Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Síða 41
12.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
Systurnar Sara og Svanhildur
Vilbergsdætur taka á sunnudag kl.
15 á móti gestum á sýningu sinni
Úlfatími í sýningarsal Listasafns
Reykjanesbæjar og er leiðsögn
þeirra á dagskrá Safnahelgar.
Dagný Heiðdal, listfræðingur og
deildarstjóri listaverkadeildar
Listasafns Íslands, mun á sunnudag
klukkan 14 leiða
gesti um hina
áhugaverðu
sýningu með
verkum
Valtýs
Péturs-
sonar,
listmálara
og gagn-
rýnanda.
Á laugardag og sunnudag kl. 20
verður bein útsending í Bíó Paradís
frá sýningu á hinu sívinsæla og
áhrifamikla leikriti Amadeus í
National Theatre. Verkið fjallar
um samband Mozarts og Salieri.
Sigga Björg Sigurðardóttir
verður á sunnudag kl. 14 með lista-
mannsspjall í Sverrissal Hafnar-
borgar þar sem hún ræðir við gesti
um sýninguna Rósa og myndheim-
inn sem hún skapar.
Nú er Safnahelgi á Suður-
nesjum og gestum boðið á allra-
handasöfn, setur og sýningar á
svæðinu. Kl. 13 í dag verður sögu-
ganga frá Bókasafni Reykjanesbæjar
að Rokksafni Íslands.
Fimm árstíðir nefnist nýr söng-lagaflokkur eftir ÞorvaldGylfason prófessor við kvæði
Snorra Hjartarsonar sem frum-
fluttur verður á tónleikum í Hann-
esarholti í dag, laugardag, kl. 16.
Kvæðin eru „Haustið er komið“,
„Ísabrot“, „Vor“ og „Sumarkvöld“,
einu nafni „Fjórar árstíðir“, og loks
„Í Úlfdölum“. „Fyrstu fjögur verkin
eru samin fyrir sópran, en „Í Úlfdöl-
um“ sem ég kalla fimmtu árstíðina
samdi ég fyrir tenór,“ segir Þor-
valdur, en flytjendur á tónleikunum
eru Hallveig Rúnarsdóttir sópran,
Elmar Gilbertsson tenór og Snorri
Sigfús Birgisson píanó. Sjálfur mun
Þorvaldur lesa kvæðin fyrir áheyr-
endur áður en þau eru sungin og
leikin.
„Ég hef fengist við tónsmíðar í
tómstundum síðustu 10-15 árin og
fremur skrifað lagaflokka en stök
lög,“ segir Þorvaldur og rifjar upp
að lagaflokka hans byggða á kvæð-
um Kristjáns Hreinssonar hafi
Bergþór Pálsson og Garðar Cortes
flutt í Hörpu og Kristinn Sigmunds-
son í Salnum. „Í hittiðfyrra vaknaði
sú hugmynd að safna saman í flokk
fjórum kvæðum Snorra um árstíð-
irnar, en hann hefði orðið 110 ára í
fyrra. Snorri hefur gert nokkur
kvæði um flestar árstíðirnar og ég
valdi þau fjögur sem mér þóttu vera
árennilegust. Síðan dróst ég, eins og
margir hafa gert, að „Í Úlfdölum“
sem sumir kalla eitt fínasta kvæði
sem ort var á Íslandi alla síðustu öld.
Það er lengsta og fyrsta kvæði
Snorra í fyrstu ljóðabók hans frá
árinu 1944 sem spannar allar árstíð-
irnar fjórar og meira til, enda er
þetta glæsilegt kvæði sem lætur sér
ekkert óviðkomandi. Fimmta árstíð-
in slær þannig á alla strengi og er
eins og indversk máltíð. Þegar tón-
smíðunum var lokið sýndi ég Hall-
veigu og Elmari þetta og þau tóku
þessu fagnandi,“ segir Þorvaldur og
hrósar happi yfir að hafa fengið jafn
góða og hæfileikaríka söngvara auk
Snorra Sigfúsar til liðs við sig.
Aðspurður segist Þorvaldur hafa
byrjað að fikta við tónsmíðar á ung-
lingsaldri. „En eftir fimmtugt byrj-
uðu lögin að streyma fram. Ég er
kominn með næstum hundrað lög og
þeim fer fjölgandi,“ segir Þorvaldur,
sem semur tónlist sína í tölvunni
með aðstoð tónlistarforritsins Sibel-
ius. „Af því ég er leikmaður sendi ég
aldrei neitt frá mér nema að vinir
mínir úr hópi tónskálda fari yfir efn-
ið og lagfæri það eftir þörfum.“
Tónlistardagskráin í Hannesar-
holti í dag tekur um 30 mínútur í
flutningi og verður, eins og fyrri tón-
leikar sem Þorvaldur hefur staðið
að, tekin upp í hljóð og mynd.
Þorvaldur Gylfason segir lögin hafa byrjað að streyma fram eftir fimmtugt.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Fimm árstíðir
Nýr sönglagaflokkur eftir Þorvald Gylfason
verður frumfluttur í Hannesarholti í dag kl. 16.
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Elmar
Gilbertsson
Snorri Sigfús
Birgisson
Hallveig
Rúnarsdóttir
Snorri
Hjartarson
MÆLT MEÐ
Active Liver stuðlar að
eðlilegum efnaskiptum
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Nánari upplýsingar á www.icecare.is
Heilbrigð melting
Inniheldur:
• Kólín sem stuðlar að:
- eðlilegum fituefnaskiptum
- viðhaldi eðlilegrar starfsemi lifrarinnar
• Mjólkurþistil og ætiþistil sem talin eru
stuðla að eðlilegri starfsemi lifrar og galls
• Túrmerik og svartan pipar