Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017
L
engi hafa fjölmiðlar með góðum ár-
angri gengið í smiðjur manna, karla
og kvenna, sem átt hafa góðan feril á
ólíkum sviðum, jafnvel glæstan og
eftirminnilegan. Oft eru þá tímamót
hjá viðkomandi, svo sem starfslok
eða afmæli þegar nokkuð er liðið á.
Gáfur þurfa atbeina
Langflestir eru spurðir um galdurinn sem skilaði svo
góðum árangri. Svörin eru ólík um margt. Flestir
nefna að brautin hafi ekki alltaf verið greið, þótt svo
virðist núna. Stundum hafi fótur verið settur fyrir,
þegar skiljanleg samkeppni á milli fólks hafi flækt
stöðuna. Margvíslegt uppnám hendir menn á langri
leið. Ástvinamissir, stundum í dauðann, stundum til
annars. Veikindi herja óvænt á. Gengið er óvarlega
um áfengi og allt þar á milli. Þetta eru ólíku svörin.
En þegar hin eru skoðuð svipar þeim ótrúlega saman
hjá fólki úr ólíkum greinum. Rætt er við fótbolta-
menn, fjáröflunarrisa, rithöfunda, rokkstjörnur og
ballettdansara eða leikara og málara, bílasmiði og
bændahöfðingja, uppistandara og arkitekta.
Það kemur á óvart hvað viðhorfin eru lík um margt.
Hæverskir viðmælendur verða að viðurkenna að þeir
hafi um sumt búið yfir hæfileikum umfram meðaltalið
og það hafi ráðið nokkru um að tækifærin voru til
staðar. En úr svörunum má jafnframt lesa að margir
aðrir hafi haft svipaða, sambærilega og jafnvel mun
meiri hæfileika, en það hafi ekki nýst þeim til fulls.
Kannski hafi skort stuðning og aðhald í upphafi frá
aðstandendum eða þá sjálfa skort metnað. Innri mað-
ur hvers og eins ráði oftast mestu um það, hvort góð-
ur grunnur tryggi góðan árangur.
Svitinn ræður úrslitum
Þeir eru til sem svo haganlega eru af guði gerðir að
þeir ná árangri án mikillar fyrirhafnar. Líka er þekkt
að einstaklingar hafi fjárhagslegt forskot sem geti
gefið forskot, þótt ekki sé það einhlítt. Svo virðist
heppnin elta suma umfram aðra og geti þeytt þeim
fram úr. En slíkir þættir, í bland við ríkulega hæfi-
leika, breyti þó ekki því, að með óvísindalegum hætti
megi fullyrða að það eigi aðeins 10-20 prósenta þátt í
því að varða mönnum leið upp á efstu þrep á sigur-
palla lífsbaráttunnar og vísan samastað þar lengi.
Vinna, ástundun, agi og tryggð við sett markið, fylli
80-90 prósentin.
Hitt er annað, að séu hæfileikarnir smátt skornir er
hæpið að fyrrnefndir 80-90 prósenta þættir nægi við-
komandi til að komast alla leið. En býsna langt er þó
hægt að komast á þeim þáttum einum.
Hægt væri að nefna dæmi um lifandi og látið fólk,
nær eða fjær, til að styrkja þessar „kenningar“. En
það er óþarfi, því lesandinn þekkir þau sjálfur. Þau
geta verið alþekkt eða aðeins í nærumhverfi hans og
flestum öðrum ókunn.
Fleira en fólk
Hér er rætt um persónur. Fyrirtæki eða fyrirbæri af
þeim toga hafa ekki „hæfileika“ í skilningi mannfólks
eða dýra. En þau geta fengið orð fyrir að búa yfir
ígildi þeirra. Snjall einstaklingur kann að hafa stofn-
að til starfsemi á grundvelli sinnar persónulegu snilli-
gáfu. Fyrirtækið, sem lifði hann erfir hana ekki, en
það getur sótt hana. Upphafið á rót í fullhuganum
frumlega, snilligáfu hans og elju. „Fyrirtækið“ er
meðvitað um það og hefur alla anga úti til að ná slík-
um til sín og tryggja þannig vöxt sinn og viðgang.
Heimsfræg fótboltafélög eru ekki góð í fótbolta.
Launþegarnir á vellinum eru það. Þeir koma og fara.
Þess vegna er sennilega út í hött að halda lengi með
tilteknu liði. En það gerir svo sem engum neitt til.
