlega góð fyrir hjartavöðvann.
Gönguskíði góð fyrir hjartað
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017
Ekkert heimsmet í frjálsumíþróttum er eldra en metið í800 metra hlaupi kvenna.
Þegar Jarmila Kratochvílová frá
Tékkóslóvakíu hljóp 800 metrana á
heimsmetstímanum 1:53,28 mínútum
er alls óvíst að það hafi vakið athygli
hér á landi, enda var fólk upptekið
við aðra hluti eins og að hlusta á Dur-
an Duran og Dúkkulísurnar, fylgjast
með Húsinu á sléttunni í sjónvarpinu
eða jafnvel horfa á nýjustu myndir
eins og Flashdance og Return of the
Jedi í bíó. Metið var nefnilega sett ár-
ið 1983, þrettán árum áður en Aníta
Hinriksdóttir fæddist, og stendur
enn 34 árum síðar.
Loftfirrt og loftháð
En hvers konar íþróttagrein er eig-
inlega 800 metra hlaup? Er þetta
langt spretthlaup eða stutt lang-
hlaup?
„Þetta er það sem við köllum milli-
vegalengd. Ef þú myndir þarfagreina
þetta þá myndi ég
halda að þetta
væru svona 50%
loftháðar og 50%
loftfirrtar kröfur
sem þetta hlaup
gerir til íþrótta-
mannsins. Það er í
sjálfu sér bæði rétt
að tala um þetta
annaðhvort sem langt spretthlaup
eða sem stutt langhlaup. Hvort-
tveggja væri alveg rétt,“ segir Sig-
urbjörn Árni Arngrímsson, doktor í
íþróttafræði og hlaupari.
800 metra hlaup er jafnan hlaupið
á 400 metra langri braut, nema
stundum á 200 metra braut innan-
húss en þá eru hlaupnir fjórir hring-
ir. Tæknin við hlaupið skiptir miklu
máli og hraðinn má ekki vera of mik-
ill á fyrri 400 metrunum.
„Þú hleypur fyrri hringinn mjög
rösklega, þó hægar en þú myndi gera
ef þú værir að hlaupa 400 metra. Svo
kemur tímabil frá svona 400 upp í 600
metra þar sem hlauparanum líður yf-
irleitt frekar illa. En þá er líka orðið
stutt í mark. Ef þú hins vegar ferð
fyrri hringinn bara örlítið of hratt þá
verður seinni hringurinn algjört hel-
víti. Þá lendirðu of mikið inni í loft-
firrta hlutanum, það myndast of mik-
il mjólkursýra og þú stífnar upp.
Orkuframleiðsla líkamans verður of
mikið til loftfirrð þegar þú ferð of
hratt. Það er hraðinn sem ræður því
hvort þú ert að vinna með loftfirrta
eða loftháða orku. Loftfirrta orku-
kerfið okkar virkar ekkert of lengi,
þannig að ef þú þarft að taka of mik-
inn hluta af því of snemma þá get-
urðu lent í vandræðum og þar af leið-
andi hægist á þér.
Almennt snýst þessi grein af-
skaplega mikið um hraða og úthald,
eða í raun um það að geta haldið
hraðanum nógu lengi,“ útskýrir Sig-
urbjörn Árni.
Þjálfun fyrir 800 metra hlaup er
nokkuð sérhæfð. Nú er hins vegar
mikið í tísku að gera sem flestar
íþróttir að almenningsíþróttum. Gæti
hinn almenni íþróttamaður farið að
tileinka sér 800 metra hlaup?
„Það er að því leytinu til allt í lagi
að þetta tekur ekki langan tíma. Fólk
fengi þó líklega meira út úr því
heilsufarslega að hlaupa lengur og
hægar svona eins margir gera, fimm
kílómetra eða eitthvað svoleiðis. Það
er meiri hætta á meiðslum í svona
átakagreinum eins og 800 metrunum,
meiri hætta á tognunum,“ segir Sig-
urbjörn Árni. Blaðamaður hvetur
áhugasama engu að síður til þess að
prófa að hlaupa 800 metra eins og
hratt og hægt er. Það er meira en að
segja það.
En hvaða þýðingu telur Sigurbjörn
Árni að árangur Anítu Hinriksdóttur,
brons á Evrópumóti innanhúss, hafi
fyrir íþróttalífið hér á landi?
„Þetta er algjör snilld og mikil
lyftistöng. Þetta skiptir miklu máli
fyrir frjálsíþróttir að hafa manneskju
í úrslitum og þessi árangur skiptir
líka verulegu máli fyrir Anítu. Það
var kominn tími á hana að taka næsta
skref. Hún var búin að komast þrisv-
ar í úrslit á stórmótum og vera í öft-
ustu sætunum í úrslitum. Það skipti
verulegu máli fyrir hana að komast á
pall. Líka bara upp á að viðhalda
áhugahvötinni.
Við þurfum alltaf stjörnur til þess
að halda áfram og hafa einhverja til
að líta upp til. Það hjálpar líka til að
Aníta er geðþekk og elskuleg. Auð-
velt að láta sér líka við hana sem
manneskju. Hún er góð fyrirmynd.“
Aníta Hinriksdóttir hefur bætt bronsi á EM innanhúss í safn verðlaunapeninga sinna í 800 metra hlaupi. Árangur hennar
er mikil lyftistöng fyrir frjálsar íþróttir. Aníta hljóp á 2:01,25 mínútum. Besti tími hennar utandyra er 2:00,14.
