Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Page 33
Ofurfyrirsætan og frum-
kvöðullinn Kate Moss er alltaf
flott til fara. Hún er með rokkaðan
en í senn fágaðan og frjálslegan
fatastíl og stígur sjaldnast feilspor.
Moss mætti í flottri samsetningu á
tískusýningu Dior í vikunni.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
AFP
Rokkaður
fatastíll
Vila
19.990 kr.
Drapplitaður
rúskinnsjakki.
Netaporter.com
11.000 kr.
Hattur frá franska
tískuhúsinu Isabel
Marant.
STELDU STÍLNUM
Vila
1.990 kr.
Allir verða að eiga í
það minnsta einn
svartan hlýrabol.
Comma
17.490 kr.
Hermanna-
grænar buxur í
þægilegu sniði.
Húrra Reykjavík
13.990 kr.
Klassískt og vandað
belti frá Andreson’s.
Asos.com
800 kr.
Stórir gylltir
hringir.
38 þrep
53.000 kr.
Falleg ökklastígvél
frá VIC MATIE.
12.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Netaporter.com
20.000 kr.
Svalur eyrnalokkur
frá Balenciaga.
Zara
3.995 kr.
Rauð hlébarðaskyrta.
Eva
56.995 kr.
Rykfrakkar eru málið
í vor. Þessi vandaði
jakki frá Filippu K fæst
einnig sandlitaður.
GS-skór
29.995 kr.
Leðurskór frá
danska hönn-
unarhúsinu Billi Bi.
Í þessari viku …
Sigurborg Selma
sigurborg@mbl.is
Þegar ég kaupi mér sparifatnað vel ég oftast
eitthvað sem ég get einnig notað hversdags
með því að para það við strigaskó, eða klæðast
yfir, til að mynda, stuttermaboli. Ég hef oft lent
í því að kaupa mér rándýr föt sem hanga inni í
skáp vegna þess að þau eru of fín til þess að
klæðast dagsdaglega. Mikið er um árshátíðir
og fermingar á næstunni og hér er því smá
brot af hversdagslegum sparifatnaði.
Lancome
4.519 kr.
Dökkrauður
Absolue BX
varalitur nr. 131.
Vero Moda
6.990 kr.
Fallegur
samfestingur.
Lindex
6.595 kr.
Einfaldur kjóll í
skemmtilegum
textíl.
Íslenskt skart verðlaunað
Skartgripahönnuðurinn Anna María Pitt hlaut á dögunum verðlaun á Artistar Jewels-
sýningunni, sem haldin er samhliða tískuvikunni í Mílanó á Ítalíu. Þar er kastljósinu beint að
nútímalegum straumum í hönnun skartgripa og hönnuðum frá ýmsum löndum boðin þátt-
taka. Sýningin hefur aldrei verið stærri en skartgripir frá 142 hönnðum voru sýndir. Þrír
hönnuðir hlutu verðlaun en þetta er í fyrsta sinn sem Anna María tekur þátt í sýningunni.
„Verðlaunin sem ég fékk voru fyrir hönnun og gerð á hálsmeni sem heitir „Backbone“.
Hönnunin er byggð á hryggjarsúlu hreindýrs, en ég sæki innblástur minn mikið í náttúr-
una,“ segir Anna María en sérkenni hennar hönnunar í silfursmíði er sú að hún notar kald-
ar tengingar til að skapa þrívíð form. Auk Önnu Maríu tók Guðbjörg Kristín
Ingvarsdóttir í Aurum þátt í sýningunni. „Það eru valdir tveir til þrír skart-
gripir frá hverjum hönnuði þannig að það voru alls um 360 munir
sýndir. Mig óraði ekki fyrir því að fá verðlaun á svo stórri samsýningu,“
segir Anna María en þær Guðbjörg voru viðstaddar opnunina
föstudaginn 24. febrúar.
„Sýningin var mun stærri en ég bjóst við og skartgripirnir
margir hverjir stórkostlegir. Þannig að tilfinningin var einstök
og ég var yfir mig stolt að fá að sýna með öllu þessu hæfi-
leikaríka fólki. Ég viðurkenni að ég fékk svolítið í magann þegar
nafnið mitt var kallað upp!“
Hún segir svona verðlaun gefa sér byr undir báða vængi og
vonast til að þau veki athygli innan tísku- og skartgripageirans. Alls
voru 30 skartgripir valdir á farandsýningu sem sett verður upp víða um
Evrópu á næstu mánuðum og verður Backbone hluti af þeirri sýningu.
Skartgripahönnun
Anna María tók við verðlaun-
unum af Elisabettu Barracchia
sem er ritstjóri fylgihlutasíðna
Vogue og listrænn
stjórnandi tísku-
deildar Vanity
Fair.
Verðlaunin voru
veitt fyrir háls-
menið Backbone.