Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Page 34
FERÐALÖG Ferðaþjónustan í Katmandu er farin að ná sér á strikeftir mannskæðan jarðskjálfta árið 2015. Ferðahluti In-
dependent segir borgina vera áfangastað ársins 2017.
Kathmandu blómstrar
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017
Löngunin til að hreyfa sig viðtónlist og takt hefur fylgtmanninum í þúsundir ára.
Dansinn er bæði skemmtun og tján-
ing, bæði listræn útrás og líkams-
rækt. Hann er líka praktískur að því
leyti að það skiptir ekki máli hvort
þú sért í Moskvu eða Madrid, það er
alltaf hægt að finna einhvern salsa-
klúbb til að drepa tímann eða kynn-
ast nýju fólki. Í Rómönsku Ameríku
er dansinn sérlega skemmtilegur
vegna þess að hann snar þáttur í
menningarlífinu. Hann er nokkurs
konar endurspeglun úr sjálfsmynd
þjóðanna. Sunnudagsblað Morgun-
blaðsins gerði stutta samantekt á því
sem stendur til boða í dansmenningu
nokkurra rómanskra þjóða.
Nýyfirstaðin er kjötkveðjuhátíðin
í Rio de Janeiro, Brasilíu, þar sem
nokkrar milljónir manna, innfæddir
sem ferðamenn, héldu út á götur
borgarinnar sem er gríðarstór og ið-
andi af suðrænni stemningu. Kjarni
hátíðarinnar er sambatónlist, samba-
dans og vægast sagt skrautlegir bún-
ingar, en sambadansinn sjálfur snýst
í meginatriðum um hröð skref ásamt
ýktum mjaðmahreyfingum. Áhuga-
sömum ferðalöngum í Brasilíu stend-
ur tvennt til boða. Annars vegar er
hægt að sækja stutt námskeið sem
eru sérsniðin fyrir ferðamenn og
kíkja síðan á sambaklúbb seinna um
kvöldið. Hin leiðin, sem er öllu djarf-
ari, er að mæta á æfingu hjá einum af
fjölmörgu sambahópunum í Ríó sem
taka þátt í kjötkveðjuhátíðinni. Hóp-
arnir æfa margir utan borgarinnar
og því er brýnt að vera í samfylgd
einhvers og taka sem minnst af verð-
mætum með í för. Skipulagðar
sambaferðir eru ekki á hverju strái
en Kilroy býður upp á ýmiss konar
pakkaferðir til Brasilíu.
Argentína hefur upp á margt að
bjóða, allt frá ríkri leikhúsmenningu
til úrvals nautakjöts og rauðvíns. Þar
á meðal er tangódansinn sem er tign-
arlegur paradans. Dansað er eftir til-
finningu tónlistarinnar sem er jafnan
þrungin nostalgíu og væmni. Auðvelt
er að finna skipulagðar tangóferðir í
fljótu bragði, bæði hjá innlendum og
erlendum ferðaskrifstofum. Úrval-
Útsýn býður upp á tveggja vikna
ferð til Argentínu og Úrúgvæ í nóv-
ember og er síðasta deginum varið í
tangófræðslu þar sem farið er yfir
sögu dansins, frá úthverfunum og til
alþjóðavæðingarinnar. Þá er hægt að
finna víðtækari tangóferðir á ferða-
síðunni SouthAmerica.travel sem
býður upp á sex daga kennslu og
dans í höfuðborg tangósins, Buenos
Aires. Haft er eftir innfæddum Arg-
entínumanni að hafi maður heimsótt
Buenos Aires án þess að dansa tangó
þá hafi maður ekki kynnst borginni.
Þá benda rannsóknir til að tangó hafi
ýmiss konar heilsuábata í för með
sér, bæði líkamlegan og andlegan.
Hann hafi slakandi áhrif og geti
verkað gegn þunglyndi.
Þrátt fyrir samfellda efnahagserf-
iðleika í áratugi er enn margt að
sækja til Kúbu: tónlist, vindla, romm
og hvítar strendur. Höfuðborgin
Havana er miðpunktur menningar-
AFP
Dansað í Róm-
önsku Ameríku
Á ferðalögum á framandi slóðum er upplagt að víkka áhugasviðið og
tileinka sér nýja takta. Það verða fáir sviknir af því að stíga nokkur spor í
Rómönsku Ameríku þar sem dans er stór hluti af menningarlífinu.
Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@mbl.is
Karnival í Brasilíu
er litrík og lifandi
skemmtun.
AFP
AFP
Búningarnir á kjötkveðjuhátiðinni í Ríó eru afar skrautlegir og fjölbreytilegir.
Þúsundir salsadansara taka þátt í El
Salsódromo-skrúðgöngunni í
Santiago de Cali í Kólumbíu yfir
jólahátíðina ár hvert.
REYKJANESBÆ
Hafnargötu 61 | 230 Reykjanesbær | Sími: 421 7104
Full búð af
NÝJUMVÖRUM
Siemens - Adidas - Under Armour - Cintamani