Fyrirtækið fræga, fótboltafélagið í Barcelona eða þau
í Manchester, verður að ráða menn með nef fyrir
hæfileikum, ella rennur það á rassinn, hversu forn
sem frægð þess er og hversu fullkomið sem skipulag-
ið er. Með nef fyrir hæfileikum, aura til að kaupa þá
og kunnáttu til að raða þeim saman er gatan greið. Þá
kemur skipulagið til, forna frægðin hjálpar og upp-
safnað eigið fé eða frá aðvífandi auðjöfrum tryggir
gullna framtíð. Og tugir þúsunda „halda með félag-
inu“ þótt aðdáunin sé bundin milljónamæringunum á
vellinum, sem halda sjálfir ekki meira með félaginu
en svo, að þeir fara við fyrsta betra boð. Það má vel
vera að 80-90% af árangrinum og 10-20% af snilldinni
sem klappað er fyrir í 90 mínútur, einu sinni til tvisv-
ar í viku, hlaupi um á stuttbuxum á ofurlaunum og
standist ekki jafnlaunavottun. En eftir sem áður er
snilldin og sérgáfan forsenda spilverksins. Fari
snilldin og sérgáfan hins vegar á stjórnlaust kvenna-
far og gleðigjafarnir verði þeirra helstu kunningjar
þá fer allt fyrir lítið.
Hvað með Trump
Þessar vikurnar er drjúgur hluti af athygli og um-
ræðu heimsins tengdur Trump. Það er jafnvel hægt
að eyðileggja efnilegt fjölskylduboð hér uppi á Ís-
landi með því að skjóta honum inn í umræðuna. Það
er ekki víst að Trump hafi nokkru sinni heyrt á Ísland
minnst og sé svo, er ekki öruggt að rétt sé að breyta
þeirri stöðu. Í ógáti nefndi einhver Svíþjóð á dög-
unum við Donald og Svíar, sem eru oftast bæði hæg-
fara og hæglátir, hafa verið með sálarlegan náladofa
og sinadrátt síðan. Þeir óttast, að það sem þeir hafa
um árabil skrökvað hver að öðrum, haldi ekki lengur.
Svíar hafa furðu lengi haldið í þá leikmynd, að þeir
séu algjörlega lausir við afleiðingar af hömlulitlum
innflutningi á fólki, sem gerir ekkert með hjal heima-
manna um fjölmenningarþjóðfélag. Það er harla
óvenjulegt ef heil þjóð horfir í spegil öll í einu og sér
ekki sjálfa sig, af því að Trump sagði þrjár setningar
um þjóðina og þær ekki allar nákvæmar frekar en
vant er. Jafnvel þeir sem þola Trump forseta verst
geta varla neitað því að hann býr yfir einhverri teg-
und af snilligáfu. Annars væri hann ekki kominn
þangað sem hann er kominn. Því að það er ekki hægt
að halda því fram að hann hafi svindlað sér inn. Hann
hélt margfalt fleiri fundi en frú Hillary og þar tönnl-
aðist hann á því sem hann ætlaði að gera yrði hann
kosinn forseti. Mörgum finnst óskiljanleg ósvífni að
kjósendur hafi vitandi vits kosið þennan mann sem
forseta og það sé glæpsamleg ósvífni af Trump að
ætla sér svo bersýnilega að efna flest það sem hann
lofaði. Hann segir að vísu að það geti hann gert þar
sem hann sé ekki stjórnmálamaður, en það þykir
fréttaskýrendum, sem taka sig alvarlega, ósvífin af-
sökun. Og ekki batnar skap þeirra þegar kannanir
sýna að fréttaskýrendurnir sem taka sig alvarlega
virðast tilheyra minnihlutahópi sem ört fækkar í.
Mörgu þarf að gefa gaum
En það er svo margt annað en sérgáfa, snilligáfa eða
bara hæfileikar á einstökum sviðum sem þarf að
rækta og hlúa að. Þótt ekki verði endilega séð í fyrstu
að barn hafi augljóslega eitthvað alveg sérstakt til að
bera sem gæti með sæmilegri aðstoð og hvatningu
fleytt því a.m.k. jafnlangt öðrum, segir það minna en
Það þarf að búa um
hnútana og binda
saman bútana
’
Ef skilin á milli fjórflokkanna á Íslandi
eru að verða óljós og flokkarnir eða ein-
hver þeirra snuddast aðallega í því að fanga
aðdáun andstæðinganna verður þeim fárra
daga auðið. Sé svo komið, þá er óþarft að sýta
það. Flokkar eru mannanna verk.
Reykjavíkurbréf10.03.17