Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Blaðsíða 35
12.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Það getur komið sér vel að læra
grunnskrefin og finna taktinn
áður en haldið er á klúbba er-
lendis. Á Íslandi eru salsa- og
bachata-námskeið á haustönn
og vorönn og hvert miðviku-
dagskvöld er sérstakt danskvöld
á vegum Salsa Iceland þar sem
fyrsti klukkutíminn er tileink-
aður byrjendum. Jafnan er fjöl-
mennt í byrjendatímanum, sem
bæði Íslendingar og ferðamenn
sækja og eftir því sem líður á
kvöldið bætist við fjöldi af
reyndari dönsurum. Á nám-
skeiðunum sjálfum er farið yfir
tvo salsastíla. Annars vegar
L.A.-stílinn sem snýst nokkurn
veginn um að dansa eftir
ímyndaðri línu og hinsvegar
kúbverska stílinn sem er heldur
frjálslegri í hreyfingu. Þá bjóða
einhverjir dansskólar hérlendis
upp á námskeið í samba og fleiri
suðrænum dönsum. Tangó-
ævintýrafélagið er hópur Ís-
lendinga sem hittast reglulega
til að æfa tangósporin.
Salsadans á Lækjartorgi á Menningarnótt Reykjavíkur í sól og blíðu.
Morgunblaðið/Eggert
SUÐRÆNN DANS Á ÍSLANDI
Virkt salsasamfélag
lífsins og hefur gamaldags ásýnd og
afslappað andrúmsloft. Þar er salsa-
dansinn vinsæll og hann er líklega sá
dans sem er Íslendingum hvað kunn-
ugastur af öllum rómönsku dönsun-
um. Hér á landi er virkt og fjölmennt
salsasamfélag sem hittist vikulega á
dansgólfinu. Salsa er í raun blanda
nokkurra danstegunda og á rætur
sínar að rekja til innflytjenda sem
flúðu til Bandaríkjanna frá Kúbu og
Puertó Ríkó á fjórða áratug síðustu
aldar en kúbverskur salsa er ekki
jafn formfastur og önnur tilbrigði;
hann einkennist af tilburðamiklum
snúningum og sveiflum. Íslenska
ferðaskrifstofan VITA býður upp á
páskaferð til Kúbu þar sem helstu
staðir eyjunnar eru heimsóttir.
Nokkrar erlendar ferðaskrifstofur
bjóða síðan upp á sérstakar salsa-
ferðir til Kúbu fyrir fólk, hvort sem
það eru byrjendur eða lengra komn-
ir.
Fyrir þá sem hafa áhuga á salsa og
geta hugsað sér að eyða jólunum er-
lendis er Kólumbía tilvalinn áfanga-
staður. Á meðan stærstu danshátíð-
irnar í álfunni fara flestar fram í
febrúar halda þeir Feria de Cali síð-
ustu sex dagana í desember í borg-
inni Santiago de Cali sem er sögð
höfuðborg salsadansins. Hún hefst á
mílulangri skrúðgöngu, El Salsó-
dromo, 25. desember og flykkjast
þúsundir hvert ár til Santiago de Cali
til að taka þátt í hátíðarhöldunum.
Rétt austan við Kúbu liggur eyjan
Hispaniola sem skiptist milli Dóm-
iníska lýðveldisins og Haítí. Þar er
mikið fjalllendi og gróðursælir dalir.
Þaðan kemur bachata-dansinn sem,
líkt og salsa, hefur náð fótfestu á Ís-
landi. Bachata er líkamlegur, jafnvel
kynrænn, þar sem parið dansar oft
þétt við hvort við annað við seiðandi
en taktfasta tónlist. Í Dóminíska lýð-
veldinu er einnig haldin kjötkveðju-
hátíð í febrúar sem nær hámarki 27.
febrúar á þjóðhátíðardegi landsins.
Líkt og í Brasilíu fer fram skrúð-
ganga með skrautlegum búningum
þar sem dansað eru undir
bachata-tónlist. Hægt er að finna
margar skipulagðar ferðir til Dóm-
iníska lýðveldisins gegnum erlendar
ferðaskrifstofur en á Íslandi hafa
Kilroy og Transatlantic boðið upp á
sérferðir.
Það er ekki allra að panta sérferð-
ir til fjarlægra landa til að læra dans
en hafi maður á annað borð áhuga á
hvers konar dansi getur verið mjög
auðgandi fyrir ferðalagið að eyða
skammri stund í að kynna sér dans-
flóru landsins, bæði til skemmtunar
og jafnframt til að fá víðari innsýn í
menninguna. Þetta er kjörið tæki-
færi til að kynnast heimamönnum og
það á sérstakleg við um Rómönsku
Ameríku þar sem danshefðin í
hverju landi er samtvinnuð menning-
unni, meira en hjá flestum öðrum
þjóðum.
Fagrar dansmeyjar á heimsfræga næturklúbbnum Tropicana í Havana sýna listir sínar með tilþrifum.
Morgunblaðið/Ómar
Á kjötkveðjuhátíðinni í Dóminíska lýðveldinu klæða heimamenn sig í litríka
búninga sem hafa jafnan trúarlega merkingu.
AFP
Tangóinn er tilfinningaþrunginn dans sem á rætur að tekja til landamæra Arg-
entínu og Úrúgvæ á seinasta fimmtungi 19. aldar.
Reuters
’ En hafi maður á ann-að borð áhuga á hverskonar dansi getur veriðmjög auðgandi fyrir ferða-
lagið að eyða skammri
stund í að kynna sér dans-
flóru landsins.
svalandi ísar í
einum kassa