Morgunblaðið/Kristinn
Kúnstin er að
halda hraða
sem lengst
Aníta Hinriksdóttir komst í sögubækurnar
í vikunni þegar hún vann bronsverðlaun í 800
metra hlaupi á EM innanhúss í Belgrad. Þessi
tiltekna hlaupagrein er óvenjustrembin enda
þarf 800 metra hlaupari bæði að æfa úthald
og geta hlaupið á miklum hraða.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Dr. Sigurbjörn
Árni Arngrímsson
Besta tímann í 800 metra hlaupi
kvenna á síðasta ári á hin suðurafríska
Caster Semenya, 1 mínútu og 55,28
sekúndur, sem er talsvert frá heims-
meti Jarmilu Kratochvílovu. Heimsmet
hennar í í 800 metra hlaupi kvenna er
það met í frjálsum íþróttum sem lengst
hefur staðið. Aðeins einu sinni frá því
heimsmetið í 800 metra hlaupi kvenna
var sett hefur kona komist innan við
sekúndu frá heimsmetstímanum.
Að mati Sigurbjörns Árna er þó lík-
lega styttra í að heimsmet verði slegið í
800 metra hlaupi en í styttri vega-
lengdum, 100 metra, 200 metra og 400 metra. „Konur eru alltaf
annað slagið að komast nálægt þessum metum. Ég sé ekki fram
á að metið í 400 metrum verði slegið á næstunni og ólíklega í
100 og 200 metrum. En stelpurnar í 800 metrunum eru næst því
að slá metið, þótt það verði kannski ekki alveg á næstunni.“
Hæfileikaríkar konur sem settu metin
Heimsmet kvenna í styttri vegalengdum eru ekki mikið yngri
en 800 metra metið. Austurþýska hlaupakonan Marita Koch
setti heimsmet í 400 metra hlaupi árið 1985 sem enn stendur, en
hún hljóp á 47,60 sekúndum. Met Florence Griffith Joyner í 100
og 200 metra hlaupum hafa einnig staðið óhreyfð frá því 1988.
Flo Jo hljóp 100 metrana á 10,49 sekúndum í undankeppni sem
haldin var fyrir bandaríska liðið fyrir Ólympíuleikana í Seúl. Á
leikunum sjálfum í september 1988 setti hún svo heimsmet í 200
metra hlaupi þegar hún hljóp á 21,34 sekúndum.
Í heimi frjálsíþrótta hefur sú umræða reglulega komið fram
að metin sem sett voru á þessum tíma eigi ekki að vera gild,
enda þykir nokkuð líklegt að notkun á sterum og öðrum ólög-
legum efnum hafi átt sinn þátt í þessum stórkostlega árangri
hlauparanna. Um það eru margar vísbendingar þótt ekki hafi
alltaf tekist að tengja þær grunsemdir tilteknu íþróttafólki eða
methöfum. Ekki er þó útlit fyrir að metin verði þurrkuð út,
enda er slíkt ógerlegt svo langt aftur í tímann, jafnvel þótt
sterkar vísbendingar séu um að hlaupadrottningar níunda ára-
tugarins hafi nýtt sér veikt regluverk utan um lyfjanotkun. Í
einhverjum tilvikum voru það þó landsliðin sem í raun nýttu sér
íþróttafólkið því að því var stundum sagt að það væri að taka
vítamín eða fæðubótarefni sem voru í raun ólögleg efni sem
juku árangur.
Það vekur sannarlega athygli að fjögur heimsmet kvenna í
spretthlaupum og millivegalengd skuli hafa verið sett um sama
leyti, á árunum 1983 til 1988, en fáar konur komist mjög nálægt
því að slá þau síðan þá. Sigurbjörn Árni bendir þó á í þessu
samhengi að þótt metin kunni að hafa verið slegin af ein-
staklingum sem hafi notað lyf til að auka árangur sé fráleitt að
halda að slík lyf hafi aðeins verið notuð í þessum tilteknu
hlaupagreinum kvenna.
„Það eru alltaf miklar sögusagnir um að þetta séu dópmet en
það breytir ekki því að þetta voru mjög hæfileikaríkir ein-
staklingar sem slógu metin. Það er til dæmis búið að margslá
metið í 400 metra grindahlaupi og það er erfitt að halda því
fram að hlauparar í t.d. 400 metra hlaupi hafi verið á dópi en
ekki þeir sem kepptu í 400 metra grindahlaupi.
Ef metin eru dópmet, sem ég í sjálfu sér veit ekkert um og
verður aldrei hægt að sanna, þá eru metin þetta góð af því að
það voru gríðarlega hæfileikaríkir einstaklingar sem voru að
dópa. Þessar konur hefðu verið gríðarlega góðar án dóps.“
Jarmila Kratochvílová,
heimsmethafi í 800 metra
hlaupi var 32 ára þegar hún
setti metið. Lengi hafa verið
sögusagnir um að metinu hafi
hún náð með aðstoð yfja.
FJÖGUR HLAUPAMET SEM HAGGAST EKKI
Metaregn á níunda
áratugnum
Caster Semenya átti
bestan tíma í 800
metrum á síðsta ári og
vann Ólympíugull.
AFP
Marita
Koch
heims-
methafi
í 400
metra
hlaupi.
Florence
Griffith Joyn-
er lést langt
um aldur fram
en heimsmet
hennar í 100
og 200 metr-
um lifa enn.